Fréttablaðið - 21.02.2006, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 21.02.2006, Blaðsíða 22
 21. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR4 Bailine vaxtarmótunarmeðferð NÝTT á Íslandi Eru línurnar vandamál ? Við bjóðum þér upp á ÓKEYPIS PRUFUTÍMA í tölvustýrðu þjálfunartæki á meðan þú liggur og slakar á í notalegu umhverfi. Viltu grenna þig og minnka ummálið, nú hefur þú tækifærið. Hringdu núna í síma 568 0510 og kynntu þér málið. Þú hefur engu að tapa nema sentimetrum. Vegmúli 2 108 Reykjavík sími 568 0510 www.bailine.is Fyrir konur 18 ára og eldri. Dagur B. Eggertsson lifir annasömu lífi en hugsar þó um heilsuna. Hann segist hafa gaman af boltaíþróttum en telur góðan svefn lykilinn að því að standast álag. „Ég æfði bæði handbolta og fót- bolta með Fylki sem barn. Það má segja að ég hafi hætt á toppnum, fimmtán eða sextán ára,“ segir Dagur léttur í bragði og bætir við að hann hafi meira gaman af boltaíþróttum en öðrum greinum. „Ég hef aldrei almennilega náð að taka ástfóstri við lyftingatæki eða hlaupabretti.“ Auk boltaíþróttanna hjólar Dagur töluvert og gengur mikið. „Ég geng oftast til vinnu. Þó að ég sé reyndar lítið á spítalanum þessa dagana fær maður hvergi betri hreyfingu en þar, gangarnir eru svo langir.“ Hvað mataræði varðar segir Dagur að fjölskyldan reyni að borða fjölbreyttan mat. Aðspurð- ur um uppáhaldsmat segir hann það mjög sveiflukennt. „Það eru stundum fiskur og sjávarréttir. Aðra daga kjöt og þungur matur og þess á milli koma pasta- og grænmetisréttir sterkir inn,“ segir Dagur og heyra má að fjöl- breytnin er í fyrirrúmi. Það dylst engum að Dagur lifir annasömu lífi um þessar mundir. Hann mælir með góðum svefni til að standast álag. „Góður svefn skiptir mestu máli. Það skiptir miklu að geta aftengt sig og látið hugann reika, þó að það takist nú misvel. Ég held að það skipti líka máli að vera í góðu formi en svefn er lykillinn, að ógleymdu því að slaka vel á í herðum. Ég held að það sé vanmetið. Ég skora á fólk að prófa eitt næst þegar það stendur í strætóskýli og er mjög kalt - að slaka á í herðunum og finna hvað það breytir miklu,“ segir Dagur og það er greinilega stutt í lækninn þó að stjórnmála- maðurinn sé meira áberandi þessa dagana. Fyrir skömmu reyndu borgar- stjóraefni stjórnmálaflokkanna með sér í körfubolta. Dagur var þar á meðal og sýndi ágæta takta. Skyldi hann aldrei hafa dreymt um að komast í NBA-körfu- boltann? „Nei, ég var svo lítill og visinn fram eftir aldri að það hvarflaði aldrei að mér,“ svar- ar hann og skellir upp úr. „Ég naut þess hins vegar að hormón- um var almennt útdeilt í stórum skömmtum í Árbænum. Jafnaldr- ar mínir voru því stórir og stæði- legir þannig að okkur gekk vel í körfubolta. Það var samt ekki hæð minni að þakka.“ Þrátt fyrir lítinn tíma gefur Dagur sér tíma til að fylgjast með íþróttum. „Það er reyndar orðið full vinna, framboðið er svo mikið. Svo er mikið hátíðaár núna út af heimsmeistarakeppn- inni og enska meistaradeildin breytir líka miklu. Ég er gamall Liverpool-aðdáandi en held nú samt með mínum mönnum þegar þeir keppa. Það er aldrei leiðin- legt þegar Eiði Smára gengur vel,“ segir Dagur og bætir við að lokum að Fylkir verði þó alltaf hans lið. einareli@frettabladid.is Sefur vel til að standast álag Dagur segir svefn lykilinn að því að standast daglegt álag. Hann telur líka stórlega vanmetið að slaka á í herðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lyfjaframleiðandinn Astra- Zeneca hefur ákveðið að taka blóðþynningarlyfið Exanta af markaði þar sem lyfið er talið valda lifrarskemmdum. Fyrir skömmu tilkynnti bresk- sænski lyfjaframleiðandinn Astra- Zeneca að blóðþynningarlyfið Exanta yrði tekið af markaði. Lyfið hefur um nokkurt skeið ein- göngu verið selt í Evrópu en árið 2004 lagðist banda- ríska lyfjaeft- irlitið gegn því að lyfið yrði selt þar- lendis. A s t r a - Zeneca ákvað að taka lyfið af markaði eftir að vísbendingar bentu til að lyfið kunni að valda lifrarskemmdum. Niðurstöður nýlegra rannsókna, sem gerðar voru á vegum fyrir- tækisins, bentu til þess að lang- tímanotkun lyfsins gæti aukið verulega hættuna á alvarlegum lifrarskemmdum. Þó skal tekið fram að engar vísbendingar eru um að notkun lyfsins í ellefu daga eða skemur auki hættu á lifrar- skemmdum. Blóðþynningar- lyf af markaði Blóðþynningarlyfið Exanta verður tekið af markaði í Evrópu. Tveir nýir fræðslu- bæklingar um kynlíf og kynhegðun ungl- inga eru komnir út. Bæklingarnir Sam- skipti foreldra og barna um kynlíf, og Kynlíf - unglingar eru nýkomnir út. Fyrri bæklingurinn fjallar um mikilvægi þess að foreldrar fræði börn sín um kynlíf og hvaða leiðir megi fara við fræðsluna. Seinni bæklingurinn fjallar um jákvæðar og nei- kvæðar hliðar kynlífs og hvert unglingar geti leitað til þess að fá upplýsingar um kynlíf. Höfundar bækling- anna eru Dagbjört Ásbjörnsdóttir, mann- fræðingur og MA í kynlífs- og kynjafræð- um, Sigurlaug Hauks- dóttir, félagsráðgjafi og MA í uppeldis- og menntun- arfræði, og Guðbjörg Edda Her- mannsdóttir félagsráðgjafi. Þær hafa verið með fræðslufundina Tölum saman – samskipti for- eldra og barna um kynlíf fyrir foreldra og nemendur í 7.-10. bekk í grunnskólum síðan 2002 og ákváðu í framhaldi af því að ráðast í gerð bæklinganna. Nánari upplýsingar um bæk- lingana fást hjá Lýðheilsustöð þar sem einnig er hægt að panta þá. Unglingar og kynlíf Mikilvægt er að börn og unglingar fái góða fræðslu um kynlíf. Er maginn vandamál? Stress, þreyta og sérstakur matur getur sett magann úr jafnvægi. Óþægindi lýsa sér oft sem nábítur, brjóstsviði, vindgangur, harðlífi og niðurgangur. Þetta þykir öllum afar óþægilegt og líður þá illa í öllum líkamanum. Silicol fæst í apótekum NFS ER Á VISIR.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.