Fréttablaðið - 27.02.2006, Side 6
6 27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR
Skeifan 4
S. 588 1818
KABÚL, AP Fangar í rammgirtasta
öryggisfangelsinu í Kabúl í Afgan-
istan gerðu uppreisn í gær og náðu
byggingum fangelsisins að mestu
leyti á sitt vald. Hundruð
afganskra hermanna umkringdu
fangelsið og voru þeir vopnaðir
skriðdrekum og sprengjuvörpum.
Uppreisnin hófst á laugardags-
kvöldið í einni af álmum fangels-
ins, þar sem um það bil 1.300 af
samtals 2.000 föngum eru hafðir í
haldi. Uppreisnin braust út í kjöl-
far þess að fangarnir neituðu að
fara í nýja fangabúninga, sem þeir
áttu að klæðast til þess að koma í
veg fyrir flóttatilraunir. Í síðasta
mánuði tókst sjö föngum að sleppa
með því að dulbúa sig sem gesti.
Afganskir embættismenn segja
að meðal fanganna í þessari álmu
séu um það bil 350 meðlimir Al
Kaída og talibanahreyfingarinnar.
Abdul Salaam Bakshi, yfirmaður
fangelsismála í Afganistan, sakar
þessa menn um að hafa hvatt hina
fangana, sem flestir eru venjuleg-
ir glæpamenn, til þess að gera
uppreisn.
Að sögn hans tókst föngunum
ekki að sleppa út úr álmunni, en
þeim tókst að neyða alla fanga-
verðina til þess að fara út. Byssu-
skot hljómuðu reglulega frá fang-
elsinu allan daginn í gær. Hundruð
lögreglumanna og hermanna voru
kölluð á staðinn til þess að koma í
veg fyrir að föngunum tækist að
brjótast út.
„Við höfum umkringt fangelsið.
Það er vonlaust að sleppa út,“ sagði
Mohammed Oasin Hashimzai,
aðstoðardómsmálaráðherra lands-
ins.
Engin vitneskja var um mann-
fall þar sem fangarnir höfðu stóra
hluta fangelsins á sínu valdi.
Afganskir fjölmiðlar héldu því
fram að nokkrir hefðu látist og
tugir manna væru særðir.
Hashimzai, sem jafnframt
tekur þátt í samningaviðræðum
við fangana, sagði enn fremur að
um það bil hundrað uppreisnar-
mannanna hefðu komist yfir í
næstu álmu fangelsisins, þar sem
um það bil sjötíu konur væru hafð-
ar í haldi.
Viðræður hafa engan árangur
borið, en þeim verður haldið áfram
í dag.
„Því miður er engin eining í
röðum fanganna og þeir hafa ólík-
ar kröfur. Það er enginn leiðtogi
sem getur talað við okkur,“ sagði
Hashimzai. gudsteinn@frettabladid.is
VIÐ ÖRYGGISFANGELSIÐ Í KABÚL Hermönnum tókst að umkringja fangelsið áður en föng-
unum tókst að sleppa út. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fangar í uppreisn
fastir innan múra
Hermenn umkringdu rammgirt fangelsi í Afganistan eftir að fangar náðu
stærstum hluta fangelsisins á sitt vald. Liðsmenn Al Kaída og talibana eru sagð-
ir í forystu uppreisnarinnar en fangarnir voru mótfallnir nýjum búningum.
HEIMSFRIÐUR Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur líst vel á um hug-
myndir Yoko Ono, ekkju Bítilsins
Johns Lennon, um að halda árlega
friðarviku á íslandi, tengda afmæl-
isdegi Lennons hinn 9. október,
þar sem þeim sem stuðlað hafa að
heimsfriði væri veitt sérstök frið-
arverðlaun.
