Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 10
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
gullmolinn á höfuðborgarsvæðinu
Akraland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
sími 599 4000, fax 599 4001
hz
et
a
6
4
2
9
7
5
3
1
10
8
6
4
2
9
7
5
3
1
12
10
8
6
4
2
7
5
3
1
9
2
4
6 1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
1
3
5
7
9
8
6
4
2
1
3
5
Da
lak
ur
Gó
ða
ku
r
Vesturakrar
Br
eið
ak
ur
By
gg
ak
ur
Frj
óa
ku
r
Gu
lla
ku
r
Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærð
þeirra og nýtingu ásamt upplýsingum um
hvernig væntanlegir kaupendur bera sig að
við tilboðsgerð er að finna á vefsíðu
Akralands, www.akraland.is
Mikilvægt er að tilboðsgjafar kynni sér vel
öll tilboðsgögn, s.s. tilboðsskilmála,
tilboðsskrá, sölu- og skipulagsskilmála en
öll tilboð taka mið af þessum skilmálum.
Akraland ehf. er nú að hefja sölu lóða í 2. áfanga Akra-
hverfis í Garðabæ. Um er að ræða 35 lóðir undir einbýlis-
hús. Framkvæmdir og uppbygging í Akrahverfinu hófust
2005. Þar er að rísa glæsilegt hverfi þar sem mikill
metnaður ræður ríkjum varðandi hönnun, arkitektúr og
alla uppbyggingu í metnaðarfullu sveitarfélagi.
Lóðirnar eru frábærar eignarlóðir og hverfið er vel stað-
sett á grónu svæði á besta stað í Garðabæ. Þetta eru
góðar byggingarlóðir á frjósömu svæði mjög miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru staðsettar rétt við greiðar
og fljótfarnar umferðaræðar sem liggja til allra átta.
Tilboðum í lóðirnar skal skila eigi síðar en 6. apríl 2006
kl. 15:00. Tilboðunum skal skila á skrifstofu Akralands í
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík þar sem allar nánari
upplýs- ingar eru veittar um lóðirnar. Fasteignasalan
Borgir mun einnig annast milligöngu um sölu lóðanna
og geta þeir sem hafa áhuga snúið sér þangað.
Tilboðsfrestur 6. apríl, kl.15.00w w w . a k r a l a n d . i s
Vinsælir ferðamannastaðir á þessum
slóðum eru blómaeyjan Mainau sem er
skammt frá borginni Konstanz og
kastalinn sögufrægi í Meersburg.
Í 30–60 mínútna ökufjarlægð eru
Austurríki og Sviss hinu megin við
vatnið og Ítalía ekki langt undan.
*A›ra lei› me› sköttum. Gildir fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd me› fullor›num
Verð frá:
Barnaverð:
www.icelandexpress.is, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600
www.icelandexpress.is/friedrichshafen
Vinaleg borg í fallegu umhverfi
Nokkuð óþjált nafn fyrir jafn fallega og vinalega borg. Friedrichshafen er í
Suður-Þýskalandi og stendur við Konstanz-vatnið sem er þriðja stærsta stöðuvatn
meginlands Evrópu þar sem Þýskaland, Sviss og Austurríki mætast. Það er alltaf nóg
um að vera við vatnið.
FRIEDRICHSHAFEN
Fljúgðu á einn stað og heim frá
öðrum - og bíll frá Budget kemur
þér á milli staða.
Bókaðu bílaleigubíl frá Budget á
www.icelandexpress.is og tryggðu
þér bestu verð Budget. Þú getur
flogið á einn áfangastað Iceland
Express, ferðast um á bíl frá Budget
og flogið svo heim frá öðrum
áfangastað, allt eftir þinni hentisemi.
VERTU ÞINN
EIGIN HERRA
ÍRAK, AP Íbúar bæjar í vesturhluta
Íraks ásaka bandaríska hermenn
um að hafa að yfirlögðu ráði myrt
15 óbreytta borgara úr tveimur
fjölskyldum, þar með talin þriggja
og fjögurra ára börn, í nóvember
síðastliðnum. Yfirmenn Banda-
ríkjahers rannsaka nú hvað til er í
ásökunum þessum, sem fjallað var
um í bandaríska tímaritinu Time á
mánudag.
