Fréttablaðið - 27.02.2006, Side 12
27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Hafi einhver haldið að
enginn hefði áhuga leng-
ur á fiski og slori vestur
á fjörðum ætti sá hinn
sami að skreppa vestur á
Suðureyri í sumar þegar
verkefnið Sjávarþorpið
Suðureyri verður komið á
laggirnar. Staðreyndin er
nefnilega sú að þar vestra
sitja erlendir ferðamenn
um tækifærin til að fá að
upplifa þennan vestfirska
veruleika.
„Þetta verkefni snýst um að leyfa
ferðamönnum að fara í frysti-
húsið og fara á sjó með vönum
sjómönnum til að kynnast lífi
íbúa í litlu sjávarþorpi á Íslandi
með fræðslu, upplifun og þátt-
töku,“ segir Elías Guðmundsson,
ferðamálafrömuður þar vestra,
sem er einn af forvígismönnum
verkefnisins. „Svo getur fólk
gefið þorskinum að borða í lón-
inu við þorpið. Þetta lón myndað-
ist þegar verið var að leggja veg-
inn en þar hefur þorski verið
sleppt og hann er orðinn það
gæfur að hann étur jafnvel úr
lófa.“ Hægt verður að kaupa sér-
stakt góðgæti fyrir þann gula í
söluskála Esso.
„Svo geta menn komið með
aflan í eldhúsið á veitingastað
bæjarins og eldað ofan í sig með
þrælvönum kokkum,“ segir Vest-
firðingurinn.
Ferðamennirnir geta farið í
dagstúr eða styttri túr með sjó-
mönnum eða farið í sjóstang-
veiði. Dagsferðin kostar 15.000
fyrir manninn og ef farið er í
styttri ferð er samið um verð á
hafnarbakkanum. Vettvangsferð
í frystihúsið kostar 1.000 krón-
ur.
„Við höfum verið að prufa
þetta síðustu tvö ár og reynslan
er sú að það fjölmargir erlendir
ferðamenn sækja í þetta og nú
ætlum við að gera þetta enn
aðgengilegra,“ segir Elías en
hann hefur rekið gistiheimili á
Suðureyri auk þess að leiða
ferðamenn í vestfirskan veru-
leika. „Fyrirtækið Hvíldarklett-
ur, sem ég er reyndar í, vann
hugmyndina og hún fékk viður-
kenningu frá nýsköpunar- og
vöruþróunarsjóði Samtaka ferða-
þjónustunnar síðastliðið haust.
Þetta er þó samvinnuverkefni og
allir sem hagsmuna eiga að gæta
geta tekið þátt í því,“ segir
Elías. jse@frettabladid.is
„Það er svosum allt gott að frétta af mér og
okkur hérna í sveitinni. Mér sýnist að bænd-
urnir hérna um kring séu við það að ljúka vor-
verkum. Margir þeirra sitja bara með hendur í
skauti og bíða sumarsins. Þetta er óvenjulegt
veðurlag. Það eru farnir að springa
út krókusar,“ segir Flosi Ólafsson
þegar blaðamaður slær á þráðinn
til hans um helgina. Hann seg-
ist njóta veðurblíðunnar með
því að njóta hennar, annað sé
ekki hægt.
En er Flosi að skrifa þessa
dagana? „Nei, ég held að
það sé vissara fyrir mig að
halda að mér höndum við
skriftir. Ég myndi örugglega
setja mig alveg á hliðina.
Skatturinn er að drepa mig af því að bókin
mín seldist betur en ég hafði reiknað með.“
En er þá ekki góð hugmynd að skrifa undir
dulnefni, spyr blaðamaður. „Þeir myndu kom-
ast að því, það leynir sér ekki minn stíll. Það
þýðir ekkert að reyna að ljúga sig út úr því.
Það sjá allir hver þetta er. Svo er ég ofan í
kaupið orðinn of gamall til að breyta um
stíl. En segðu mér, hvernig fór leikurinn
með Barcelona og enska liðinu?“
Blaðamaður segir Flosa
að Barcelona hafi unnið
2-1 og hann er fljótur til. „Já,
það hlaut að vera. Það er
ástæðan fyrir því að þetta
er hvergi að sjá í fréttum.
Þetta er mikill harmur. Þetta
er lið Eiðs Smára.“
Eftir að hafa frætt Flosa um nýjustu fréttir
í völdum málaflokkum er spurt hvort hann
sé eitthvað að ríða út þessa dagana. „Það er
heilmikið verið að temja hér hjá okkur. Við
búum hérna í nábýli, ég og Ólafur sonur minn
og Flosi Ólafsson, afabarnið sem er orðinn
afar liðtækur tamningamaður. Þeir eru núna
með efnilegar merar sérstaklega, fjögurra og
fimm vetra. Það er heilmikið fjör í því. Ég hef
aftur á móti verið slæmur í kransinum, svo-
leiðis að ég er ekki búinn að taka neina hesta
á hús. Geri það ekki fyrr en um páska.“ Flosi
hefur þetta að segja að lokum. „Þetta er allt
voða gott nema maður er að geispa golunni
bara. Maður er að taka síðustu andköfina.
En maður er alveg öruggur um að komast á
góðan stað og þar getur maður farið að skrifa
aftur,“ segir Flosi og kveður.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? FLOSI ÓLAFSSON LÍFSKÚNSTNER
Of gamall til að breyta um stílÞað var svosem auð-
vitað
„Mér hefur ekki verið
boðinn starfslokasamn-
ingur, en ég hef hins vegar
beðið lögfræðing minn að
kanna möguleika á slíkum
samningi, eins og algengt er
þegar fólk hættir störfum.“
ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR, SEM
VILL HÆTTA SEM SKÓLAMEISTARI
MENNTASKÓLANS Á ÍSAFIRÐI.
FRÉTTABLAÐIÐ.
Bévaðir bankarnir
„Bankarnir hafa boðið í
okkar bestu viðskiptavini og
við höfum setið eftir með
veikara lánasafn en áður
fyrir vikið.“
HERDÍS SÆMUNDARDÓTTIR,
STJÓRNARFORMAÐUR BYGGÐA-
STOFNUNAR, UM TAP STOFNUNAR-
INNAR. MORGUNBLAÐIÐ.
SVÍNSLEGT BRÚÐKAUP Kínversk kona heldur á giftingarvottorði svínanna sinna í brúðkaupi
þeirra í Suðvestur-Kína á miðvikudag. Lífsgæði fólks fara óðum batnandi í Kína og sést
það meðal annars á því að svín eru ekki lengur höfð bara til matar, heldur eru þau gerð að
heillandi gæludýrum sem margt er lagt í sölurnar fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ELÍAS GUÐMUNDSSON OG DANÍEL VIÐAR GUÐMUNDSSON Elías og fóstursonur hans Daníel
eru aldir upp við þann veruleika sem menn víða um heim sækjast eftir að kynnast.
RÚSSNESKIR FERÐAMENN Á HAFNARBAKKANUM Þessir rússnesku ferðamenn kynntust
vestfirskum veruleika í fyrrasumar. Ekki fara sögur af því hvernig sjóferðin tókst.
Ferðamenn sólgnir í
vestfirskan veruleika
NISSAN PATROL
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Rúmgó›ur og árei›anlegur vinnufljarkur sem hefur s‡nt og sanna›
a› hann á heima á Íslandi. Nissan Patrol er einfaldlega alvöru jeppi
fyrir alvöru fólk!
Líttu inn og sjáðu alvöru jeppa!
Ver›i› á Nissan Patrol er frá 3.990.000 kr.
ENDIST
ENDALAUST
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
6
4
7