„Þetta er spennandi hugmynd
sem snertir á mikilvægu málefni
og allar slíkar hugmyndir ber
stjórnvöldum að skoða og kanna
hvort þær séu raunhæfar og skili
árangri.“
Yoko Ono kynnti hugmyndina á
Kjarvalsstöðum á laugardag, við
sama tilefni og hún ánafnaði
Reykjavíkurborg sérstaka friðar-
súlu úr gleri. - bs
Ráðherra um friðarverðlaun:
Hugmynd sem
ber að skoða
YOKO ONO Vill halda árlega friðarviku á
Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BARNAVERND Barnahúsið hefur
fengið verðlaun alþjóðlegu barna-
verndarsamtakanna ISPCAN sem
veitt eru fyrir frumkvæði og
framúrskarandi framlag á ýmsum
sviðum barnaverndar. ISPCAN
eru einu þverfaglegu heimssam-
tökin á sviði barnaverndar og hafa
að markmiði að vinna gegn hvers
konar ofbeldi og vanrækslu
barna.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, segir að tvær
ástæður hafi verið taldir til rök-
stuðnings fyrir því að Barnstofa
hlyti verðlaunin. Annars vegar
hafi Barnahúsið valdið straum-
hvörfum á Íslandi í þverfaglegum
starfsháttum við meðferð kyn-
ferðisbrota á börnum. Hins vegar
hafi Barnahús vakið mikla eftir-
tekt í Evrópu, þá sérstaklega á
Norðurlöndunum og stuðlað að
fagþróun þar.
Bragi vonast til að verðlaunin
verði til þess að Barnahús fái full-
an stuðning bæði almennings og
stjórnvalda. ,,Það er von mín að
verðlaunin taki af tvímæli um
hversu faglegt og gott úrræði
Barnahúsið er og það fái meiri
skilning, stuðning og traust.“ - sha
Barnahúsið hlýtur alþjóðleg verðlaun sem veitt eru fyrir framlag til barnaverndar:
Hafa vakið eftirtekt í Evrópu
BRAGI GUÐBRANDSSON Segir verðlaun ISPCAN mikill heiður fyrir Barnahús en þau verða
afhent í haust.
HEIMSÓKN Forseti Alþingis, Sól-
veig Pétursdóttir, sækir fund
kvenþingforseta sem Alþjóðaþing-
mannasambandið skipuleggur í
tengslum við 50. fund kvenna-
nefndar Sameinuðu þjóðanna hinn
27. febrúar í New York. Á fundin-
um verður rætt um stöðu kvenna í
stjórnmálum og aðgerðir til að
auka þátttöku þeirra.
Alþjóðaþingmannasambandið
heldur jafnframt þingmannafund
1. mars um jafnrétti kynjanna og
framlag þjóðþinga. Auk forseta
Alþingis munu Ásta Möller og
Jóhanna Sigurðardóttir sitja fund-
inn. - sha
Sólveig Pétursdóttir til New York:
Fer á fund með
kvenforsetum
VINNUMARKAÐUR Litháíska konan
Rima Kasperaviciene, sem starf-
aði hjá BeBe Vöruhúsi í Kópavogi
og leitaði til ASÍ vegna kjaramála
sinna, er farin
heim til Litháen.
VR hefur óskað
eftir því að BeBe
Vöruhús og Ágúst
Grétarsson, vinnu-
veitandi konunnar
í Litháen, leiðrétti
kjör hennar en
ekkert hefur gerst
í því. Elías Magnússon, forstöðu-
maður kjaramálasviðs VR, segir
að litið sé svo á að henni hafi verið
sagt upp fyrirvaralaust og verði
látið reyna á það mál.
„Þetta er í lögfræðilegri inn-
heimtu. Ef sáttir takast ekki verður
því bara stefnt,“ segir hann. - ghs
VR og BeBe Vöruhús:
Rima er farin
heim til Litháen
RIMA KASPERA-
VICIENE.
KJÖRKASSINN
Er til fátækt á Íslandi?
