Fréttablaðið - 21.02.2006, Qupperneq 2
2 21. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Skotbardagi í Kaupmannahöfn
Tveir menn voru skotnir og sá þriðji var
skorinn í andliti þegar til átaka kom fyrir
utan skemmtistað í Kaupmannahöfn á
sunnudagsmorgun. Lögreglan í Kaup-
mannahöfn var kölluð til og handtók
tvo menn. Talið er að félagar í tveim
klíkum hafi ætlað að útkljá deilu með
fyrrgreindum afleiðingum.
DANMÖRK
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
EGYPTALAND, AP Osama bin Laden
heitir því að láta aldrei ná sér á
lífi og segir bandaríska herinn
vera orðinn jafn „ósiðmenntað-
an“ og Saddam Hussein, að því er
kemur fram á hljóðupptöku sem
birt var á vefsíðu herskárra mús-
lima nýverið.
Hljóðupptakan er sú sama og
spiluð var á arabísku sjónvarps-
stöðinni al-Jazeera í janúar, þegar
bin Laden hótaði frekari árásum á
Bandaríkin og bauð Bandaríkja-
stjórn jafnframt upp á vopnahlé,
fjarlægði hún alla hermenn sína í
Mið-Austurlöndum. - smk
Osama bin Laden:
Mun ekki láta
ná sér á lífi
OSAMA BIN LADEN Mynd af Osama bin
Laden sem birt var á al-Jazeera sjónvarps-
stöðinni í janúar. NORDICPHOTOS/AFP
VERK AÐ VINNA
26. FEBRÚAR
NÁMSKYNNING Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
www.hi.is
BANKASALA Vilhjálmur Bjarnason,
aðjúnkt við Háskóla Íslands, telur
að ríkið, Ríkisendurskoðun og
einkavæðingarnefnd hafi verið
beitt blekkingum þegar Búnaðar-
bankinn var seldur.
Í greinaflokki Sigríðar Dagg-
ar Auðunsdóttur blaðamanns um
bankasöluna í Fréttablaðinu síð-
asta vor kom fram að þýski bank-
inn Hauck & Aufhauser var aldrei
nefndur til sögunnar sem fjárfest-
ir með S-hópnum.
Þegar samkomulag um viðræð-
ur við S-hópinn var undirritað var
ekki vitað hver erlendi fjárfestir-
inn var en talað um að í hópnum
væru ein eða fleiri erlendar fjár-
málastofnanir.
S-hópurinn átti þá í viðræðum
við útibú franska bankans Société
Genérale í Frankfurt.
Í greinaflokknum kom fram að
S-hópurinn hefði gefið þær skýr-
ingar að erlendi fjárfestirinn vildi
ekki koma fram undir nafni fyrr
en samningar hefðu verið undir-
ritaðir.
Samið var um að S-hópurinn
myndi gefa ráðgjöfum fram-
kvæmdanefndarinnar, HSBC, upp
nafnið til að skera úr um áreiðan-
leika bankans og komst HSBC að
jákvæðri niðurstöðu og talaði um
stóran alþjóðlegan fjárfestinga-
banka. Ekkert nafn var nefnt.
Þegar skrifað var undir samn-
inginn við S-hópinn var tilkynnt
að þýski einkabankinn Hauck
& Aufhauser væri hinn erlendi
fjárfestir og þótti lýsing HSBC á
stórum alþjóðlegum fjárfestinga-
banka ekki passa því þýski bank-
inn er lítill einkabanki.
Umsögnin hefði því frekar átt
við um Société Générale sem var
sjötti stærsti banki í Evrópu en
hópurinn átti, eins og áður segir,
í viðræðum við bankann um að
taka þátt í kaupunum til að byrja
með. S-hópurinn hefur neitað því
að hafa gefið upp annað nafn en
Hauck & Aufhauser.
Vilhjálmur hefur einnig haldið
því fram að þýski bankinn hafi
ekki átt neinn hlut í Eglu en talið
var að S-hópurinn samanstæði af
Vátryggingarfélagi Íslands, Sam-
vinnulífeyrissjóðnum, Eignar-
haldsfélaginu Samvinnutrygging-
um og Eglu hf. sem þýski bankinn
Hauck & Aufhauser ætti helm-
ingshlut í.
