Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 32
MARKAÐURINN 22. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR12
Ú T T E K T
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, segir að gróf-
lega megi merkja fjóra vendipunkta í þróun
kvikmyndaframleiðslu á Íslandi. Fyrst beri að
nefna þegar Kvikmyndasjóður var stofnaður
árið 1979. Annar vendipunktur hafi orðið í
kringum 1985 þegar Hrafninn flýgur var gerð
með þátttöku Svía með breiðari fjármögnun
en áður þekktist. Árið 1992 þegar Börn náttúr-
unnar voru tilnefnd til Óskarsverðlauna vakn-
aði fyrst verulegur áhuga fagaðila á íslenskri
kvikmyndagerð og því fylgdi frekara samstarf.
Fjórði punkturinn var svo samningur sem gerð-
ur var árið 1998 milli menntamálaráðuneytis
og fjármálaráðuneytis um stefnumörkun til
að auka fjárframlög og fjölda kvikmynda á
Íslandi. Sá samningur var gerður til fjögurra
ára ener útrunninn núna og verið er að vinna
í því með menntamála- og fjármálaráðuneyti
að fá hann endurnýjaðan sem og samning við
Félag kvikmyndagerðarmanna.
378 MILLJÓNIR TIL KVIKMYNDA Í ÁR
Miðað við hve miklu er varið til hinna ýmsu
lista- og menningargreina er hlutur kvikmynda
heldur rýr. „Í fyrra voru 378 milljónir ætlað-
ar kvikmyndageiranum sem er ívið minna en
fer til dæmis til Þjóðleikhússins eingöngu,“
segir Laufey. Í þeirri upphæð er allt er snýr
að kvikmyndamálum. Til dæmis framleiðsla á
kvikmyndum, þar með talið heimilda- og stutt-
myndum, handritastyrkir, kynningar á íslensk-
um myndum í útlöndum og þátttaka í alþjóð-
legu starfi. Þetta þykir Laufeyju lítið fjármagn
miðað við hvað framleiðendur leggja á móti til
íslenskrar menningar, fyrir utan þá landkynn-
ingu og þann slagkraft sem verður til við kvik-
myndagerð, enda hefur Kvikmyndamiðstöð
verið gagnrýnd fyrir að veita ekki hærri styrki
í hvert verkefni. Laufey útskýrir það með því
að Kvikmyndamiðstöðin hafi sjálf undanfarin
ár einungis haft um 170 milljónir árlega sem
eru eyrnamerktar beinum framlögum til handa
bíómyndum. Færu allir þeir peningar í eina
eða tvær myndir dygði það engan veginn til að
halda lágmarksstarfsemi til þess að iðnaðurinn,
með lágmarksfagþekkingu og -reynslu, fái þrif-
ist hér á landi. Eins má nefna lög um 12 prósent
endurgreiðslur vegna framleiðslukostnaðar
sem til fellur hér á landi.
BRANSINN KALLAR Á FJÁRMAGN
Kvikmyndagerð er dýr og sérhæfður bransi
og mjög háður fjármagni. Þess vegna leita
kvikmyndagerðarmenn út fyrir landsteinana
eftir því fjármagni sem upp á vantar. Laufey
segir íslenska kvikmyndagerðarmenn í raun
hafa verið arkitekta að því evrópska samfram-
leiðslumódeli sem algengt er í dag. Dæmigert
framleiðslumódel hér á landi sé þannig að 25
til 40 prósent kostnaðar er borgaður með inn-
lendum styrkjum og restina verður að sækja
annars staðar frá. Aðrar þjóðir hafa tekið sér
þetta módel til fyrirmyndar. Til að mynda þótti
eðlilegt á Norðurlöndunum fyrir tíu árum að
ríkið styrkti um 90 prósent af framleiðslu-
kostnaði. Nú er það hlutfall komið mun neðar
og er kannski í 30 til 40 prósentum eins og hér-
lendis. „Munurinn milli landanna er helst sá að
erlendir framleiðendur fá breiðari fjármögnun
í heimalandi sínu. Kvikmynd í Danmörku sem
kostar 150 til 170 milljónir í framleiðslu fær
til dæmis um 50 milljónir í styrk úr þarlendum
Kvikmyndasjóði. Því til viðbótar fást 30 til 35
milljónir frá sjónvarpsstöð. Þessu er ekki fyrir
að fara hér, íslenskir framleiðendur fá kannski
2 til 5 milljónir frá sjónvarpsstöðvunum ef þeir
eru heppnir. Hér borga sjónvarpsstöðvarnar
langtum minna en þær eru að fá fyrir pening-
ana sem þær leggja í framleiðsluna.“
Kynningar erlendis eru veigamikill
þáttur í markaðssetningu kvikmynda og
Kvikmyndamiðstöð tekur þátt í þeim. Þær nýt-
LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR,
FORSTÖÐUMAÐUR
KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR
ÍSLANDS
Íslenskir kvikmyndaframleiðendur
arkitektar evrópskrar samframleiðslu
Ýmislegt í umhverfi íslenskrar kvikmyndagerðar hefur breyst á síðastliðnum fimmtán árum. Flestar breytingarn-
ar hafa verið jákvæðar þótt smæð markaðarins og skortur á fjármagni standi framförum fyrir þrifum. Hólmfríður
Helga Sigurðardóttir talaði við þrjá einstaklinga sem lifa og hrærast í heimi kvikmyndanna.
F R A M L E I Ð S L U S T Y R K I R K V I K M Y N D A S J Ó Ð S 2 0 0 6
Fyrirtæki Titill Leikstjóri/Höfundur Upphæð
Kakali Óvinafagnaður Friðrik Þór Friðriksson 72.000.000
Taka Utan þjónustusvæðis Ari Kristinsson 25.000.000
Zik Zak Good Heart Dagur Kári 45.000.000
Storm Virkjunin Björn Br. Björnsson 40.000.000
Saga Film The Journey Home Liv Ullmann 15.000.000
Sögn Mýrin Baltasar Kormákur 45.000.000
Kvikmyndafélag Íslands Astrópía Otto G. Borg / Ævar Grímsson 37.000.000
Umbi Veðramót Guðný Halldórsdóttir 45.000.000
Í fyrra voru 378
milljónir ætlaðar
kvikmyndageir-
anum, sem er
ívið minna en
fer til dæmis til
Þjóðleikhússins
eingöngu ... í
þeirri upphæð
er allt er snýr að
kvikmyndamál-
um. Til dæmis
framleiðsla á
kvikmyndum,
handritastyrk-
ir, kynningar á
íslenskum mynd-
um í útlöndum og
þátttaka í alþjóð-
legu starfi.