Fréttablaðið - 21.02.2006, Síða 14

Fréttablaðið - 21.02.2006, Síða 14
 21. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR14 fréttir og fróðleikur 42,3 prósent þjóðarinnar eru nú andvíg því að Ísland sæki um aðild að Evrópu- sambandinu. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 34,3 prósent eru því fylgjandi að Ísland sæki um aðild en rúm 23 prósent hafa ekki gert upp hug sinn. Í fyrstu viku febrúar spáði Hall- dór Ásgrímsson forsætisráðherra því að árið 2015 yrði Ísland gengið í Evrópusambandið. Vilji þjóðar- innar virðist ekki fylgja mati Hall- dórs að þessu leyti, að minnsta kosti telja rúm 55 prósent af þeim sem tóku afstöðu í nýrri skoðana- könnun Fréttablaðsins að Ísland eigi ekki að sækja um aðild. 44,8 prósent telja að sækja eigi um. Ef tekið er tillit til þeirra sem ekki hafa gert upp hug sinn segjast 34,3 prósent vera því fylgjandi að Íslandi sæki um aðild að samband- inu, 42,3 prósent eru því mótfallin og 23,4 prósent eru óákveðin. Jákvæðara utan höfuðborgar Karlar virðast frekar en konur hafa gert upp hug sinn hvað varð- ar aðild að Evrópusambandinu og eru frekar mótfallnir aðild en konur. 34,6 prósent karla eru fylgjandi aðild, 46,6 prósent eru því mótfallin en 18,8 prósent hafa ekki gert upp hug sinn. Af konum eru 33,9 prósent fylgjandi umsókn um aðild, 38,0 prósent eru því mót- fallin og 28,1 prósent er óákveðið. Fólk sem býr utan höfuðborg- arsvæðisins virðist bæði jákvæð- ara gagnvart því að sækja um aðild, sem og frekar búið að gera upp hug sinn. 37,5 prósent þeirra vilja að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu, 41,6 prósent eru því mótfallin og 20,8 prósent eru óákveðin. Af þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu segir 32,1 prósent að Ísland eigi að sækja um aðild, 42,7 prósent eru á móti því og 25,2 prósent eru óákveðin. Mestur stuðningur meðal kjósenda Samfylkingar Hægt er að greina stuðning við aðild að Evrópusambandinu eftir því hvaða flokk svarendur segj- ast myndu kjósa ef boðað yrði til kosninga nú. Þó verður að hafa í huga að þetta er fremur vísbend- ing um hug stuðningsfólks stjórn- málaflokkanna, því þegar búið er að greina svörin svo eru þau orðin nokkuð fá og vikmörkin því mun hærri. Mestur er stuðningur við aðild að Evrópusambandinu meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Samfylkinguna og segjast 42,4 prósent þeirra vilja að Ísland sæki um aðild. 35,4 prósent stuðnings- fólks Samfylkingar eru því mót- fallinn og 22,2 prósent segjast enn óákveðin. Það þarf ekki að koma á óvart að stuðningur við aðild sé mestur innan þess flokks, þar sem það er á stefnuskrá flokksins að láta reyna á aðildarviðræður við Evrópusambandið. Minnstur stuðningur meðal kjós- enda Frjálslynda flokksins Þeir sem helst eru andvígir því að Ísland sæki um aðild að Evrópu- sambandinu eru stuðningsmenn Frjálslynda flokksins, en flokk- urinn segir í stefnuskrá sinni að aðild komi ekki til greina á meðan reglur sambandsins séu óbreyttar í fiskveiðimálum. 64,7 prósent stuðningsmanna Frjálslynda flokksins vilja ekki að Ísland sæki um aðild, 29,4 prósent eru því fylgjandi en einungis 5,9 prósent eru óákveðin. Deildar meiningar meðal kjósenda Vinstri grænna Vinstrihreyfingin - grænt framboð er einnig mótfallin aðild að Evrópu- sambandinu í stefnuskrá sinni, þar sem segir: „hugsanlegur ávinning- ur af aðild Íslands réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað.“ Kjósendur Vinstri grænna eru ekki jafn eindregið mót- fallnir aðild að sambandinu ef marka má þessa skoðanakönn- un. 39,1 prósent þeirra sem segj- ast myndu kjósa flokkinn styður umsókn að Evrópusambandinu. Jafnstór hluti, 39,1 prósent, er andvígur en 21,7 prósent segjast óákveðin. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks sammála flokknum Á síðustu landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins segir að flokkurinn telji aðild að sam- bandinu ekki þjóna hagsmunum þjóðarinnar eins og málum sé nú háttað. Meirihluti stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins er sammála flokknum og segjast 50,5 prósent vera mótfallin því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. 32,5 prósent eru því fylgjandi og 17,0 prósent eru óákveðin. Tæplega helmingur kjósenda Fram- sóknarflokks andvígur aðild Formaður Framsóknarflokks og forsætisráðherra hefur spáð því að Ísland verði gengið í sambandið fyrir 2015. Á síðasta flokksþingi var samþykkt að halda áfram vinnu við mótun samningsmark- miða og hugsanlegs undirbúnings aðilarviðræðna við sambandið. Niðurstöður þeirrar vinnu skal leggja fyrir næsta flokksþing til kynningar. Deildar meiningar virðast meðal stuðningsmanna flokksins, en tæplega helmingur, 48,5 pró- sent, er því andvígur að sækja um aðild. 36,4 prósent segjast hug- myndinni fylgjandi og 15,2 pró- sent hafa ekki gert upp hug sinn. Af þeim sem ekki gáfu upp hvaða flokk þeir myndu kjósa, yrði boðað til alþingiskosninga nú, segjast 30,5 prósent vilja að Ísland sæki um aðild að sambandinu. 39,4 prósent segjast ekki vilja að sótt verði um og 30,2 prósent eru óákveðin. Hringt var í 800 manns laug- ardaginn 18. febrúar og skiptust svarendur jafnt á milli kynjanna og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: „Á Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu?“ 75,1 prósent svarenda svaraði spurn- ingunni játandi eða neitandi. 15 neituðu að svara. 98,1 prósent tók því afstöðu til spurningarinnar eða var óákveðið. FRÉTTASKÝRING SVANBORG SIGMARSDÓTTIR svanborg@frettabladid.isjúní 2002 apríl 2003 júlí 2003 apríl 2004 september 2005 18. febrúar 2006 Á ÍSLAND AÐ SÆKJA UM AÐILD AÐ EVRÓPUSAMBANDINU? Kannanir Fréttablaðsins og Gallup 37,0% 26,0% 27,8% 30,1% 42,3% 34,3% 23,4% 19,0% 43,0% 37,0% Já Nei Óákveðnir Fleiri andvígir aðild en fylgjandi Svona erum við Svonefnd þjónustutilskipun Evrópu- sambandsins var samþykkt á Evrópu- þinginu fyrir helgi, eftir að málamiðlun hafði verið náð um umdeildustu atriði hennar. Þessi væntanlega Evrópulög- gjöf mun einnig taka gildi á Íslandi í gegnum EES-samninginn. Um hvað snýst þjónustutilskipun ESB? Evrópulög sem miða að því að opna innri markað Evrópu fyrir samkeppni yfir landamæri á sviði þjónustuvið- skipta. Margvísleg höft hamla að óbreyttu gegn því að fyrirtæki í einu landi bjóði upp á þjónustu í öðru landi sem þó á aðild að innri markaðnum. Dæmi um slík höft er að fyrirtæki með höfuðstöðvar í öðru landi sé gert að setja