Í greinum Sigríðar Daggar
kemur einnig fram að Lands-
bankinn hafi veitt félögum innan
S-hópsins lán upp á 6-8 milljarða
króna til að greiða fyrri greiðslu
S-hópsins til ríkisins fyrir Búnað-
arbankann. ghs@frettabladid.is
Erlendi fjárfestirinn
var lítill einkabanki
Ráðgjafar framkvæmdanefndarinnar töluðu um stóran alþjóðlegan fjárfest-
ingabanka þegar áreiðanleiki erlenda fjárfestisins var kannaður fyrir sölu Bún-
aðarbankans. Þýski bankinn Hauck & Aufhauser er lítill einkabanki.
BÚNAÐARBANKINN SELDUR Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra tekur í hönd Peter
Gatti, bankastjóra Hauck & Aufhauser, við undirritun samninga um sölu Búnaðarbankans í
febrúar 2003. Á myndinni eru einni Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráðherra og Ólafur
Ólafsson, forsprakki S-hópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Rannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík rann-
sakar hvað átti sér stað þegar stór
rúða í einstaklingsíbúð í Fossvogi
splundraðist eldsnemma í gær-
morgun.
Var ekki loku fyrir það skotið
á tímabili að skotið hefði verið á
rúðuna úr riffli en ekkert benti til
þess eftir fyrstu vettvangsrann-
sókn. Splundraðist rúðan bæði inn
og út, sem þykir fremur benda til
þess að hún hafi verið sprengd á
einhvern hátt, en ekki var heldur
útilokað að eðlilegri orsakir væru
fyrir brotinu. Rannsókn verður
haldið áfram.
- aöe
Lögregla rannsakar rúðubrot:
Sprengja ekki
útilokuð
SPURNING DAGSINS
Hanna, var meirihlutinn á
lóðaríi?
„Hvort sem um er að ræða lóðarí, lott-
erí eða aðrar vandræðalausnir meiri-
hlutans í skipulagsmálum er löngu
ljóst að honum er ekki treystandi til
að bjóða fólki tækifæri til að byggja og
búa í Reykjavík.“
Útboð lóða við Úlfarsfell þykir hafa farið út
um þúfur. Hanna Birna Kristjánsdóttir og
félagar í Sjálfstæðisflokknum hafa gagnrýnt
hvernig staðið var að útboðinu.
BELGÍA, AP Landbúnaðarráðherrar
Evrópusambandsins héldu fund í
gær um leiðir til að berjast gegn
útbreiðslu fuglaflensu, en þó
ekkert bóluefni sé til við fugla-
flensu er hægt að gefa fuglunum
almenna flensusprautu og ætla
frönsk yfirvöld að bólusetja tæpa
milljón alifugla.
Sýktir fuglar hafa fundist í
Frakklandi, Þýskalandi, Austur-
ríki, Grikklandi, Ítalíu og Slóveníu
og verið er að rannsaka hvort veir-
an sé komin til Ungverjalands.
Jafnframt hefur hún fundist í átta
öðrum Evrópulöndum sem ekki
eru í ESB. - smk
Fuglaflensa í Evrópu:
Fuglar fá
flensusprautu
BANKASALA Tveir þingmenn
stjórnarandstöðunnar, Sigurjón
Þórðarson, Frjálslynda flokki, og
Lúðvík Bergvinsson, Samfylk-
ingunni, kröfðust þess á Alþingi í
gær að óháð rannsókn færi fram
á sölu ríkisins á Búnaðarbankan-
um.
Halldór Ásgrímsson forsæt-
isráðherra fundaði í gær með
ríkisendurskoðanda um hvort
eitthvað nýtt væri komið fram í
málinu. Vilhjálmur Bjarnason,
aðjúnkt í hagfræði við Háskóla
Íslands, telur íslenska ríkið
hafa verið blekkt í söluferlinu á
Búnaðarbankanum.
