Tíminn - 17.06.1977, Side 19
Föstudagur 17. júní 1977
19
Aðalfundur Skógræktarfélagsins:
Viðaukaskipulagskrá
fyrir landgræðslusjóð
Aðalfundur Skógræktarfélags
islands var haldinn dagana 10.-
12. júní á Laugarvatni. Megin-
verkefni fundarins var að þessu
sinni að ganga endaniega frá
reglum um það, hvernig verja
skuli vindlingafé Landræðslu-
sjóðs, sem ætlað er til skógrækt-
ar og til hvaða verkefna, og
samþykkti fundurinn samhljóða
reglur um það.
Fundurinn hófst kl. 10 á föstu-
dagsmorgun, og voru þá lang-
flestir fulltrúar komnir til
fundar, en þetta var fjölmenn-
asti aðalfundur félagsins til
þessa og sóttu hann milli 60-70
fulltrúar auk margra gesta.
Jónas Jónsson ritstjóri, for-
maður félagsins, flutti setn-
ingarræðu og minntist sérstak-
lega hins mikla starfs Hákonar
Bjarnasonar skógræktarstjóra
fyrir félagið og i þágu skóg-
ræktarinnar allrar. Hann skýrði
einnig frá þeirri tillögu að kjósa
þau hjónin Hákon og Guðrúnu
Bjarnason heiðursfélaga, og
samþykkti fundurinn það ein-
róma og hyllti þau hjónin.
Fundurinn samþykkti einnig að
tillögú stjórnarinnar að gera
Hans Berg, héraðsskógræktar-
stjóra i örsta á Mæri, heiðurs-
félaga, en hjá honum hafa
margir Islendingar dvalizt við
skógræktarstörf. Þá minntist
Jónas i ræðu sinni Klemensar
Kristjánssonar, tilraunastjóra,
sem er nýlátinn, en hann var
áhugasamur skógræktarmaður
og oft fulltrúi á fundum félags-
ins.
Halldór E. Sigurðsson, land-
búnaðarráðherra flutti ávarp á
fundinum og ræddi fyrst hin
mikilvægu störf Hákonar
Bjarnasonar að islenzkri skóg-
rækt. Siðan ræddi hann skóg-
ræktarmál og vék m.a. að hug-
myndum um það að flytja aðal-
stöðvarSkógræktar rikisins Ut á
land,ensagði að ákvarðanirum
það yrðu ekki teknar nema i
samráði við hinn nýja skóg-
ræktarstjóra.
Haukur Ragnarsson til
raunastjóri flutti erindi á fund-
inumumúttekt á gróðursetning-
um, og Grétar Unnsteinsson
skólastjóri Garðyrkjuskóla
rikisins annað um námstilhögun
i skrúðgarðayrkju og tengsl
trjáræktar og skógræktar
Snorri Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri félagsins ilutti
skýrslu um starfsemi félagsins
og deilda þess, og hafði plöntun
verið allmikil á vegum þeirra á
liðnu ári, eða um 350 þús.
Á laugardag fóru fundarmenn
i boði Skógræktar rikisins og
Skógræktarfélags Árnessýslu
inn iÞjórsárdal og skoðuðu hina
myndarlegu skógrækt þar. Þar
er nú stærsti samfelldi sitka-
greniskógur á landinu i upp-
vexti. Þar þáðu fundarmenn
hressingu i boði Skógræktar-
félags Arnesinga.
A laugardagskvöldið sátu
fundarmenn boð sýslunefndar
Arnessýslu og
Skógræktarfélags Amesinga,
og stjórnaði Páll Lýðsson sýslu-
nefndarmaður þvi i fjarveru
oddvita sýslunefndar. A eftir
var kvöldvaka með ýmsu
skemmtiefni, sem Árnesingar
sáu um.
Umræður og afgreiðsla mála
fór fram alla fundardagana.
Tillögu um að andmæla fram
komnum hugmyndum um flutn-
ing aðalstöðva Skógræktar
rikisins var visað til stjórnar
félagsins. Samþykkt var álykt-
un um verndun gróðurmoldar
og stjórn félagsins falið að vinna
að þvi, að ákvæði yrðu sett i lög
um það efni. Ýmsar aðrar
ályktanir voru gerðar um
félags- og skógræktarmál.
Aðalmál fundarins var þó
setning viðaukaskipulagsskrár
fyrir landgræðslusjóð, að þvi er
varðar vindlingafé hans, er
ganga skal til skógræktar. Voru
reglur um það hvernig fé þessu
á að verja samþykktar ein-
róma. Samkvæmt þeim á að
verja þvi i ákveðnum hlutföllum
til friðunar lands, girðinga
vegna skógræktar og land-
græðslu, svo og til plöntukaupa
og ýmissa annarra skógræktar-
verkefna á vegum skógræktar-
félaga. Einnig til fræöflunar og
styrktar við uppeldi
trjáplantna. Þá má einnig lána
skógræktarfélögum og ein-
staklingum á vegum þeirra, eða
Skógrækt rikisins og Land-
græðslu rikisins, af þessu fé til
kaupa á skóglendum eða landi
til skógræktar.
1 sjórn félagsins voru endur-
kjörnir Oddur Andrésson og
Kristinn Skæringsson, en fyTir
eru i' stjórninni Jónas Jónsson,
formaður, ólafur Vilhjálmsson
og Bjarni Helgason. Einnig voru
endurkjörnir i varastjórn Þór-
arinn Þórarinsson frá Eiðum og
Sigurður Helgason, lögfræðing-
ur, en fyrir eru i varastjórn
Hulda Valtýsdóttir, Brynjar
Skarphéðinsson og Andrés
Kristjánsson.
Sérstakurgestur þessa fundar
var Norðmaðurinn Hans Vik
fyrrum stjórnarmaður i Norska
skógræktarfélaginu, og ávarp-
aði hann fundinn bæði við setn-
ingu og i fundarlok. Jónas Jóns-
son, formaður félagsins, sleit
siðan fundinum með ræðu um
hádegisbil á sunnudag.
í
Brúðuvagnar
og kerrur
Póstsendum
VAGNAR KR. 10.900
OG KR. 7.900
KERRUR KR. 2.300
OG KR. 4.700
Leikfangahúsið
Skólavörðustíg 10, sími 14806
Auglýsicf ITimaniun
Þjónustumiðstöð
KASK
SKAFTAFELLI
j
Bændur — Athugið
ASETONA
Með notkun Asetona hafið þið vopn i höndum til
þess að fyrirbyggja súrdoða. Gefið Asetbna i 6 til 8
vikur 1/2 kg á dag, 2 vikur fyrir og,6 til 8 vikur eftir
burð. Fyrirliggjandi hjá:
Kaupfélögin
UM ALLTLAND INNFLUTNINGSDEILD
Samband isl. samvinnufélaga
í versluninni:
Allar nauðsynlegar matvörur,
búsáhöld og vefnaðarvara
miðuð við þarfir ferðamanna.
C
í veitingastofunni:
Heitur matur og grillréttir.
Opið alla daga.
Þjónustumiöstöö
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Þjóögarðinum SKAFTAFELLI
á treverk í
sér inn í viðinn og ver^hann rotnun og fúa.
) S/ippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiöjan Dugguvogi
Símar33433og33474
SNOGH0J
Nordisk folkehojskole
ved Lillebæltsbroen
- ogsa elever fra de andre
nordiske lande.
6 mdr. fra nov.
4 mdr. fra jan.
Send bud efter skoleplan.
DK-7000 Fredericia
tlf. 05-94 22 1 9
Jacob Krogholt.