Fréttablaðið - 31.03.2006, Qupperneq 27
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
31. mars, 90. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 6.50 13.32 20.16
Akureyri 6.31 13.17 20.04
ÓDÝR MATUR
OG GÓÐUR
Það þarf ekki að
vera dýrt að
elda góðan
mat.
MATUR 2
Draumarúm í Bæjarlind bjóða
vörur á 25-40 prósenta afslætti
um helgina. Meðal þeirra eru
sloppar, heilsukoddar,
rúmgaflar og rúm.
Stórt páskaegg
frá Nóa Síríus
fylgir öllum seldum
rúmum.
Flash á Laugavegi 54 býður 20
prósenta afslátt af sínum vörum
en auk þess er meiri afsláttur af
völdum vörum. Til að mynda er
hægt að fá gallabuxur á 3.990
kr., gallajakka á 2.990 kr., peysur
á 2.990 og sígunapils á 2.990.
Ofnsteikin í sunnudagsmatinn
fæst í Fjarðarkaupum á tilboði.
ALLT HITT
[LAUGAVEGUR MATUR TILBOÐ]
VIÐSKIPTAVINIRNIR
ÓMETANLEGUR
FJÁRSJÓÐUR
Kristín Einarsdóttir hefur
rekið verslunina Sigurbogann
við Laugaveg í fjórtán ár.
LANGUR LAUGARDAGUR 7
Ásdís Birta Gunnarsdóttir er sannur
matgæðingur og hún leggur mikið upp úr
því að fjölskyldan eigi saman góða stund við
matarborðið.
„Fjölskyldan borðar alltaf saman,“ segir Ásdís
Birta Gunnarsdóttir, eigandi meðgöngufataversl-
unarinnar Tvö líf. „Maðurinn minn er flugmaður
en þegar fjölskyldan kemur saman, og allir eru á
landinu, þá borðum við alltaf saman og gerum
það að fjölskyldustund. Mér finnst sú stund
mikilvæg og við sitjum eins lengi og börnin
leyfa.“
Ásdís Birta er vel þekkt af sínu fólki sem
mikill sælkeri og nammgrís. „Ég á það til að draga
fram eitthvað nasl eftir matinn,“ segir Ásdís og
hlær, „hvort sem það er nammi eða ís eða Royal-
búðingur. Ég er formaður í eftirréttadeild heimil-
isins. Deili því starfi reyndar með manninum
mínum sem er algjör eftirréttakarl líka.“
Uppskriftin að parmesankjúklingnum sem
Ásdís gefur lesendum er komin frá Siggu Láru,
vinkonu hennar og meðeiganda í Tvö líf. „Það
kemur stundum fyrir að við eldum báðar þennan
rétt fyrir fjölskyldur okkar að loknum skemmti-
legum vinnudegi,“ segir Ásdís og hlær. „Þá erum
við alveg í takt. Upphaflega var gráðostur uppi-
staða í réttinum en hjá okkur hefur parmesanost-
urinn tekið völdin. Enda heitir rétturinn í dag
Parmesankjúklingur.“
Uppskrift Ásdísar að Parmesankjúklingnum
má finna á síðu tvö. johannas@frettabladid.is
Parmesan tók völdin
Ásdís Birta með dóttur sinni í
leit að sætindum í eldhúsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA