Tíminn - 23.06.1977, Síða 3
3
Fimmtudagur 23. júni 1977
etur Kaupfélags Skagfiröinga.
frá bændum i héraöinu til Sam-
lagsins.
begar afskrifaö haföi verið,
eins og lög gera ráö fyrir, þá
varö hagnaður af rekstri félags-
ins á s.l. ári tæpar 14 milljónir
króna, er kom til ráöstöfunar á
aðalfundinum, og var m.a. 9,5
millj. af þeirri upphæö variö til
endurgreiðslu til félagsmanna, i
hlutfalli við viðskipti þeirra við
félagið.
Að þessu sinni áttu þeir Gunn-
ar Oddsson og Jónas Haralds-
son að ganga úr stjórninni, en
voru báöir endurkjörnir, en fyr-
ir voru i stjórn Kaupfélags
Skagfirðínga þeir Gisli Magnús-
son, Jóhann Salberg Guö-
mundsson, Marinó Sigurðsson,
Þorsteinn Hjálmarsson og
Stefán Gestsson.
A aðalfundinum var rætt um
sameiningu Samvinnufélags
Fljótamanna og Kaupfélags
Skagfirðinga. Samþykkti fund-
urinn einróma tillögu frá stjórn
félagsins þess efnis, að samein-
ing félaganna færi fram á þessu
ári. Þá samþykkti fundurinn, að
einn fulltrúi, kjörinn af starfs-
mannafélagi K.S., fái sæti á
stjórnarfundum með málfrelsi
og tillögurétt. Guðjón Ingi-
mundarson mælti fyrir itarlegri
tillögu, sem fræðslunefnd fé-
lagsins lagði fyrir fundinn, sem
fundurinn samþykkti einróma.
Margar fleiri tillögur komu
fram, sem voru samþykktar.
fanga verður lokið við iþróttasal
og byggt yfir sundlaugina. Þaö
er Sveinn Helgason frá Egils-
stöðum sem sér um bygginga-
framkvæmdirnar. Sveinn
sveitarstjóri sagði, að á fjárlög-
um hreppsins i ár hefðu verið
sex milljónir veittar til verks-
ins, rikið lagði frám tvær, en li-
onsklúbbur staðarins þrjár. Þá
gáfu nemend'ur fimmtabekkjar
barnaskólans 33.200. Mikill á-
hugt rikir á þvi að koma upp i-
þróttaaðstöðu á Raufarhöfn. 1
dag er félagsheimiliö notað sem
iþróttahús, en það fullnægir
hvergi þeim kröfum sem gerðar
eru til iþróttahúsa, enda ekki
hugsað sem slikt.
Næg atvinna hefur verið á
Raufarhöfn aö undanförnu og
væntanlega hefur verið unnið
fram á miðnætti daginn er rætt
var við Svein, en togari heima-
manna kom þá um morguninn
með 120 tonn eftir sex daga úti-
vist.
SJ-Reykjavik A föstudagskvöld
kl. 20 verður opnuð að Kjarvals-
stöðum sýning á verkum þýzka
teiknarans Andreasar Paul
Weber. Þetta er stærsta sýning
þessa viðurkennda listamanns,
sem nú er 83 ára gamall, og á
henni eru yfir 160 iitógrafiur. t
verkum sinum fjallar Weber
oftast um einstaklinginn. Hann
ræðst á ógnir styrjalda, hefur
samúð með föngum, hatast við
ofsatrú, dáist að mikilmennum
og er umhugað um náttúru og
umhverfisvernd.
Þýzka bókasafnið i Reykjavik
ásamt félaginu tslenzk grafik
standa að sýningu þessari og
hafa notiö til þess styrks frá
Goethe stofnun og Eimskipafé-
lagi Islands.
tslandsvinurinn Dr. Gerhard
Schwabe og kona hans, sem eru
vinir A. Weber áttu mikinn hlut
aö þvi að verk hans eru nú sýnd
hér, en eins og Schwabe kemst
að oröi „Hefur Paul Weber dá-
litið að segja tslendingum og
þeir mikiö að segja honum.”
,,Ég vildi að Weber kynntist ts-
Iandi, þessari vin I heimi nútim-
ans”, sagöi dr. Schwabe á
blaðamannafundi.
Siðan 1959 hefur Paul Weber
gefiö út „Kritische Kalender”
en þar fjallar hann á gagnrýn-
inn hátt um atburði liöandi
stundar. Sjálfur velur hann til-
vitnanir i bókina, sem birtast
með myndunum. Weber er nú
að ganga frá dagatali sinu,
„Kritische Kalender” fyrir
1978, og þvi getur hann aðeins
haft skamma viöstöðu hér á
landi að þessu sinni. „En ég
kem aftur”, segir hann.
