Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 10
 22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR gullmolinn á höfuðborgarsvæðinu Akraland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík sími 599 4000, fax 599 4001 hz et a 6 4 2 9 7 5 3 1 10 8 6 4 2 9 7 5 3 1 12 10 8 6 4 2 7 5 3 1 9 2 4 6 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 1 3 5 7 9 8 6 4 2 1 3 5 Da lak ur Gó ða ku r Vesturakrar Br eið ak ur By gg ak ur Frj óa ku r Gu lla ku r Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærð þeirra og nýtingu ásamt upplýsingum um hvernig væntanlegir kaupendur bera sig að við tilboðsgerð er að finna á vefsíðu Akralands, www.akraland.is Mikilvægt er að tilboðsgjafar kynni sér vel öll tilboðsgögn, s.s. tilboðsskilmála, tilboðsskrá, sölu- og skipulagsskilmála en öll tilboð taka mið af þessum skilmálum. Akraland ehf. er nú að hefja sölu lóða í 2. áfanga Akra- hverfis í Garðabæ. Um er að ræða 35 lóðir undir einbýlis- hús. Framkvæmdir og uppbygging í Akrahverfinu hófust 2005. Þar er að rísa glæsilegt hverfi þar sem mikill metnaður ræður ríkjum varðandi hönnun, arkitektúr og alla uppbyggingu í metnaðarfullu sveitarfélagi. Lóðirnar eru frábærar eignarlóðir og hverfið er vel stað- sett á grónu svæði á besta stað í Garðabæ. Þetta eru góðar byggingarlóðir á frjósömu svæði mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru staðsettar rétt við greiðar og fljótfarnar umferðaræðar sem liggja til allra átta. Tilboðum í lóðirnar skal skila eigi síðar en 6. apríl 2006 kl. 15:00. Tilboðunum skal skila á skrifstofu Akralands í Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík þar sem allar nánari upplýs- ingar eru veittar um lóðirnar. Fasteignasalan Borgir mun einnig annast milligöngu um sölu lóðanna og geta þeir sem hafa áhuga snúið sér þangað. Tilboðsfrestur 6. apríl, kl.15.00w w w . a k r a l a n d . i s Vinsælir ferðamannastaðir á þessum slóðum eru blómaeyjan Mainau sem er skammt frá borginni Konstanz og kastalinn sögufrægi í Meersburg. Í 30–60 mínútna ökufjarlægð eru Austurríki og Sviss hinu megin við vatnið og Ítalía ekki langt undan. *A›ra lei› me› sköttum. Gildir fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd me› fullor›num Verð frá: Barnaverð: www.icelandexpress.is, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600 www.icelandexpress.is/friedrichshafen Vinaleg borg í fallegu umhverfi Nokkuð óþjált nafn fyrir jafn fallega og vinalega borg. Friedrichshafen er í Suður-Þýskalandi og stendur við Konstanz-vatnið sem er þriðja stærsta stöðuvatn meginlands Evrópu þar sem Þýskaland, Sviss og Austurríki mætast. Það er alltaf nóg um að vera við vatnið. FRIEDRICHSHAFEN Fljúgðu á einn stað og heim frá öðrum - og bíll frá Budget kemur þér á milli staða. Bókaðu bílaleigubíl frá Budget á www.icelandexpress.is og tryggðu þér bestu verð Budget. Þú getur flogið á einn áfangastað Iceland Express, ferðast um á bíl frá Budget og flogið svo heim frá öðrum áfangastað, allt eftir þinni hentisemi. VERTU ÞINN EIGIN HERRA ÍRAK, AP Íbúar bæjar í vesturhluta Íraks ásaka bandaríska hermenn um að hafa að yfirlögðu ráði myrt 15 óbreytta borgara úr tveimur fjölskyldum, þar með talin þriggja og fjögurra ára börn, í nóvember síðastliðnum. Yfirmenn Banda- ríkjahers rannsaka nú hvað til er í ásökunum þessum, sem fjallað