Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 21
Krónan óhentug | Sigurður
Einarsson, stjórnarformaður KB
banka, segir krónuna ekki henta
bankanum og skoðað verði hvort
bankinn verður íslenskur eða evr-
ópskur í framtíðinni.
Framtíðin opin | Forstjóri
Kauphallar Íslands segir ekki
útilokað að Kauphöllin sameinist
OMX-kauphöllinni í framtíðinni en
eins og staðan er núna sé óbreytt
starfsemi hagstæðari.
Gera tilboð | Actavis sendi
króatíska lyfjafyrirtækinu PLIVA
óformlegt tilboð um kaup á öllum
hlutum félagsins, sem er skráð í
London og Króatíu.
Tekist á | Á aðalfundi Kögunar
áttust tvær fylkingar við um
meirihluta, stjórnendalið Kögunar
með liðsinni Straums-Burðaráss
og tveir stærstu hluthafarnir,
Síminn og Exista.
Endurheimta traust | Vaxtaálag
á skuldabréf bankanna náði
hámarki 13. mars og hefur farið
lækkandi síðan, sem endurspegl-
ar meðal annars jákvæðari tón í
skrifum greiningardeilda.
Styrk staða | Landsbanki Íslands
sendi frá sér upplýsingar um stöðu
bankans og áréttaði að lausafjár-
staða væri sterk og grunnafkoma
hefði sérstaklega batnað frá árinu
2003.
Breytt áfallaviðmið |
Fjármálaeftirlitið hefur breytt
reglum um áfallaviðmið fjármála-
stofnana vegna innlendrar hluta-
bréfaeignar og stóðust bankarnir
settar kröfur í nýju álagsprófi.
Íslenskir kvikmyndagerðarmenn
Arkitektar að
evrópskri
samframleiðslu 12-13
Kauphöll Íslands
Hugað að útrás
og stækkun
22
Kögun
Beðið við
Símann
10
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 22. mars 2006 – 11. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Gott til síðasta dropa
„Þegar greiningardeild Merril
Lynch gaf út skýrslu um íslensku
bankana þann 7. mars hófst
atburðarrás sem stóð í 10 daga og
verður ekki líkt við neitt annað
en bankaáhlaup (e. bank run),“
segir Ágeir Jónsson, hagfræð-
ingur í grein sem hann ritar í
Markaðinn í dag.
Ásgeir rekur atburðarás að
undanförnu þar sem hart var
sótt að íslenskum skuldabréfum.
Hann gagnrýnir vinnubrögð
erlendra greiningardeilda og
viðbrögð fjölmiðla við þeim.
Hann segir staðreyndavillur
greiningardeilda í kjölfar skýrslu
Fitch auðleiðréttanlegar með
lestri ársreikninga bankanna.
„Afleiðingin var sú að óðagot
var á góðri leið með að myndast
hérlendis þar sem almenningur
var farinn að efast um styrkleika
bankanna og óttast hrun
hérlendis,“ segir Ásgeir í grein
sinni.
- hh sjá síðu 16.
Áhlaup á
bankana
Fyrrum stjórn Kögunar hafði sett niður á lista nokk-
ur erlend hugbúnaðarfyrirtæki, sem félagið hafði
áhuga að fjárfesta í, og átti að auka hlutafé fyrirtæk-
isins til að fjármagna slík kaup. Tillaga um heimild
stjórnar til að hækka hlutafé um allt að 85 milljónir
króna að nafnverði, sem hefði gefið félaginu fimm
milljarða í kassann, var dregin til baka á aðalfundi
í síðustu viku þegar ljóst þótti að hún myndi ekki fá
stuðning tveggja þriðju hluta atkvæða.
Samkvæmt heimildum var búið að ákveða að
semja við Straum-Burðarás um hlutafjáraukning-
una á grundvelli tilboða sem hafði verið óskað
eftir.
Örn Karlsson, stjórnarformaður Kögunar, dró
tillöguna til baka eftir að Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Símans, sem er stærsti hluthafinn, benti á að
sú heimild til útgáfu nýs hlutafjár sem væri til stað-
ar væri nægjanleg. Þar sem núverandi hluthafar
áttu ekki að fá forkaupsrétt til kaupa að nýju hlutafé
hefði útgáfa þess minnkað eignarhlut Símans og
annarra hluthafa.
sjá síðu 10 / -eþa
Ætluðu sér aukið hlutafé
til frekari fyrirtækjakaupa
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Óánægja er innan TM Software með hvernig staðið
var að sölunni á 58,7 prósenta hlut í EJS Group, og
víðar í upplýsingatæknigeiranum setja menn spurn-
ingamerki við hvernig salan fór fram. Straumur-
Burðarás fjárfestingabanki hélt utan um söluferlið.