Sagt er að hermennirnir hafi
ráðist á fjölskyldurnar snemma
morguns í bænum Haditha eftir að
vegarsprengja varð einum banda-
rískum hermanni að bana og særði
tvo. Hermennirnir eiga að hafa
ráðist inn í húsin og skotið alla sem
inni voru, þar með talin hálfátt-
ræðan mann, konur og sex börn, en
tvö börn til viðbótar særðust illa.
Fimmtán ára stúlka og fimm mán-
aða ungabarn voru einu íbúar hús-
anna sem sluppu ómeiddir.
Síðan eiga hermennirnir að
hafa farið út á götu og skotið níu
menn til viðbótar, þar af fjóra
bræður, en ekki vissu íbúar bæjar-
ins hvort þeir væru tengdir
sprengjunni líkt og talsmenn
bandaríska hersins héldu fram
eftir atvikið.
Walid al-Hadithi, yfirlæknir á
Haditha sjúkrahúsinu, sagði
fréttamönnum AP fréttastofunn-
ar að um miðnætti sama dag hafi
bandarískir hermenn komið með
24 lík á sjúkrahúsið og sagt sér að
konurnar og börnin hefðu verið
skotin á heimilum sínum, en að
karlmennirnir hefðu verið
skemmdarverkamenn. „Öll höfðu
verið skotin,“ sagði læknirinn.
Í fréttatilkynningu hersins
eftir atvikið kom fram að 15
óbreyttir borgarar hefðu týnt lífi í
fyrirsátri á herinn, auk átta upp-
reisnarmanna og eins bandarísks
hermanns. Jafnframt stóð að ein-
ungis bandarískir hermenn hefðu
hleypt af skotum eftir að
sprengjan sprakk, en hún var sögð
vera völd að dauða óbreyttu borg-
aranna.
Blaðamenn Time segjast hafa
fengið myndbandsupptöku frá
nema í fjölmiðlafræði sem sýndi
líkin og ummerkin eftir árásina
og þó að upptakan sanni ekki að
hermennirnir hafi viljandi myrt
fólkið, þá sýni hún vegsummerki
eftir skotárás inni í blóði drifnum
húsunum.
Talsmenn Bandaríkjahers
segja herinn taka ásökunum
heimamanna Haditha um morð að
yfirlögðu ráði mjög alvarlega. Í
síðustu viku tilkynntu talsmenn
hersins að verið væri að yfirheyra
tólf hermenn vegna málsins.
Forsvarsmenn mannréttinda-
samtakanna Human Rights
Studies segja árásir Bandaríkja-
hermanna á óbreytta borgara í
Írak ekki óalgengar.
smk@frettabladid.is
Sagðir hafa
drepið börn
Bandaríkjaher rannsakar nú meinta stríðsglæpi tólf
bandarískra hermanna sem sagðir eru hafa ráðist inn
á heimili óbreyttra borgara í Írak og myrt fimmtán
manns, þar af sex börn.
VIÐ STÖRF Bandarískur hermaður að störfum í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaher rannsakar
nú ásakanir um meinta stríðsglæpi tólf hermanna, sem sagðir eru hafa myrt fimmtán
óbreytta borgara, þar af sex börn. NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRNARMÁL
„Nú verða utanbæjar-
menn sem koma með
skott að snúa við með
skottið á milli lapp-
anna,“ segir Gísli Geirs-
son, formaður Landbún-
aðarnefndar Árborgar,
en þar hefur verið sam-
þykkt að greiða einung-
is innanbæjarmönnum
fyrir minka- og refa-
skott.
Mikið hefur verið um
það að utanbæjarmenn
hafi komið með skott af
minkum og refum sem
þeir segja veiddan innan
sveitarfélagsins og í
stað þess að þurfa að
láta reyna á það hvort
rétt sé hafi þessi stefna
verið tekin.
„Það eru nokkrir
innanbæjarmenn sem
hafa verið að veiða
mink í gildrur og það
virðist vera nokkuð
mikið um hann,“ segir
formaðurinn. - jse
Landbúnaðarnefnd Árborgar:
Neita að borga fyrir
skott aðkomumanna
REFUR Utanbæjarmenn hafa
ekkert upp úr því lengur að
koma með minka- eða refa-
skott til yfirvalda í Árborg.