Fréttablaðið - 22.03.2006, Side 18
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Skeifan 4 • s. 5881818
betra bragð
betri gæði
betra verð
Allt í tælenska
matinn
Tilfelli þar sem börn eru hrist til bana eru fleiri en
margan grunar, en þó segir ríkissaksóknari Bret-
lands að dómarar verði að fara hægar í sakirnar
þegar dæmt er í slíkum málum. Ástæðan er sú
að stundum eru áverkar svo óljósir að yfirvöld
geta haldið vöggudauða vera manndráp.
Hvernig deyja þessi börn?
Hrist börn, eða það sem nefnt hefur verið á
ensku „shaken baby syndrome,“ eru smábörn
sem deyja af völdum áverka sem þau hljóta er
einhver hristir þau með ofsa. Oft eru þetta við-
brögð þeirra sem annast barnið við óstöðvandi
grátköstum þess.
Hafi barnslík ákveðna áverka rannsaka
yfirvöld dauða þess nánar. Heilbrigðis- og dóms-
málayfirvöldum ber ekki saman um hvers konar
áverkum beri að leita eftir, en oftast er leitað eftir
ákveðnum innvortis áverkum sem barnið gæti
ekki hafa hlotið við eðlilega meðhöndlun. Það
eru meðal annarra heilablæðingar, blæðingar
á bak við augu og skemmdir á
taugaþráðum í heila.
Hvernig er dæmt í þessum
málum?
Mál þessi eru afar viðkvæm því
oft eru það foreldrar barnsins
sem eru ákærðir og fátt þykir
hryllilegra í þjóðfélagi okkar
en móðir sem drepur barn sitt.
Á undanförnum árum hafa
yfirvöld talið að fyrrnefndir áverkar bendi nær
undantekningalaust til þess að barnið hafi verið
hrist með slíku offorsi að það hafi látist. En
rannsóknir sem hafa staðið yfir síðustu fjögur ár
í Bretlandi sýna að sumir þessara áverka geta
verið til komnir af allt öðrum ástæðum sem
koma ofbeldi ekkert við. Til dæmis getur heila-
blæðing orsakast af súrefnisskorti og ástæðan
fyrir honum þarf ekki að vera af
glæpsamlegum toga, eins og kemur
fram í rannsóknum Helenar Whitwell
frá Sheffield-háskólanum í Englandi
og Jennian Geddes við Konunglega
sjúkrahúsið í London.
Í janúar 2004 lét ríkissaksóknari
Bretlands endurskoða alla dóma
sem fallið hafa seinustu 10 árin í
málum þar sem talið er að barn
undir tveggja ára aldri hafi verið hrist
til bana. Það varð til þess að Angela Canning,
móðir sem dæmd hafði verið fyrir að hafa drepið
tvö börn sín, var sýknuð af báðum ákærum. Synir
hennar höfðu látist af vöggudauða. Mál þetta
vakti mikla athygli og enn er verið að endur-
skoða 88 dóma í Bretlandi.
FBL GREINING: SHAKEN BABY SYNDROME
Börn oftar hrist til bana en fólk grunar
Sala á lóðum í fyrstu
búgarðabyggð hér á landi
hefst í dag. Lóðirnar eru
hugsaðar fyrir fólk sem vill
búa í sveit en njóta þjónustu
á við þéttbýlinga. Hönnunin
á þessari búgarðabyggð á
engan sinn líka en svæðinu
verður skipt í klasa.
Í Kaldaðarnesi, mitt á milli
Eyrarbakka og Selfoss, mun rísa
á þessu ári rúmlega 600 hektara
búgarðabyggð. Þar geta íbúar
byggt sér heilsárshús en jafn-
framt verið með aðstöðu fyrir
hesta eða aðrar skepnur. Einnig
eru góðir möguleikar til ræktun-
ar en ekki er gert ráð fyrir sum-
arhúsum í þessari byggð.
Jörundur Gauksson, fram-
kvæmdastjóri Búgarðabyggðar,
sem hefur umsjón með verkefn-
inu, segist vongóður um að
kaupendur geti farið að byggja
strax í maí á þessu ári. Deili-
skipulag hefur verið afgreitt en
enn er beðið eftir að
umhverfisráðherra staðfesti
aðalskipulagið.
„Ég hef sett inn auglýsingu til
að minna fólk á það að lóðirnar
fara í almenna sölu í dag og sím-
inn hefur varla stöðvað hjá okkur
en fólk hringir unnvörpum og
spyr um þetta,“ segir Jörundur.
