Tíminn - 23.06.1977, Qupperneq 3

Tíminn - 23.06.1977, Qupperneq 3
3 Fimmtudagur 23. júni 1977 etur Kaupfélags Skagfiröinga. frá bændum i héraöinu til Sam- lagsins. begar afskrifaö haföi verið, eins og lög gera ráö fyrir, þá varö hagnaður af rekstri félags- ins á s.l. ári tæpar 14 milljónir króna, er kom til ráöstöfunar á aðalfundinum, og var m.a. 9,5 millj. af þeirri upphæö variö til endurgreiðslu til félagsmanna, i hlutfalli við viðskipti þeirra við félagið. Að þessu sinni áttu þeir Gunn- ar Oddsson og Jónas Haralds- son að ganga úr stjórninni, en voru báöir endurkjörnir, en fyr- ir voru i stjórn Kaupfélags Skagfirðínga þeir Gisli Magnús- son, Jóhann Salberg Guö- mundsson, Marinó Sigurðsson, Þorsteinn Hjálmarsson og Stefán Gestsson. A aðalfundinum var rætt um sameiningu Samvinnufélags Fljótamanna og Kaupfélags Skagfirðinga. Samþykkti fund- urinn einróma tillögu frá stjórn félagsins þess efnis, að samein- ing félaganna færi fram á þessu ári. Þá samþykkti fundurinn, að einn fulltrúi, kjörinn af starfs- mannafélagi K.S., fái sæti á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt. Guðjón Ingi- mundarson mælti fyrir itarlegri tillögu, sem fræðslunefnd fé- lagsins lagði fyrir fundinn, sem fundurinn samþykkti einróma. Margar fleiri tillögur komu fram, sem voru samþykktar. fanga verður lokið við iþróttasal og byggt yfir sundlaugina. Þaö er Sveinn Helgason frá Egils- stöðum sem sér um bygginga- framkvæmdirnar. Sveinn sveitarstjóri sagði, að á fjárlög- um hreppsins i ár hefðu verið sex milljónir veittar til verks- ins, rikið lagði frám tvær, en li- onsklúbbur staðarins þrjár. Þá gáfu nemend'ur fimmtabekkjar barnaskólans 33.200. Mikill á- hugt rikir á þvi að koma upp i- þróttaaðstöðu á Raufarhöfn. 1 dag er félagsheimiliö notað sem iþróttahús, en það fullnægir hvergi þeim kröfum sem gerðar eru til iþróttahúsa, enda ekki hugsað sem slikt. Næg atvinna hefur verið á Raufarhöfn aö undanförnu og væntanlega hefur verið unnið fram á miðnætti daginn er rætt var við Svein, en togari heima- manna kom þá um morguninn með 120 tonn eftir sex daga úti- vist. SJ-Reykjavik A föstudagskvöld kl. 20 verður opnuð að Kjarvals- stöðum sýning á verkum þýzka teiknarans Andreasar Paul Weber. Þetta er stærsta sýning þessa viðurkennda listamanns, sem nú er 83 ára gamall, og á henni eru yfir 160 iitógrafiur. t verkum sinum fjallar Weber oftast um einstaklinginn. Hann ræðst á ógnir styrjalda, hefur samúð með föngum, hatast við ofsatrú, dáist að mikilmennum og er umhugað um náttúru og umhverfisvernd. Þýzka bókasafnið i Reykjavik ásamt félaginu tslenzk grafik standa að sýningu þessari og hafa notiö til þess styrks frá Goethe stofnun og Eimskipafé- lagi Islands. tslandsvinurinn Dr. Gerhard Schwabe og kona hans, sem eru vinir A. Weber áttu mikinn hlut aö þvi að verk hans eru nú sýnd hér, en eins og Schwabe kemst að oröi „Hefur Paul Weber dá- litið að segja tslendingum og þeir mikiö að segja honum.” ,,Ég vildi að Weber kynntist ts- Iandi, þessari vin I heimi nútim- ans”, sagöi dr. Schwabe á blaðamannafundi. Siðan 1959 hefur Paul Weber gefiö út „Kritische Kalender” en þar fjallar hann á gagnrýn- inn hátt um atburði liöandi stundar. Sjálfur velur hann til- vitnanir i bókina, sem birtast með myndunum. Weber er nú að ganga frá dagatali sinu, „Kritische Kalender” fyrir 1978, og þvi getur hann aðeins haft skamma viöstöðu hér á landi að þessu sinni. „En ég kem aftur”, segir hann. Paul Weber er um þessar mundir aö ljúka við aöra bók, sem fjallar um skák og skák- menn. t henni verða einnig til- vitnanir