Fréttablaðið - 22.03.2006, Page 8
8 22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR Sjálf-
stæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar
að beita sér fyrir því að þjónusta
við eldri borgara í Reykjavík verði
stóraukin á næstu árum. Sjálfstæð-
ismenn líta á það sem eitt sitt verð-
ugasta verkefni að tryggja að þeir
sem eldri eru geti notið alls hins
besta og haft raunverulegt val um
búsetu. Áhersla verður lögð á að
leita samninga við ríkisvaldið um
að flytja málaflokkinn að mestu til
borgarinnar til að auðvelda að
hrinda hugmyndum flokksins í
framkvæmd.
„Það eru einkum þrjú mál sem
við leggum áherslu á. Það er í fyrsta
lagi málefni eldri borgara og í öðru
lagi málefni fjölskyldunnar; fjöl-
skylduvæn Reykjavíkurborg segj-
um við. Í þriðja lagi eru það skipu-
lagsmál, samgöngur og lóðamál.
Þetta verða okkar stóru áherslu-
mál,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, borgarstjóraefni, sem kynnti í
gær helstu áherslur flokksins fyrir
komandi kosningar. „Það er alveg
ljóst að það verður að gera mikið
betur og því viljum við boða nýja
hugsun í málefnum eldri borgara.“
Hugmyndir sjálfstæðismanna
ganga út á að reisa 200 nýjar leigu-
og þjónustuíbúðir fyrir aldraða á
næstu árum og að hafinn verði und-
irbúningur að myndun kjarna-
byggða þar sem hjúkrunarheimili,
þjónustu- og leiguíbúðir auk
almennra íbúða mynda heild. Þetta
á að gera hjónum og sambýlisfólki
auðveldara að búa í nálægð við ætt-
ingja sína og vini sem lengst og
draga úr sundrung og einangrun.
Mikil áhersla verður einnig lögð á
að gera eldri borgurum kleift að
búa sem lengst á eigin heimili með
því að efla og samræma heimaþjón-
ustu og heimahjúkrun. Settur verð-
ur á fót samráðsvettvangur borgar-
innar og samtaka og félaga eldri
borgara í þeim tilgangi að fjalla
reglubundið um hagsmunamál
þeirra.
Sjálfstæðismenn ætla einnig að
lækka fasteignaskatta á allt íbúðar-
húsnæði um 25 prósent á næstu
fjórum árum. „Menn spyrja eðli-
lega hvað það kostar og eðlilegt er
að svara því. Það kostar á árinu
2007 að lækka fasteignaskatta
almennt 210 milljónir króna. Þegar
upp er staðið þá kostar þetta á heilu
kjörtímabili um 500 milljónir
króna,“ segir Vilhjálmur.
svavar@frettabladid.is
Ætla að bæta
hag aldraðra
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hóf kosningabar-
áttu sína af fullum krafti í gær. Málefni eldri borg-
ara er eitt helsta kosningamál flokksins. Hann vill
flytja málaflokkinn til borgarinnar að mestu.
FRÁ KYNNINGARFUNDI SJÁLFSTÆÐISMANNA Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fór fyrir sínu fólki
þegar kynntar voru hugmyndir um stórbættan hag eldri borgara í Reykjavík. Þetta er eitt
stærsta kosningamál flokksins.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍRAK, AP Að minnsta kosti 28 manns
fórust þegar stór hópur vopnaðra
manna réðist inn á lögreglustöð
skammt frá Bagdad í Írak við dag-
renningu í gær og leysti 33 fanga
úr haldi. Hinir látnu voru 17 lög-
reglumenn, réttarvörður og tíu
árásarmenn.
Uppreisnarmennirnir kveiktu í
lögreglustöðinni áður en þeir flúðu
með lík sinna manna, samkvæmt
upplýsingum írösku lögreglunnar.
Jafnframt fórust minnst níu
lögreglumenn í sprengjuárásum
víðsvegar um landið í gær.
Yfir 1.000 manns hafa týnt lífi í
átökum víðs vegar um Írak í síð-
asta mánuði. - smk
Byssumenn réðust á lögreglustöð í Írak:
Leystu fanga úr haldi
STAÐIÐ VÖRÐ Kona gengur fram hjá írösk-
um hermönnum við sjíamosku í Bagdad í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AUSTURRÍKI, AP Kona, ákærð fyrir
að hafa myrt fimm börn sín, játaði
fyrir dómi í Austurríki í gær að
hafa banað fjórum þeirra. Maður
hennar, sem ákærður er fyrir
morð á fjórum barnanna, neitaði
sök.
Fólkið var ákært í júní síðast-
liðnum eftir að lögregla fann lík
tveggja nýbura í frystikistu í kjall-
ara fjölbýlishúss í suðurhluta
landsins, og líkamsleifar tveggja
barna til viðbótar í málningarföt-
um fullum af sementi. Krufning
sýndi að börnin í frystikistunni
voru enn á lífi þegar þeim var
komið þar fyrir.
Maðurinn sagðist ekki einu
sinni hafa vitað af þungunum konu
sinnar, sem yfirvöld telja ólíklegt
vegna fjölda barnanna. Parið bjó
saman í átta ár. - smk
Austurrísk hjón ákærð fyrir morð á börnum sínum:
Lík fundust í frysti
NISSAN PATHFINDER
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Breyting frá Arctic Trucks Ver›i› á Nissan Pathfinder hefur líklega aldrei veri›
hagstæ›ara. Me› 35" sérhönnu›um breytingum eru gæ›i
flessa skemmtilega jeppa einfaldlega or›in enn meiri. Hann
er áfram jafn og flægilegur í akstri og nú ævint‡ri líkastur.
Líttu inn og ber›u hetjuna augum!
ÆVINT†RI
LÍKASTUR
Ver›i› á breyttum Nissan Pathfinder er frá 4.379.000 kr.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Endalaust úrval
Fiskrétta, Stórlúða,
Laxaflök, Rækjur
Túnfiskur,
Risahörpuskel
Fiskbúðin Sjávargallerý
Háaleitisbraut 58-60 s: 553-2550
Þar sem metnaðurinn á lögheimili