Fréttablaðið - 31.03.2006, Síða 29

Fréttablaðið - 31.03.2006, Síða 29
FÖSTUDAGUR 31. mars 2006 3 Til hnífs og skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR Katalónskur krembúðingur (crème catalane) Í byrjun frægrar bíómyndar lýsir Amelie nokkrum af helstu nautnum lífs síns en ein þeirra var kikkið sem fæst við að brjóta karamelluskurnina á crème brulèe búðingi. Hvort sem vinsældir þessa búðings eru tilkomn- ar vegna skurnarinnar sem brotnar svo skemmtilega eða annars, þá er það staðreynd að til eru áhugafélög úti um allan heim sem engan tilgang hafa annan en að vegsama þennan tiltekna búðing. Það er kannski ekki skrýtið því crème brulèe er nánast gallalaus eftirréttur. Einn smávægi- legan galla hefur hann þó og hann er sá að innihalda margar hitaeining- ar (það gerir rjóminn!) En örvæntið ekki, hér er boðið upp á spænskætt- aðan draum, Crème catalane, sem er nákvæmlega sams konar búðingur en gerður úr mjólk í stað rjóma, og þannig miklu hollari þó ekki vanti karamelluskurnina, sem gefur alveg sama kikkið! 1/2 lítri mjólk börkur af 1/2 límónu 1 kanilstöng 4 eggjarauður 7 msk. sykur 1 og 1/2 msk. maizena-mjöl múskat 1. Látið mjólkina malla í potti á lágum hita ásamt kanilstöng og límónuberki í tíu mínútur. Takið þá pottinn af hellunni og veiðið börkinn og kanil- stöngina upp úr. Hrærið 3 msk. af sykri saman við eggjarauðurnar í skál og hrærið maizena-mjölinu vel saman við. 2. Dreypið dálitlu af heitri mjólkinni út í eggjablönduna áður en henni er svo hellt varlega út í afganginn af mjólkinni í pottinum. Hrærið vel í á meðan hellt er. Setjið pottinn aftur á helluna og hrærið stanslaust þar til búðingurinn hefur þykknað hæfilega mikið. Passið upp á hitann, þannig að búðingurinn sjóði ekki. 3. Skiptið búðingnum á milli fjögurra eldfastra skála og látið standa í kæli í minnst tvo klukkutíma. 4. Lokaskrefið við gerð búðingsins er að útbúa karamelluskurnina ómótstæðilegu. Þá er afganginum af sykrinum og ögn af múskati blandað saman og því svo stráð jafnt yfir búðinginn í skálunum. Bakaraofninn er stilltur á grill og þegar hann er orðinn mjög heitur setjið þá skál- arnar undir grillið í nokkrar sekúndur eða þangað til sykurinn verður að karamellu. Látið kólna nokkra stund áður en búðingurinn er borinn fram. Önnur leið til að ná fram góðri karamelluskurn á búðinginn er að nota þar til gerð logsuðutæki sem fást í öllum betri búsáhaldabúðum, og bræða sykurinn með því. Sælkeraferð um Ísland er yfirskrift sýningarinnar Matur 2006 sem hófst í Fífunni í gær og lýkur á sunnudag. Sýningin Matur 2006 er nú haldin um helgina í áttunda sinn í Fífunni í Kópavogi. Mikið er um dýrðir á sýningunni en samhliða henni er einnig sýningin Ferðatorg 2006, þar sem Ísland og matur þykja tengjast sterkum böndum. Alls konar uppákomur og keppnir verða á sýningunni, eins og keppni um Matreiðslumann ársins 2006, nemakeppni Norðurlanda, Íslandsmeistarakeppni kaffibar- þjóna og uppvöskunarkeppni. Sér- stakt barnasvæði, Orkueldhús barnanna, er uppsett þar sem börnum gefst meðal annars kostur að útbúa sitt eigið heilsusnakk. Auk þess verður haldin sérstök matreiðslukeppni barna. Félagar í Bakarasveinafélagi Íslands verða að störfum á sérstöku sýningar- svæði og málþing verður haldið um íslenskt eldhús. Dagskrá sýn- ingarinnar má sjá í blaðinu Lost- æti sem fylgir Fréttablaðinu og dreift er á sýningunni. Matur 2006 í Fífunni Daníel Ingi Jóhannsson er einn þeirra sem keppa um titilinn Matreiðslumaður ársins á sýningunni Matur 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna. Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa. Sérfræðingar í saltfiski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbítskinnar og bita Sími: 466 1016 ektafiskur@emax.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.