Fréttablaðið - 27.02.2006, Qupperneq 49
MÁNUDAGUR 27. febrúar 2006 31
HVAÐ ER... VERIÐ AÐ BYGGJA?
Byggingarfyrirtækið Þórsafl
sér nú um byggingu fimm
hæða blokkar á Klapparstíg.
Miklar byggingaframkvæmdir
fara um þessar mundir fram við
Klapparstíg 16, á mótum Klapp-
arstígs og Lindargötu. Reiturinn
var áður auður en eins og flestir
vita hefur mikil uppbygging átt
sér stað á þessu svæði eða við og
í hinu nýja Skuggahverfi. Fram-
kvæmdir á blokkinni hófust í
júní í fyrra og þeim lýkur strax í
maí.
Um er að ræða fimm hæða
fjölbýlishús með átta íbúðum
ásamt geymslum í kjallara.
Húsið er hannað af Guðna Páls-
syni arkitekt en gengið verður
inn frá Lindargötu. Íbúðirnar
verða með glæsilegra móti en
þær munu brátt fara á sölu hjá
fasteignasölunni Miðborg.
Nýtísku blokk á
Klapparstígnum
Eins og sjá má verður nýja fjölbýlishúsið afar nýtískulegt og flott.
Frá byggingarframkvæmdunum sem nú
standa yfir en þær eru í höndum Þórsafls.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skeifan 19 • 108 Reykjavík • Sími 533 1060 • Fax 533 1069 • www.xhus.is • xhus@xhus.is
Jón Magnússon
Hrl. lögg. fasteigna
og skipasali
Valdimar R.
Tryggvason
Sölufulltrúi
gsm: 897 9929
Atli S.
Sigvarðsson
Sölufulltrúi
gsm: 899 1178
Guðbjörg
Einarsdóttir
Skrifstofustjóri
Valdimar
Jóhannesson
Sölufulltrúi
gsm: 897 2514Opið mánudaga til föstudaga kl. 9 - 17
Rað- og parhús
Brekkutangi Mosfellsbær.
Stórt og gott 288 fm endaraðhús. Full-
trágengin aukaíbúð í kjallara með sér-
inngangi frá gafli. Möguleiki væri á alls
8 vænum svefnherbergjum í húsinu.
Byggð hefur verið vönduð sólstofa yfir
svalir á efri hæð. Stór og mikið ræktað-
ur garður. Fjöldi bílastæða Verð 47.9
millj kr (Aðeins 166 þús kr fermeterinn)
4ra til 7 herb.
Sæbólsbraut Kópavogi Mjög
vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð í
litlu fjölbýli í vesturbæ Kópavogs. Þrjú
góð herbergi öll með skápum. Björt
stofa og borðstofa. Húsið var málað
síðasta sumar. Eign í grónu hverfi. Íbúð-
in getur verið laus við kaupsamning.
Verð 19,9 millj.
Kelduland - Fossvogi. Björt
87 fm 4 herbergja endaíbúð á 2. hæð
Falleg og smekkleg íbúð. Húsið hefur
verið mikið endurnýjað, m.a. þakið og
allt gler í íbúðinni. Góðar suðursvalir
með ágætu útsýni. Íbúðin er laus strax.
3ja herb.
Laugateigur - tækifæri 3ja
herbergja ósamþykkt íbúð í risi á þess-
um frábæra stað í Teigunum. Íbúðin er
skráð um 51 fm í fmr enn er miklu meira
að gólffleti. Tvö góð herbergi. Stofa
með útgang út á svalir. Eignin er í út-
leigu og er möguleiki á yfirtöku á leigu-
samningi. Góð áhvílandi lán samtals
9,3 millj. Verð 13,9 millj.
2ja herb.
Víkurás - eign með bílskýli
Vorum að fá í einkasölu mjög fallega og
vel skipulagða 2ja herbergja endaíbúð
með bílskýli. Íbúðin er á 1.hæð með sér
garði og verönd. Íbúðin er öll mjög björt
og vel skipulögð þar sem allar vistar-
verur er rúmgóðar. Eign á góðum stað
þar sem stutt er í alla þjónustu. Eignin
getur verið laus við kaupsamning. Verð
14,4 millj.
Sumarbústaðir
Í nágrenni Flúða - Holta-
byggð. Frábært útsýni - til-
valið fyrir einstaklinga eða
félagasamtök. Sumarhús ca 70
fm. Útsýni er frá húsinu. Húsið er byggt
á staðnum og eru steyptir sökklar og
gólfplata, gólfhiti er í húsinu. Fallegir
vandaðir gluggar eru í húsinu, renni-
hurð er út á timburpall úr stofu, hátt er
til loft í öllu húsinu. Húsið verður full-
kárað að utan með stórri timbur ver-
önd. Að innan verður húsið einangrað
og plastað. Raflagnir verða komnar
með nauðsynlegum vinnuljósum ásamt
rafmagnstöflu í geymslu, kalt og heit
vatn verður komið inní hús. Nóg af
heitu og köldu vatni er á staðnum.
Tveir fallegir golfvellir rétt hjá, ásamt
góðri þjónustu á Flúðum sem er að-
eins í um 6 km frá. Tilboð óskast.
Jörð
Hesta- eða tómstundajörð
skammt frá Hellu. Jörðin er
85,9 ha , allt gróið land um 5 km frá
þjóðveginum. Rauðalækur rennur í
gegnum landið. Íbúðarhúsið er timbur-
hús 119,2 m² með sólskála. Véla-
geymsla 151,9 m² er samtengd við 251
m² gripahúsi sem er nú innréttað fyrir
17 hesta hús ásamt fjárhúsi fyrir um 50
kindur, gjafaraðstöðu og kaffistofu /
hnakkageymslu. Verð aðeins 40 millj.
F
ru
m
Nýjar eignir
Mikill sala
Vantar eignir
Góð björt mikið endurnýjuð
3ja herb. 67 fm íbúð við Flókagötu.
Herbergin eru rúmgóð og parketlögð. Eldhús flísalagt með nýrri eldhúsinnrétt-
ingu. Stofan björt og parketlögð Baðherbergi nýstandsett flísað í hólf og gólf.
Þetta er vel staðsett eign í fallegu nýlega standsettu húsi. Verð 17,9 millj
Laus strax. Glæsileg 5 herb. enda íbúð í
litlu vönduðu lyftufjölbýli við Eskivelli.
Íbúðin er vel skipulögð með fjórum rúmgóðum herbergjum á þriðju hæð. Eld-
húsið er rúmgott með veglegri innréttingu og vönduðum tækjum. Stofan björt
og rúmgóð með góðu útsýni og útgengi útá svalir. Baðherbergi er flísalagt í
hólf og gólf, baðkar, veggsalerni og falleg innrétting. Þvottahús er innan íbúð-
ar. Rúmgott stæði í bílageymslu fylgir eigninni sem og góð geymsla. Þetta er
glæsileg eign í vönduðu fjölbýli. Tilboð óskast.
Fannahvarf - Kópavogi.
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 3ja herbergja íbúð á 2.hæð með sérinngangi
í litlu fjölbýli. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Íbúðin er mjög vel skipulögð.
Fallegt útsýni er frá íbúðinni. Húsið er byggt árið 2004 og er klætt að utan. Eign
á frábærum stað þar sem stutt er í skóla og leikskóla. Verð 22,6 millj.