Paul Weber er um þessar
mundir aö ljúka við aöra bók,
sem fjallar um skák og skák-
menn. t henni verða einnig til-
vitnanir og myndir, m.a. af
ýmsum kunnustu núlifandi
skákmönnum. „1 skákinni eru
óendanleg viðfangsefni”, segir
Weber, en um skákmenn fer
hann mildari höndum i myndum
sinum en annaö fólk, sennilega
af þvi að hann telur þá öðrum
fremri.
Sýningin á verkum Pauls
Weber að Kjarvalsstöðum er
óvenjulegur viðburður hér á
landi. Myndir hans eru áhrifa-
miklar og auöskildar, — þetta er
ekki list fyrir fáa útvalda. Þeg-
ar blaðamönnum gafst kostur
að skoöa myndirnar vantaði enn
heiti þeirra meö þeim, en þau
eru mikill hluti verka Webers. A
sýningunni verður heiti hverrar
myndar á islenzku við hlið
hennar.
Weber er sjálfmenntaöur
listamaöur. Hann er sonur járn-
brautarstarfsmanns. Hann
kenndi teikningu, gegndi her-
þjónustu i fyrri heimstyrjöld-
inni. Gekk i hreyfingu Ernst
Niekisch, sem barðist gegn Hitl-
er, var i fangabúðum og gegndi
herþjónustu i siðari heim-
styrjöldinni. Áriö 1971 hlaut
hann prófessorsnafnbót og heiö-
urskross Sambandslýðveldisins
Þýzkalands. 1973 var opnað hús
i Ratzeburg, þar sem er safn
helgaö híoum og stofnun, sem
vinnur að varöveizlu verka
hans.
Sýning Pauls Weber að Kjar-
valsstöðum stendur til 12. júli.
Sérstæð sýning að Kjarvalsstöðum:
Áhrifamikil list
sem allir skilja
Ráðstefna um frjálsa
félagsstarfsemi í Kópa-
vogi um næstu helgi
Kás-Reykjavik. — Samband
ungra framsóknarmanna hefur
ákveðið að gangast fyrir ráð-
stefnu um frjáisa félagsstarf-
semi og verður hún haldin i fé-
lagsheimili Kópavogs næstu
helgi, 25. og 26. júni.
, t byrjun mun menntamála-
ráöherra Vilhjálmur Hjálmars-
son setja ráöstefnuna með
stuttu ávarpi, en aö þvi loknu
hefst flutningur framsöguer-
inda. Framsögumenn eru þrir:
Reynir Karlsson æskulýösfull-
trúi, sem ræðir félagsstarf i
þéttbýli og dreifbýli og hvemig
á að auka það og bæta. Haf-
steinn Þorvaldsson form.
U.M.F.I., sem flytur framsögu
um Iþróttalögin, markmið
þeirra og hugsanlegar breyting-
ar, og Pétur Einarsson vara-
form. S.U.F., sem ræöir frjálsa
félagsstarfsemi og stuðning op-
inberra aðila.
Auk Iramsögumanna munu
ýmsir sérfróöir menn um fé-
lagsstarfsemi taka þátt i pall-
borðsumræðum, og er þess
vænzt að þar komi fram miklar
og gagnlegar upplýsingar um
frjálsa félagsstarfsemi 1 land-
inu og I hvaða farveg væri æski-
legt að beina henni.
Engin ályktun veröur sam-
þykkt i lok ráöstefnunnar, en
ábendingar frá henni veröa
teknar til meðferöar hjá vinnu-
hópi um æskulýðsmál, sem
framkvæmdastjórn Framsókn-
arflokksins skipaöi, og mun
hann skila tillögum til fram-
kvæmdastjórnarinnar og þing-
flokks Framsóknarflokksins.
A næstunni mun fara fram
mikil endurskoöun á ýmsum
lögum, sem að æskulýösmálum
snýr, og m.a. er þegar hafin
endurskoðun á lögum um Æsku-
lýösráð rikisins. Þá er einnig
rætt um að endurskoða Iþrótta-
lögin, sem nú eru orðin nokk-
urra áratuga gömul. Einnig er
stööug umræöa i gangi um i
hvaða farveg beina eigi frjálsri
félagsstarfsemi I landinu.
Þaö er von ungra framsókn-
armanna, sem að þessari ráö-
stefnu standa, aö hún verði að-
eins upphaf þess að þessi mál
veröi öll tekin til gagngerrar
endurskoðunar. Margt er þar i
góöu lagi, en hitter ljóst, að fjöl-
mörgu þarf aö breyta og á ýms-
um sviöum vantar nauösynlega
stefnumörkun.
Ráöstefnan er öllum opin, og
væri þvl mjög ákjósanlegt að
sem flestir, sem áhuga hafa á
frjálsri félagsstarfsemi, mættu
þar, þannig að unnt verði að
hafa sem breiðastan grundvöll
að baki þvi, sem frá ráöstefn-
unni kann að koma.
— Þeir sem áhuga hafa á að
sitja ráðstefnuna hafi samband
viö Gest Kristinsson á skrifstofu
SUF.