Áður en til þess kom að fyrirtækjasamstæðan EJS
Group var seld Skýrr var hún í formlegu söluferli
hjá Straumi-Burðarási fjárfestingabanka. Seljandi
var eignarhaldsfélagið DZ, sem er í eigu Kers og
fleiri fjárfesta.
Skrifað var undir samninga um kaup Skýrr
á EJS Group sunnudaginn 12. síðasta mánaðar.
Fimmtudeginum áður voru opnuð í vitna viðurvist
tilboð frá TM Software og öðru fyrirtæki. TM
Software átti hæsta boð og leit svo á að gengið
yrði til samninga í kjölfarið. Friðrik Sigurðsson
forstjóri TM Software staðfestir að atburðarás hafi
verið með þessum hætti, en segist lítið vilja tjá sig
um málið enda ekki hans háttur að vera „í hlutverki
spælda mannsins“.
Hjá TM Software litu menn svo á að EJS væri í
formlegu söluferli sem hefði átt að ljúka með því að
tilboð væru opnuð síðdegis 9. september og helstu
atriði þeirra lesin upp. Þá hefur Markaðurinn fyrir
því heimildir að á föstudeginum 10. hafi borist inn á
borð Nýherja upplýsingar um að enn væri hægt
koma að tilboðum.
Á laugardegi voru svo fulltrúar TM Software
boðaðir á fund og greint frá því að tvö önnur tilboð
væru komin fram, annað munnlegt. Fyrirtækinu
var boðið að ganga til samninga um kaupin gegn því
að falla frá ákveðnum fyrirvörum sem gerðir höfðu
verið um kaupin, en á það var ekki fallist.
Svanbjörn Thoroddsson, forstöðumaður við-
skiptaþróunarsviðs Straums-Burðaráss, segir mis-
skilning að EJS Group hafi verið í útboðsferli sem
loka hefði átt á ákveðnum tímapunkti. „Við vorum
með fyrirtækið í sölumeðferð þar sem leitað var
tilboða hjá nokkrum aðilum. Tilboð bárust svo ekki
öll um leið þótt þannig hafi viljað til að opnuð voru
samhliða tilboð sem bárust á sama tíma. Daginn
eftir barst svo annað tilboð. Í framhaldinu mátum
við tilboðin og seljandi tók því hagstæðasta. Í því
ferli var ekkert skrítið eða óeðlilegt,“ segir hann og
kveður ekki hafa verið leitað fleiri tilboða eftir að
þau fyrstu voru opnuð.
HÖFUÐSTÖÐVAR EJS VIÐ
GRENSÁSVEG Í REYKJAVÍK
Skrifað var undir samninga um
kaup Skýrr á EJS snemma í síðasta
mánuði, en kaupin gengu svo í
gegn um miðjan þennan mánuð
að lokinni áreiðanleikakönnun.
MARKAÐURINN/ANTON BRINK
Óánægja með
söluferli EJS Group
TM Software taldi sig fá að kaupa EJS eftir opnun
tilboða í fyrirtækið. Söluferlið hélt hins vegar áfram
og EJS selt Skýrr. Straumur-Burðarás sá um söluna.
Hlutabréf í Fiskeldi Eyjafjarðar
voru þau hlutabréf sem fóru
sjaldnast í gegnum viðskiptakerfi
Kauphallar Íslands á síðasta ári,
aðeins þrisvar sinnum, og námu
heildarviðskiptin alls 145 þúsund
krónum. Til samanburðar voru
14.866 viðskipti með hlutabréf
í KB banka í fyrra samkvæmt
árbók Kauphallarinnar.
Veltuhraði hlutabréfa í
Fiskeldi Eyjafjarðar, sem segir
til um hversu oft heildarhlutafé
hlutafélagsins skiptir um hendur
á einu ári, var því nánast enginn
árið 2005.
Aðeins tuttugu viðskipti
voru með bréf Sláturfélags
Suðurlands í nærri 360 milljóna
króna veltu. Veltuhaði hlutafjár
var hins vegar 129 prósent, sem
var með því hæsta sem þekktist í
Kauphöllinni á síðasta ári.
32 viðskipti voru með bréf
Fiskmarkaðs Íslands í 115,5
milljóna króna veltu. Veltuhraði
hlutafjár var 29 prósent. - eþa
Misvinsæl
hlutabréf