„Það er mikið til fólk um fimm-
tugt sem er að velta þessu fyrir
sér. Margt af því er af höfuðborg-
arsvæðinu en það vill þá komast
úr skarkalanum í sveitina, en hér
verður tækifæri til að búa í sveit
en njóta sömu þjónustu og fólk í
þéttbýli nýtur enda höfum við
náð samningum við Árborg þess
efnis. Til dæmis verður börnum á
skólaaldri ekið héðan í sinn skóla
í Árborg. Svo hafa náðst samning-
ar við hitaveituna um að þjónusta
svæðið hér svo menn vanhagar
ekki um neitt.“
Lóðunum er skipt í þríhyrn-
inga og tígla sem eru á bilinu einn
til sex hektarar en sex lóðir verða
í sérstökum klasa. Þessir klasar
eru sexhyrndir og mun hringtorg
vera í þeim miðjum. Stórtækir
menn geta því tekið sig til og
keypt heilan klasa og hafa því sex
lóðir til umráða.
„Við höfum það tvennt að leið-
arljósi að hafa skilyrðin sem fæst
og að hafa engar sameignir á
svæðinu,“ segir Jörundur. „Eina
skilyrðið er að þarna verði heils-
ársbyggð en engir sumarbústað-
ir. Að öðru leyti er þetta frjálst.
Fyrstur kemur fyrstur fær. Við
munum ekkert vasast í því hverj-
ir eru að kaupa og hversu margar
lóðir þeir kaupa. En hinsvegar
bjóðum við væntanlegum kaup-
endum uppá 80 prósenta lán til 40
ára svona til að auðvelda mönn-
um kaupin.“
Mikil eftirspurn hefur verið
eftir jörðum úti á landi og svo
virðist sem menn vilji koma upp
aðstöðu fyrir hesta eða annari
tómstundaaðstöðu næst heimili
sínu. Jörundur segir að búgarða-
byggðin muni anna þessari eftir-
spurn.
Sjálfur er hann borinn og barn-
fæddur í Kaldaðarnesi þar sem
hann er enn búsettur. „Ég fer
aldrei héðan og mér þykir það
sérlega ljúft að sjá fram á það að
fólk geti notið þess að búa hér á
þessum fallega stað.“ ■
Fyrsta búgarðabyggðin í sölu
BÚGARÐABYGGÐ Í KALDAÐARNESI Búgarðabyggðin verður mitt á milli Eyrabakka og Sel-
foss. Hún verður rúmlega 600 hektarar en henni verður skipt í klasa sem samanstanda af
sex lóðum sem hver um sig verður á blilinu einn til sex hektarar.
KLASI Í BÚGARÐABYGGÐINNI Svona mun einn klasi líta út í búgarðabyggðinni. Sex lóðir
eru í einum klasa og svo er hringtorg er í miðjunni.
JÖRUNDUR GAUKSSON Í KALDAÐARNESI
Þarna verður búgarðabyggðin á æsku-
slóðum athfnaskáldsins en Jörundur
segist aldrei ætla að flytja úr þessari
sveit. MYND/EGILL BJARNASON
Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, lét hafa eftir sér
í Fréttablaðinu í gær að hrista þyrfti
verulega upp í for-
ystu Framsóknar-
flokksins ef flokk-
urinn ætlaði ekki
hreinlega að deyja.
Jakob Hrafnsson
er formaður
Sambands ungra
Framsóknarmanna
og bróðir Björns
Inga Hrafnssonar,
sem skipar efsta
sæti Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Gæti Framsóknarflokkurinn dáið?
Framsóknarflokkurinn verður 90 ára
á þessu ára og er flokkur með í kring-
um tíu þúsund félagsmenn. Þetta er
fjölmennur flokkur þar sem áhersla er
lögð á öflugt málefnastarf. Nei, Fram-
sóknarflokkurinn getur ekki dáið.
Hvar liggja helstu sóknarfæri Fram-
sóknarflokksins?
Helstu sóknarfæri flokksins núna
liggja í Reykjavík. Listi flokksins í
Reykjavík er kraftmikill og höfðar
sterklega til ungu kynslóðarinnar.
Fólki sem starfað hefur innan flokks-
ins eru gefin tækifæri á því að bjóða
sig fram og starfa ötullega fyrir hönd
flokksins í Reykjavík. Ég er sannfærð-
ur um að Framsóknarflokkurinn getur
náð góðum árangri í kosningunum
í vor.
SPURT&SVARAÐ
STAÐA FRAMSÓKNAR
Flokkurinn
lifir áfram
JAKOB HRAFNSSON,
FORMAÐUR SUF
> Fjöldi hrossa á Íslandi
Svona erum við
1990 2000 2004
71
.6
93
73
.9
95
72
.2
22