Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
45%
60%
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í janúar 2006.
Íslendingar 18-49 ára
Meðallestur
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
40
30
50
60
Sími: 550 5000
SUNNUDAGUR
9. apríl 2006 — 97. tölublað — 6. árgangur
STÚDENTAMIÐLUN
Hæfustu stúdentarnir
fá alltaf fyrstir vinnu
Atvinna
Í MIÐJU BLAÐSINS
���� ���� ����������������� ����� � ����� ������ ������������ ��������
�������������������������
������������
��������������������������������������������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������������� ���������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������
��� ������������������������������������������ ���������������������������������
����������������������������������������������������������������� ������������������� ��������������������������������������������������� ����������
������������������������� ��������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
Allir eiga að geta
ferðast
Helgi Jóhannsson hefur
staðið í eldlínu ferða-
þjónustunnar um
árabil.
VIÐTAL 18-19
Styrkurinn auð-
veldar starfið
Félag lesblindra fékk á
dögunum veglegan
styrk frá Velferðar-
sjóði barna.
TÍMAMÓT 16
Komin aftur á RÚV
Eva María Jónsdóttir
hefur kvatt Stöð 2
eftir farsælt samstarf
og heldur yfir á
sinn gamla stað í
Efstaleitinu.
FÓLK 42
VEÐRIÐ Í DAG
ÓHAPP Ein og sama holan í malbik-
inu á þjóðveginum á Vatnsskarði
hefur valdið nokkrum ökumönnum
tjóni í vikunni. Minnstu hefur mátt
muna að stórslys yrði.
Birgir Örn Sveinsson var á leið-
inni norður á Akureyri þegar hann
ók í holuna í fyrrakvöld.
„Ég var bara heppinn að fara ekki
út af og velta bílnum út í skurð,“
segir Birgir Örn. „Ég var með tvö
ungbörn í bílnum og einn ungling og
því hefði getað farið mjög illa.
Aðstæður voru þokkalegar þegar ég
lenti í holunni, sem er djúp með
hvössum brúnum. Ég sprengdi bæði
dekkin vinstra megin. Felgurnar
beygluðust og eru ónýtar. Þetta er að
minnsta kosti hundrað þúsund króna
tjón en það ar svo sem aukaatriði.
Það sem skiptir máli er að við slupp-
um ómeidd.“
Birgir Örn gagnrýnir Vegagerð-
ina fyrir að hafa ekki merkt hættuna
með skilti eða fyllt upp í hana. Hann
segist hafa tilkynnt um atvikið til
lögreglunnar á Sauðárkróki og
hyggst reyna að fá tjónið bætt hjá
Vegagerðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá
dekkjaverkstæði á Akureyri hafa
þrír menn komið á verkstæðið með
tjón vegna þessarar holu sem er í
veginum við Vatnskarðsvatn,
skammt frá Varmahlíð. Starfsmaður
verkstæðisins sagðist hafa spurnir
af að minnsta kosti tveimur öðrum
sem hefðu orðið fyrir tjóni vegna
holunnar. Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni var fyllt upp í hol-
una í gærmorgun. - th
Lá við stórslysi þegar faðir með þrjú börn í bílnum ók í holu á þjóðveginum:
Heppinn að velta ekki út í skurð
RAUÐAR TÖLUR - Í dag verður
yfirleitt suðvestan 5-10 m/s, hvassast
norðvestan til. Lítilsháttar snjókoma eða
slydda með morgninum norðaustan til en
síðan þurrt. Rigning eða súld vestan til,
einkum þegar líður á daginn. Hiti 0-5 stig.
VEÐUR 4
�
�
�
�
�
DANMÖRK Fylgi við danska Jafnað-
armannaflokkinn mælist nú nítján
prósent. Er þetta minnsti stuðn-
ingur við flokkinn í rúma öld, sam-
kvæmt frétt Politiken í gær.
Ár er liðið síðan að Helle
Thorning-Schmidt tók við for-
mannssætinu í flokknum eftir ósig-
urinn í síðustu kosningum. Þá kaus
fjórðungur kjósenda jafnaðar-
menn. Fylgi við næststærsta stjórn-
arandstöðuflokkinn, Róttæka,
hefur á sama tíma aukist töluvert
og mælist fimmtán prósent. Stuðn-
ingur við ríkisstjórnarflokkana
minnkar milli kannanna. - ks
Kreppa hjá jafnaðarmönnum:
Ekki minna
fylgi í 103 ár
MEÐ DÓTTURINNI Birgir Örn ásamt dóttur
sinni Mattý Rós. Bíll Birgis Arnar er enn í
Varmahlíð þar sem hann skildi hann eftir
eftir óhappið. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Góð byrjun
Njarðvíkinga
Njarðvík tók forystu
í baráttunni um
Íslandsmeist-
aratitilinn við
Skallagrím er
liðið vann sannfær-
andi sigur í fyrsta
leiknum í Njarðvík.
Borgnesingar
virkuðu þreyttir.
ÍÞRÓTTIR 34
RÓM, AP Þingkosningarnar fara
fram á Ítalíu í dag. Pólitískur áróð-
ur er bannaður degi fyrir kjördag
og mörgum Ítalanum hefur sjálf-
sagt verið létt að fá hlé frá kosn-
ingabaráttunni sem hefur tröllrið-
ið öllu undanfarin misseri.
Baráttan milli Silvio Berlusconi
og Romano Prodi hefur þótt sér-
staklega hatrömm og margir
kvartað yfir því að persónulegt
orðaskak þeirra hafa komið í veg
fyrir að aðkallandi málefni væru
rædd. Skoðanakannanir benda þó
til þess að mjótt verði á munun-
um. Sjá síðu 20.
Þingkosningar á Ítalíu:
Orðaskakið tók
mesta athygli
FORSÆTISRÁÐHERRA ÍTALÍU Berlusconi og
Prodi hafa háð hatramma kosningabaráttu.
SNORRI SNORRASON
VAKNAÐI SEM STJARNA
Hellir sér strax
í bransann
FÓLK 42
HEILBRIGÐISMÁL Ungur maður sem
svipti sig lífi vegna spilafíknar var
borinn til grafar í Digraneskirkju í
Kópavogi á miðvikudag. Minningar-
orð séra Gunnars Sigurjónssonar
sóknarprests vöktu mikla athygli en
hann gerði spilafíkn mannsins að
umfjöllunarefni á opinskáan hátt.
Maðurinn ánetjaðist fjárhættuspil-
um fyrir ári síðan. Gunnar sagði að
umræða um spilafíkn í samfélaginu
gæti orðið öðrum til hjálpar.
Gunnar sagði á annað þúsund
manns hafa fylgt manninum til graf-
ar. „Samtakamáttur fólks er til fyrir-
myndar og vonandi að hann verði til
þess að við tökum höndum saman
gegn spilafíkninni,“ sagði Gunnar.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að um sextíu manns á
öllum aldri leiti sér hjálpar hjá SÁÁ
á ári hverju. Séu sjúklingarnir allt
niður í fimmtán ára. Þórarinn sagði
að þekkt væri að spilafíklar gætu
orðið þunglyndir og fyllst örvænt-
ingu. „Meðferðarstofnun fyrir
spilafíkla var sett á laggirnar í Las
Vegas fyrir um 26 árum og gátu þeir
sem fundu til þunglyndis lagst þar
inn,“ sagði Þórarinn en hann kynnti
sér stofnunina og meðferðarúrræði í
spilaborginni fyrir fimmtán árum.
Þórarinn sagði jafnframt mikil-
vægt að spilafíkillinn gerði sér
sjálfur grein fyrir fíkninni og
brygðist við. Aðstandendur gætu
haft samband við ráðgjafa.
Júlíus Þór Júlíusson, formaður
Samtaka áhugafólks um spilafíkn,
tók undir með Þórarni og sagði
vandann alvarlegan. Um 1.500
manns hefðu leitað til samtakanna
frá upphafi, þar af fjórtán frá ára-
mótum, og meðal þeirra væru
nokkrir sem væru framarlega í
íþróttum. „Þetta er miklu alvar-
legra mál en við gerum okkur grein
fyrir,“ sagði hann. - jab
Svipti sig lífi
vegna spilafíknar
Fólk á öllum aldri leitar sér aðstoðar gegn spilafíkn. Yfirlæknir á Vogi segir þá
sem ánetjast spilafíkn eiga á hættu að verða þunglyndir og fyllast örvæntingu.
Spilafíklar bera fíknina ekki utan á sér, að sögn sóknarprests í Digraneskirkju.
FYRSTU TÓNLEIKAR ROLLING STONES Í
KÍNA Mick Jagger, söngvari rokkhljóm-
sveitarinnar, The Rolling Stones, byrjaði
tónleikana sem haldnir voru í Sjanghæ á
því að flytja lagið Start Me Up.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P