Halldór sagði ekki standa til
að rannsaka þetta mál sérstak-
lega þar sem ríkisendurskoðandi
teldi ekki ástæðu til þess. „Það
er ekkert nýtt í þessu máli. Það
hefur verið margfarið yfir þetta
mál. Fjármálaeftirlitið, ríkis-
endurskoðandi og ráðgjafar ein-
kvæðingarnefndar fóru nákvæm-
lega yfir þessi máli. Ég ber fullt
traust til ríkisendurskoðanda. Ef
háttvirtur þingmaður Sigurjón
Þórðarson ber ekki fullt traust
ríkisendurskoðanda, þá vænti ég
þess að hann sé einn um þá skoð-
un, eins og svo margt annað sem
hann segir hér á Alþingi.“
Vilhjálmur Bjarnason mun í
vikunni ganga á fund ríkisend-
urskoðanda og afhenda honum
gögn sem hann hefur undir hönd-
um um aðkomu þýska bankans
Hauck & Aufhäuser í söluferlinu
á Búnaðarbankanum. - mh
Þingmenn deildu hart á forsætis- og iðnaðar- og viðskiptaráðherra á Alþingi:
Vilja rannsókn á bankasölu
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Halldór ræddi sölu bankanna í gær við ríkisendurskoðanda, sem
sagði ekkert nýtt hafa komið fram um málið. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
BANKASALA Guðmundur Hjaltason,
forstjóri Kers, segir að Vilhjálm-
ur Bjarnason aðjúnkt höggvi í
sama knérunn og síðasta sumar
þegar hann haldi því fram að S-
hópurinn hafi beitt blekkingum
við kaupin á Búnaðarbankanum.
Hann hafi ekki komið fram með
nýjar upplýsingar eða sýnt fram á
að þessar ásakanir séu réttar.
„Þetta er rangt. Við buðum
Hauck & Aufhäuser að koma inn
í Eglu og þeir komu inn sem fjár-
festar og lögðu fram sitt hluta-
fé eins og allir aðrir. Ég er með
samninginn sem sýnir það. Ásak-
anir um annað eru úr lausu lofti
gripnar,“ segir hann. - ghs
Forstjóri Kers um bankasölu:
Þetta er rangt
KAUPMANNAHÖFN, AP Per Stig Møll-
er, utanríkisráðherra Danmerkur,
sakaði í gær öfgaöfl um að bera
ábyrgð á ofbeldisfullum mót-
mælum í múslimalöndum vegna
Múhameðsteikninganna. Varaði
ráðherrann við því að al-Kaída-
hryðjuverkanetið væri víst með
að nýta sér æsinginn til að virkja
menn til að fremja hryðjuverk í
Danmörku.
Møller benti á að mótmæl-
in væru að fjara út í mörgum
arabalöndum en virtust enn vera
að færast í aukana í Pakistan og
Tyrklandi. „Öfgaöfl vilja halda
þessu gangandi,“ tjáði ráðherr-
ann fréttamönnum í Kaupmanna-
höfn. „Enginn vafi leikur á því að
ýmsir öfgamenn vilja notfæra sér
ástandið. Al-Kaída gerir það líka
og kyndir undir bálinu.“ Hann
fordæmdi sem „brjálæði“ að mús-
limaklerkur í Pakistan skyldi
hafa sett stórfé til höfuðs teikn-
urum Múhameðsteikninganna
umdeildu, sem birtust upphaflega
í Jótlandspóstinum.
Danir fengu óvæntan liðsauka
í baráttunni fyrir því að múgæs-
ingunni linnti frá Manouchehr
Mottaki, utanríkisráðherra Írans,
sem sagði á fundi í Brussel að bera
yrði klæði á vopnin. „Við styðjum
ekki neitt frekara ofbeldi,“ sagði
hann. - aa
AND-DÖNSK MÚGÆSING Í rénun víða en
öfgaöfl kynda undir henni annars staðar,
að sögn danska utanríkisráðherrans.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Danir hafa ekki bitið úr nálinni vegna Múhameðsteikninganna:
Møller varar við árás al-Kaída