var um í bandaríska tímaritinu Time á mánudag. Sagt er að hermennirnir hafi ráðist á fjölskyldurnar snemma morguns í bænum Haditha eftir að vegarsprengja varð einum banda- rískum hermanni að bana og særði tvo. Hermennirnir eiga að hafa ráðist inn í húsin og skotið alla sem inni voru, þar með talin hálfátt- ræðan mann, konur og sex börn, en tvö börn til viðbótar særðust illa. Fimmtán ára stúlka og fimm mán- aða ungabarn voru einu íbúar hús- anna sem sluppu ómeiddir. Síðan eiga hermennirnir að hafa farið út á götu og skotið níu menn til viðbótar, þar af fjóra bræður, en ekki vissu íbúar bæjar- ins hvort þeir væru tengdir sprengjunni líkt og talsmenn bandaríska hersins héldu fram eftir atvikið. Walid al-Hadithi, yfirlæknir á Haditha sjúkrahúsinu, sagði fréttamönnum AP fréttastofunn- ar að um miðnætti sama dag hafi bandarískir hermenn komið með 24 lík á sjúkrahúsið og sagt sér að konurnar og börnin hefðu verið skotin á heimilum sínum, en að karlmennirnir hefðu verið skemmdarverkamenn. „Öll höfðu verið skotin,“ sagði læknirinn. Í fréttatilkynningu hersins eftir atvikið kom fram að 15 óbreyttir borgarar hefðu týnt lífi í fyrirsátri á herinn, auk átta upp- reisnarmanna og eins bandarísks hermanns. Jafnframt stóð að ein- ungis bandarískir hermenn hefðu hleypt af skotum eftir að sprengjan sprakk, en hún var sögð vera völd að dauða óbreyttu borg- aranna. Blaðamenn Time segjast hafa fengið myndbandsupptöku frá nema í fjölmiðlafræði sem sýndi líkin og ummerkin eftir árásina og þó að upptakan sanni ekki að hermennirnir hafi viljandi myrt fólkið, þá sýni hún vegsummerki eftir skotárás inni í blóði drifnum húsunum. Talsmenn Bandaríkjahers segja herinn taka ásökunum heimamanna Haditha um morð að yfirlögðu ráði mjög alvarlega. Í síðustu viku tilkynntu talsmenn hersins að verið væri að yfirheyra tólf hermenn vegna málsins. Forsvarsmenn mannréttinda- samtakanna Human Rights Studies segja árásir Bandaríkja- hermanna á óbreytta borgara í Írak ekki óalgengar. smk@frettabladid.is Sagðir hafa drepið börn Bandaríkjaher rannsakar nú meinta stríðsglæpi tólf bandarískra hermanna sem sagðir eru hafa ráðist inn á heimili óbreyttra borgara í Írak og myrt fimmtán manns, þar af sex börn. VIÐ STÖRF Bandarískur hermaður að störfum í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaher rannsakar nú ásakanir um meinta stríðsglæpi tólf hermanna, sem sagðir eru hafa myrt fimmtán óbreytta borgara, þar af sex börn. NORDICPHOTOS/AFP SVEITARSTJÓRNARMÁL „Nú verða utanbæjar- menn sem koma með skott að snúa við með skottið á milli lapp- anna,“ segir Gísli Geirs- son, formaður Landbún- aðarnefndar Árborgar, en þar hefur verið sam- þykkt að greiða einung- is innanbæjarmönnum fyrir minka- og refa- skott. Mikið hefur verið um það að utanbæjarmenn hafi komið með skott af minkum og refum sem þeir segja veiddan innan sveitarfélagsins og í stað þess að þurfa að láta reyna á það hvort rétt sé hafi þessi stefna verið tekin. „Það eru nokkrir innanbæjarmenn sem hafa verið að veiða mink í gildrur og það virðist vera nokkuð mikið um hann,“ segir formaðurinn. - jse Landbúnaðarnefnd Árborgar: Neita að borga fyrir skott aðkomumanna REFUR Utanbæjarmenn hafa ekkert upp úr því lengur að koma með minka- eða refa- skott til yfirvalda í Árborg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.