upp dóttur- fyrirtæki sem þurfi að sækja um leyfi til yfirvalda í því landi, greiða hærri skatta eða sæta íþyngjandi tungumálaákvæðum. Til hvaða þjónustu nær tilskipunin? Í frumvarpinu sem samþykkt var á Evrópuþinginu eru ýmis svið þjónustu undanskilin gildissviði tilskip- unarinnar. Þar á meðal er póstþjónusta, útvarps- og sjónvarpsrekstur, skammtíma vinnumiðlun, heilbrigðisþjónusta, lögfræðiþjónusta og félagsþjón- usta, svo sem barnaumönnun. Tilskipunin nær engu að síður til margra starfssviða, svo sem fyrirtækjaráð- gjafar, arkitektaþjónustu, byggingastarfsemi og ótal annarra. Hvenær tekur tilskipunin gildi? Tilskipunin verður rædd á leiðtogafundi ESB nú í mars. Austurríska ríkisstjórnin, sem fer með formennskuna í ESB þetta misserið, vill að pólitískri sátt verði náð um endanlega mynd tilskipunarinnar fyrir mitt árið. Þá fer frumvarpið aftur til Evrópuþingsins áður en það getur öðlast lagagildi, sem væntanlega verður ekki fyrr en í ársbyrjun 2009. Vænta má að EES-löndin Ísland, Noregur og Liechtenstein innleiði tilskipunina í sína löggjöf um svipað leyti og ESB-ríkin 25. FBL GREINING: ÞJÓNUSTUTILSKIPUN ESB Samkeppni í þjónustuviðskiptum Á Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu? Eftir flokksstuðningi Já Nei Óákveðin(n) Framsóknarflokkur 36,4 48,5 15,2 Sjálfstæðisflokkur 32,5 50,5 17,0 Frjálslyndi flokkurinn 29,4 64,7 5,9 Samfylking 42,4 35,4 22,2 Vinstri grænir 39,1 39,1 21,7 Gefa ekki upp 30,5 39,4 30,2 (í prósentum) Já 36,4% Gefa ekki upp Já 32,5% Já 29,4% Já 42,4% Já 39,1% Já 30,5% Nei 48,5% Nei 50,5% Nei 64,7% Nei 35,4% Nei 39,1% Nei 39,4% Óákv. 15,2% Óákv. 17,0% Óákv. 5,9% Óákv. 30,2% Óákv. 21,7% Óákv. 22,2% Á ÍSLAND AÐ SÆKJA UM AÐILD AÐ EVRÓPUSAMBANDINU? Eftir flokksstuðningi VIÐ FÁNA EVRÓPUSAMBANDSINS Íslendingar virðast ekki sammála um hvort sækja eigi um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Mikil umræða hefur átt sér stað um lóðaúthlutanir Reykjavíkurborgar í Úlfarsfelli eftir að einn maður átti hæsta tilboð í 39 einbýlishúsalóðir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn. Er hægt að draga útboðið til baka þó einn hafi keypt svo margar lóðir? Ég skal ekkert um það segja. Það verður rætt í borgarráði á fimmtudag og því er of snemmt fyrir mig að segja hvort og þá með hvaða hætti er hægt að komast úr þessu klúðri. Hvernig vilt þú að staðið verði að úthlutunum? Ég tel að borgin eigi að ráðstafa lóðum á sanngjörnu verði. Við eigum ekki að vera að setja mikla álagningu á það verð og þá munu þeir sem eru í alvöru að hugsa um að kaupa lóðir gefa sig fram en síður þeir sem vilja hagnast á lóðabraski. En borgin er að ráðgera samkvæmt eigin fjárhagsgerðum að græða um fimm milljarða á þessu lóðabraski á árunum frá 2006 til 2009. Og það eru bara húsbyggjendur sem greiða þann kostnað. Málið er að það þarf að tryggja nægt framboð lóða. SPURT OG SVARAÐ LÓÐAÚTHLUTUN Borgin græð- ir milljarða VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Oddviti Sjálfstæðis- flokks í Reykjavík. 14 5 76 Þykkvalúra Langlúra Stórkjafta Sandkoli Skrápflúra 17 18 53 > Afli í janúar. Bráðabirgðatölur úr Lóðs í tonnum Heimild: Hagstofa Íslands

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.