Fréttablaðið - 27.02.2006, Page 23
MÁNUDAGUR 27. febrúar 2006
Lækjargötu 34c • 220 Hafnarfirði • S: 553 4488
Risaútsala
Veggflísar frá kr. 500 fm2
Gólfflísar frá kr. 990 fm2
Sturtuklefar
80x80 kr. 25.000
90x90 kr. 30.000
Sýningareintak: sturtuklefi
m/nuddi 40% afsláttur
Falleg sófasett á góðu verði
Allar Guzzini og Lexon hönnunarvörur á 20% afslætti
Húsgögn og gjafavara
Skeifan 3A við hlið
Atlantsolíu 108 Reykjavík
Sími: 517 3600 • Fax: 517 3604
mylogo@mmedia.is
www.local1.is
Noaher leður hornsófi m/skemli verð 209.000 kr
Oft getur það reynst erfitt að
finna réttu efnin og aðferðina
við að þrífa örbylgjuofninn.
Allir kannast við hversu tíma-
frekt og leiðinlegt það er að þrífa
örbylgjuofninn. Matarslettur sem
festast vel og vandlega vegna hit-
ans sem örbylgjurnar flytja. Oft
virðast venjuleg hreinsiefni ekki
ná langt í að vinna á drullunni.
Auk þess þarf að finna efni sem
þrífur vel og eitrar ekki matinn.
En eitt gott ráð er til til að þrífa
hann hratt og örugglega. Sneiðið
sítrónu í nokkrar sneiðar og setið
í skál með vatni. Stingið svo skál-
inni í örbylgjuofninn og setjið
hann af stað í svona 10 mínútur.
Eftir þetta er enginn vandi að
strjúka yfir ofninn með rakri
tusku, óhreinindin eru öll á bak
og burt og í húsinu verður
hressandi sítrónukeimur. Ef
örbylgjuofninn er mjög skítugur
er um að gera að endurtaka allt
ferlið.
Þrif á örbylgjuofni
Sítrónan þrífur vel.
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR SKRIFAR UM FRUMLEGT VIÐARBÆS
Tjara er eitt elsta fúavarnarefni sem
til er. Síðar voru þróuð betri fúavarn-
arefni úr olíum hennar, en tjörguð
hús, sem voru algeng hérlendis, voru
yfirleitt „biksvört“. Fúavarnarefni
eru líka til úr málmsöltum. Rauðu
sænsku sumarhúsin eru dæmi um
hús sem eru fúavarin með slíkum
efnum. Rauði liturinn, sem kallast
Falu-rauður, á sér merkilega sögu.
Hann er kenndur við bæinn Falun í
Svíþjóð en þar var stór koparnáma.
Talið er að námuvinnslan hafi byrj-
að fyrir um 1000 árum, en vinnsla
hætti 1992. Allan tímann gaf náman
mikið af sér og lagði hún grundvöll
að stofnun elsta hlutafélags í heimi,
Stora Kopparberg sem nú heitir
StoraEnso.
Sagan segir að aðrir kostir nám-
unnar í Falun hafi orðið bónda
nokkrum ljósir þegar geithafur hans
birtist einn daginn fyrir löngu með
rauð horn eftir að hafa rótað í jarð-
veginum hjá námunni. Í upphafi
18. aldar var svo byrjað að nota hið
rauða duft sem til féll þegar málmur
var unninn úr henni í málningu. Þá
var duftið blandað með vatni, rúg-
mjöli, bjór, lýsi, síldarpækli og jafnvel
skvettu af þvagi. Ekkert mátti fara til
spillis, en sem betur fer er þetta ein-
faldara í dag. En ef maður vill vera
svaka frumlegur má búa til svona
viðarbæs heima:
Sjóðið 28 l af vatni í stórum potti.
Blandið 2,5 kg af rúgmjöli saman
við 5 l af köldu vatni. Hellið blönd-
unni hægt út í sjóðandi vatnið. Látið
sjóða í korter og hrærið allan tím-
ann. Bætið út í 10 kg af Falu-rauðu
dufti, úr námunni í Falun, og ½ kg
af járnsúlfati. Soðið í korter. Bætt
er 4 kg af línolíu út í, til að liturinn
smiti ekki eftir að málað hefur verið.
Látið malla í korter. Skvetta af upp-
þvottalegi bætir eiginleika línolíunn-
ar svo öll efnin loði saman. Látið
litinn þykkna en bætið smá vatni
út í ef hann verður of þykkur. Kost-
ur þessarar sérstöku blöndu er að
hún er ódýr og hvorki þarf að þvo
né undirbúa gamla málningu fyrir
nýja umferð. Nóg er að bursta viðinn
lauslega og rjóða á nýrri málningu
með stórum pensli.
Eitt ráð að lokum: Orðið „bæs“
er ekki tökuorð úr sænsku og biðj-
ið aldrei sænskan málara að setja
„bæs“ á tréverkið hjá ykkur.
Falu-rauður