Fréttablaðið - 27.02.2006, Side 71
NÝTT – OPIN FERÐ Nú er hægt að bóka NETSMELL til eins áfangastaðar
og heim frá öðrum. Þetta gildir um alla áfangastaði Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum.
OPNA FERÐ verður að bóka á milli áfangastaða í sömu heimsálfu.
ALLT AÐ 140 FLUG Á VIKU TIL 22 ÁFANGASTAÐA.BERLANÓ TIL BERLÍNAR – HEIM FRÁ MÍLANÓ
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
3
1
4
6
5
0
2
/2
0
0
6
Glys-rokksveitin Drifskaft held-
ur tónleika á Nasa laugardags-
kvöldið 18. mars. Drifskaft hefur
einu sinni áður komið fram á
Íslandi og var það á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum á síðasta ári.
Liðsmenn hljómsveitarinnar, sem
þykja lifa hinu ljúfa lífi til fulln-
ustu, munu lenda í Reykjavík
fimmtudaginn 16. mars og segj-
ast hlakka til að kynnast Reykja-
vík og öllu því sem borgin hefur
upp á að bjóða.
Hljómsveitin Í svörtum fötum
mun hita upp á tónleikunum og
einnig má eiga von á fleiri góðum
gestum. Miðasala verður auglýst
síðar.
Glysrokk á Íslandi
DRIFSKAFT Glysrokksveitin Drifskaft heldur tónleika á Nasa 18. mars.
Leikkonan Elizabeth Taylor ætlar
sér að fagna 74 ára afmæli sínu
með því að gefa læknatæki að
andvirði 300 þúsund dollara til
alnæmissjúklinga í New Orleans.
Tækin eru tólf metra há, inni-
halda tvær rannsóknarstofur og
aðstöðu til röntgenmynda og
verður stýrt af alnæmislæknum
sem misstu læknastofur í felli-
bylnum Katrínu. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Elizabeth styrkir
alnæmissjúklinga en hún stofnaði
Elizabeth Taylor alnæmissjóðinn
árið 1991.
Taylor styrkir
alnæmissjúklinga
FRÉTTIR AF FÓLKI
Philip Seymour Hoffman segist vera himinlifandi með tilnefningu sína til
Óskarsverðlauna vegna þess að hann
fær að eyða miklum tíma með hinum
leikurunum sem eru tilnefndir. Hinir
útvöldu þurfa að mæta í þó nokkrar
athafnir fyrir verðlaunaafhendinguna
og segist Hoffman hlakka til að eignast
svona mikið af frábær-
um vinum. „Það besta
við tilnefninguna er að
ég fæ tækifæri til að
hitta leikara á borð
við Terence How-
ard, Heath Ledger,
Joaquin Phoenix
og David Strat-
hairn,“ útskýrði
Hoffman. „Suma
þekki ég fyrir
en það er alltaf
gott að treysta
vinaböndin,“
bætti hann við og líkti þessu við tón-
leikaferðalag hjá rokkhljómsveit. „Við
ferðumst allir saman, frá einum stað til
annars.“
Ólátabelgurinn Mickey Rourke
er orðinn svo hænd-
ur að leikstjóranum
Robert Rodriguez
að hann íhugar að
flytjast búferlum til
að geta verið nálægt
honum. Leikstjórinn,
sem gerði Sin City
með Rourke, býr á búgarði í Austin og
segist leikarinn alltaf vilja vera til taks
fyrir öll verkefni hans. „Ég ætla að flytj-
ast þangað um leið og ég get. Rodriguez
er kóngurinn í Austin, kannski verð ég
drottningin,“ lét Rourke hafa eftir sér.
Gæðaleikarinn William H. Macy hefur boðist til að verða sendiherra fyrir
Los Angeles vegna þess að hann er
orðinn þreyttur á slæmu orðspori borg-
arinnar. Fjölmargar stjörnur búa ekki
lengur í Englaborginni og segja hana
vera ógeðfelldan stað. Macy er hins
vegar ekki á sama máli og elskar hið
ljúfa líf Kaliforníu. „Ég elska þessa borg
en áður fyrr skammaðist ég mín fyrir
að segjast búa hérna,“
sagði Macy, sem býr
í Hollywood-hæðun-
um ásamt eiginkonu
sinni, Felicity Huffman,
og tveimur dætrum
þeirra. „Það besta við
Los Angeles er að hún
er ekki stór. Þegar fólk
finnur einhverja íbúð
í New York kemur því
ekkert á óvart en þegar
það kemur hingað segir
það vanalega að þetta
sé bara alls ekki eins og
það hafði ímyndað sér
að Los Angeles væri.“
Hljómsveitin CocoRosie heldur
tónleika á Nasa þann 17. maí. Syst-
urnar Bianca og Sierra Casady
mynda kjarnann í sveitinni. Þær
hafa gefið út tvær plötur sem hafa
fengið mjög góðar viðtökur hjá
gagnrýnendum og almenningi. Sú
seinni, Noah’s Ark, kom út í fyrra
og var ofarlega á árslistum margra
tónlistarspekúlanta. Sveitin bland-
ar saman ólíkum tónlistarstefnum
og notar meðal annars dýrahljóð
og leikföng í lögunum sínum.
Antony úr hljómsveitinni Ant-
ony and the Johnsons hefur unnið
mikið með CocoRosie. Hann deilir
oft með stúlkunum sviði á tónleik-
um og syngur með þeim í laginu
Beautiful Boyz á Noah‘s Ark.
Dýrahljóð
og leikföng
COCOROSIE Hljómsveitin CocoRosie er á
leiðinni til Íslands.