Fréttablaðið - 21.02.2006, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 21.02.2006, Blaðsíða 43
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 2006 ÓL Í TÓRÍNÓ Dagný Linda Kristjáns- dóttir heldur uppi heiðri íslenska skíðaliðsins á ÓL í Tórínó en hún náði aftur ágætum árangri í gær þegar hún varð í 23. sæti af 56 keppendum í risasvigi. Hún kom í mark rúmum tveim sekúndum á eftir Michaelu Dorfmeister sem vann. Dagný Linda var með rás- númer 49 og reif sig því hátt upp töfluna. Dagný Linda hafnaði í sama sæti í bruni ekki fyrir löngu síðan en árangur hennar er einn sá besti sem Íslendingur hefur náð á vetrarólympíuleikum. Það var ekki sami glæsibrag- urinn á þeim Björgvini Björgvins- syni og Kristjáni Una Óskarssyni, sem féllu báðir úr leik í stórsvigs- keppninni, Björgvin eftir aðeins tvö hlið en Kristján Uni örlítið neðar í brautinni. - hbg Þrír íslenskir skíðamenn í eldlínunni í Tórínó í gær: Dagný Linda heldur uppi heiðri Íslands DAGNÝ LINDA Sést hér á fleygiferð í brunkeppninni á dögunum. Hún sýndi mikið öryggi í risasviginu í gær og náði fínum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Í gær var dregið í átta liða úrslitum ensku bikarkeppn- innar en stórleikur hennar er leik- ur Chelsea og Newcastle. Hand- hafinn Arsenal er fallinn úr leik og fær liðið því ekki tækifæri til að verja titilinn en aðeins úrvals- deildarlið eru eftir í keppninni. Leikirnir fara fram 20.-23. mars. DRÁTTURINN: CHELSEA - NEWCASTLE BIRMINGHAM - LIVERPOOL CHARLTON - MIDDLESBROUGH A. VILLA/MAN. CITY - BOLTON/W. HAM Enska bikarkeppnin: Chelsea mætir Newcastle MICHAEL ESSIEN OG CHARLES N´ZOGBIA Berjast hér í leik Chelsea og Newcastle fyrr á tímabilinu. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI Mikið var um dýrð- ir í Houston aðfaranótt mánu- dags þegar árlegur Stjörnu- leikur NBA-deildarinnar fór fram. Austrið hafði betur gegn Vestrinu og vann 122-120 sigur í stórskemmtilegum leik. Segja má að LeBron James hafi eyðilagt handritið að leiknum en hefð er fyrir því að spila uppi heimamann sem er síðan valinn besti maður leiksins. Allt annað var uppi á teningnum í þessum leik þar sem James stal senunni, skor- aði 29 stig og hirti verðlaunin af Tracy McGrady, leikmanni Houston Rockets. McGrady var ekki sáttur við að vinna ekki verðlaunin. Á blaðamannafundi eftir leik- inn hraunaði hann yfir Tim Duncan og Shaquille O’Neal en sá fyrrnefndi glotti bara og gekk út af fundinum. Var það alls ekki viðeigandi endir á Stjörnuhelginni, sem þótti þó heppnast mjög vel í ár. Stjörnuleikur NBA: James stal senunni FÓTBOLTI KR tókst ekki að landa sigri gegn norska liðinu Brann á æfingamóti á La Manga á Spáni en leikurinn fór fram í gær. Björgólfur Takefusa skoraði gott mark fyrir KR en Brann tókst að jafna leikinn. Vesturbæjarliðinu tókst ekki að bæta við mörkum þrátt fyrir urmul góðra færa en Garðar Jóhannsson brenndi meðal annars af vítaspyrnu undir lok leiksins. „Við spiluðum frábæran bolta í þessum leik og vorum betri allan leikinn. Það var algjör synd að ná ekki að klára leikinn en við fengum svo sannarlega tækifæri til þess að gera út um hann og þetta var því svekkjandi,“ sagði Teitur Þórðarson, þjálfari KR, við Fréttablaðið eftir leikinn. „Aftur er liðið að spila mjög vel en uppsker ekki laun erf- iðisins en liðið hefur staðið sig virkilega vel hér á La Manga,“ sagði Teitur en KR fór stiga- laust í gegnum riðilinn og lenti því í neðsta sæti eftir töp gegn Tromsö og Krylia. Teitur segir þó að KR hafi vakið mikla athygli á Spáni. „Liðið hefur komið mönnum mikið á óvart. Kollegar mínir undrast hversu marga góða leikmenn liðið hefur og spyrj- ast reglulega fyrir um ákveðna leikmenn. Það kæmi mér ekki á óvart ef einhverjar fyrirspurnir bærust um að fá leikmenn til sín en ég hef engan áhuga á því að missa neinn úr hópnum mínum. Við erum ekki í söluferð,“ sagði Teitur að lokum en KR spilar lokaleik sinn á fimmtudaginn þegar það mætir norska liðinu Odd Grenland. - hþh KR gerði 1-1 jafntefli gegn Brann á La Manga: Algjör synd að klára ekki þennan leik

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.