Já 88%
Nei 12%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að leyfa útlendingum að fjár-
festa í íslenskum sjávarútvegi?
Segðu þína skoðun á visir.is
LONDON, AP Breska lögreglan hefur
fundið jafnvirði rúmlega 150 millj-
óna króna, sem hún telur að sé hluti
af sex milljarða króna fengnum úr
ráninu úr seðlageymslu Securitas í
Kent í síðustu viku. Þýfið fannst í
hvítum sendiferðabíl sem kom í leit-
irnar á föstudagskvöld. Í bílnum
voru einnig byssur, lambhúshettur
og hlífaðarbúnaður. Þá fannst
geymslubúr sem peningarnir voru í
og rannsakar tæknideild lögreglu
bílinn og búrinn. Tveir menn eru
enn í haldi lögreglu vegna málsins.
Risaránið í Bretlandi:
Búið að finna
hluta fengsins
SVÍÞJÓÐ Jafnaðarmaðurinn Tobias
Gerdås hefur birt samsetta mynd af
Fredrik Reinfeldt, leiðtoga Sænska
hægriflokksins, á bloggsíðu sinni
þar sem hann er gerður að barnaníð-
ingi. Í texta segir „Greiddu barn-
aníðingnum þínum atkvæði“.
Reinfeldt hefur brugðist harka-
lega við myndinni en hann hefur
orðið fyrir nafnlausum árásum af
hendi annars jafnaðarmanns sem
starfaði fyrir sænska jafnaðar-
mannaflokkinn upp á síðkastið.
Báðir hafa þessir menn beðist
afsökunar. - ghs
Jafnaðarmenn í Svíþjóð:
„Kjóstu barna-
níðinginn“
JERÚSALEM, AP Ismail Haniyeh, leið-
togi Hamas-hreyfingarinnar í Palest-
ínu, segir það mistúlkun á orðum
sínum að Hamas geti hugsað sér að
semja um frið við Ísrael að ákveðn-
um skilyrðum uppfylltum. Hann
segir að Hamas hafi eingöngu áhuga
á að semja við Ísrael um vopnahlé til
lengri tíma.
„Ég sagði ekki neitt um að viður-
kenna Ísrael,“ sagði Haniyeh í gær,
en á laugardaginn höfðu fjölmiðlar
túlkað ummæli hans sem svo að
Hamas myndi semja við Ísrael um
„frið í áföngum“ ef Ísrael drægi herl-
ið sitt að landamærunum frá 1967.
Mahmoud Abbas, forseti Palest-
ínustjórnar, fól Haniyeh það í síð-
ustu viku að mynda nýja stjórn Pal-
estínumanna í kjölfar þess að
Hamas-hreyfingin vann sigur í kosn-
ingum.
Þá sagði Tzipi Livni, starfandi
utanríkisráðherra Ísraels, í gær að
Mahmout Abbas „skipti engu máli“
lengur, þar sem Abbas er fulltrúi
Fatah-hreyfingarinnar, sem tapaði í
kosningum Palestínumanna. Ísraels-
menn ættu fyrst og fremst kröfur á
hendur Hamas um að hætta hryðju-
verkum og viðurkenna tilverurétt
Ísraels. ■
ISMAIL HANIYEH Leiðtogi Hamas og verðandi forsætisráðherra Palestínumanna brosti
breitt þegar hann kom til Gaza-borgar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leiðtogi Hamas-hreyfingarinnar kveðst vilja semja við Ísraelsmenn:
Viljum vopnahlé, ekki frið
Fimm teknir fyrir hraðakstur
Lögreglan í Stykkishólmi stöðvaði fimm
ökumenn fyrir of hraðan akstur í gær.
Sá sem ók hraðast var 19 ára piltur sem
mældist á 142 kílómetra hraða. Hann
hefur áður verið sviptur ökuleyfi vegna
hraðaksturs.
LÖGREGLUFRÉTT