og myndir, m.a. af ýmsum kunnustu núlifandi skákmönnum. „1 skákinni eru óendanleg viðfangsefni”, segir Weber, en um skákmenn fer hann mildari höndum i myndum sinum en annaö fólk, sennilega af þvi að hann telur þá öðrum fremri. Sýningin á verkum Pauls Weber að Kjarvalsstöðum er óvenjulegur viðburður hér á landi. Myndir hans eru áhrifa- miklar og auöskildar, — þetta er ekki list fyrir fáa útvalda. Þeg- ar blaðamönnum gafst kostur að skoöa myndirnar vantaði enn heiti þeirra meö þeim, en þau eru mikill hluti verka Webers. A sýningunni verður heiti hverrar myndar á islenzku við hlið hennar. Weber er sjálfmenntaöur listamaöur. Hann er sonur járn- brautarstarfsmanns. Hann kenndi teikningu, gegndi her- þjónustu i fyrri heimstyrjöld- inni. Gekk i hreyfingu Ernst Niekisch, sem barðist gegn Hitl- er, var i fangabúðum og gegndi herþjónustu i siðari heim- styrjöldinni. Áriö 1971 hlaut hann prófessorsnafnbót og heiö- urskross Sambandslýðveldisins Þýzkalands. 1973 var opnað hús i Ratzeburg, þar sem er safn helgaö híoum og stofnun, sem vinnur að varöveizlu verka hans. Sýning Pauls Weber að Kjar- valsstöðum stendur til 12. júli. Sérstæð sýning að Kjarvalsstöðum: Áhrifamikil list sem allir skilja Ráðstefna um frjálsa félagsstarfsemi í Kópa- vogi um næstu helgi Kás-Reykjavik. — Samband ungra framsóknarmanna hefur ákveðið að gangast fyrir ráð- stefnu um frjáisa félagsstarf- semi og verður hún haldin i fé- lagsheimili Kópavogs næstu helgi, 25. og 26. júni. , t byrjun mun menntamála- ráöherra Vilhjálmur Hjálmars- son setja ráöstefnuna með stuttu ávarpi, en aö þvi loknu hefst flutningur framsöguer- inda. Framsögumenn eru þrir: Reynir Karlsson æskulýösfull- trúi, sem ræðir félagsstarf i þéttbýli og dreifbýli og hvemig á að auka það og bæta. Haf- steinn Þorvaldsson form. U.M.F.I., sem flytur framsögu um Iþróttalögin, markmið þeirra og hugsanlegar breyting- ar, og Pétur Einarsson vara- form. S.U.F., sem ræöir frjálsa félagsstarfsemi og stuðning op- inberra aðila. Auk Iramsögumanna munu ýmsir sérfróöir menn um fé- lagsstarfsemi taka þátt i pall- borðsumræðum, og er þess vænzt að þar komi fram miklar og gagnlegar upplýsingar um frjálsa félagsstarfsemi 1 land- inu og I hvaða farveg væri æski- legt að beina henni. Engin ályktun veröur sam- þykkt i lok ráöstefnunnar, en ábendingar frá henni veröa teknar til meðferöar hjá vinnu- hópi um æskulýðsmál, sem framkvæmdastjórn Framsókn- arflokksins skipaöi, og mun hann skila tillögum til fram- kvæmdastjórnarinnar og þing- flokks Framsóknarflokksins. A næstunni mun fara fram mikil endurskoöun á ýmsum lögum, sem að æskulýösmálum snýr, og m.a. er þegar hafin endurskoðun á lögum um Æsku- lýösráð rikisins. Þá er einnig rætt um að endurskoða Iþrótta- lögin, sem nú eru orðin nokk- urra áratuga gömul. Einnig er stööug umræöa i gangi um i hvaða farveg beina eigi frjálsri félagsstarfsemi I landinu. Þaö er von ungra framsókn- armanna, sem að þessari ráö- stefnu standa, aö hún verði að- eins upphaf þess að þessi mál veröi öll tekin til gagngerrar endurskoðunar. Margt er þar i góöu lagi, en hitter ljóst, að fjöl- mörgu þarf aö breyta og á ýms- um sviöum vantar nauösynlega stefnumörkun. Ráöstefnan er öllum opin, og væri þvl mjög ákjósanlegt að sem flestir, sem áhuga hafa á frjálsri félagsstarfsemi, mættu þar, þannig að unnt verði að hafa sem breiðastan grundvöll að baki þvi, sem frá ráöstefn- unni kann að koma. — Þeir sem áhuga hafa á að sitja ráðstefnuna hafi samband viö Gest Kristinsson á skrifstofu SUF.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.