Fréttablaðið - 09.04.2006, Side 19
bara í viðskiptum og ef hlutirnir
eru ekki arðbærir og ekki hægt
að laga þá, þá bara burt með þá.
Áður héldu menn alls konar drasli
í gangi, bara svo aðrir gætu ekki
athafnað sig,“ segir hann og nefn-
ir fyrirtækið Úrval Útsýn til sög-
unnar sem hann segir hafa verið
rekið með tapi í mörg ár.
Átti að verða flugfélag
Helgi hóf störf á innanlandsdeild
Samvinnuferða árið 1978 og varð
framkvæmdastjóri 1983. Því starfi
gegndi hann til ársins 2000 þegar
hann hætti, með þeim orðum að
afskiptum hans af ferðaþjónustu
væri lokið. Hann settist á
skólabekk, fór í MBA-nám í
Háskólanum í Reykjavík, og kom
þaðan út endurnærður og reiðu-
búinn að skella sér í ferðaþjónust-
una. „Ég vann eins og brjálæðing-
ur í tuttugu ár og það kom bara að
því ég fjaraði út. Námið gerði mér
mjög gott og ég las mér til um nýj-
ungar og breytta aðferðafræði.
Áður en ég vissi af var ég farinn
Ferðalög eiga ekki að vera forrét tindi
að hugsa með mér hvers vegna
ferðaþjónustan notaði ekki þessar
nýju aðferðir.“
Þorsteinn Guðjónsson var á
sama tími í námi í Bandaríkjunum
og þeir skiptust á hugmyndum í
gegnum netið. „Fyrst ætluðum við
að stofna lággjaldaflugfélag en
Iceland Express var komið lengra.
Við notuðum því sömu hugmynd
fyrir ferðaskrifstofu.“
Allir geti ferðast
Eins og gengur réðu tilviljanir því
að Helgi byrjaði að vinna hjá
Samvinnuferðum en hann skilur
ekki almennilega hvers vegna
honum var falið að sjá um
innanlandsdeildina. „Ég hafði
aldrei ferðast að ráði um landið og
átti svo að útbúa leiðalýsingar um
landið. Ég var mjög slappur í
landafræðinni og ruglaðist enda-
laust á Seyðisfirði og Siglufirði,“
segir hann og hlær. Þrátt fyrir
þennan galla á sínum tíma finnur
Helgi í dag mesta hvíld á ferðalögum
innanlands og kýs þau heldur en
utanlandsferðir. Hann segir þó
gaman að skreppa til útlanda við og
við en velur þá staði þar sem asinn
er sem minnstur.
En hvernig hefur hann þolað við
í ferðaþjónustunni í öll þessi ár? „Ég
hef lengi verið haldinn þeirri áráttu
að ferðalög eigi ekki að vera
forréttindi heldur ættu allir að eiga
kost á því að ferðast til útlanda. Fólk
þarf að geta skipt um umhverfi og
koma endurnært til baka. Það hefur
verið leiðarljós mitt að gera ferðalög
að almenningseign en ekki sér-
réttindum fyrir útvalda.“ ■
MINNSTA SKRIFBORÐ LANDSINS Skrifstofa
Sumarferða lætur lítið yfir sér og fram-
kvæmdastjórinn situr við skrifborð sem
rúmar tölvu, síma, almanak og kaffibolla.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Með vísan til 9. gr., sbr. og 11. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 auglýsir
Póst- og fjarskiptastofnun eftir umsóknum um heimild til notkunar á tíðnum
fyrir háhraða aðgangsnet á 3,5 GHz og 10 GHz.
Umrædd tíðnisvið eru m.a. ætluð fastasamböndum, svo sem milli
móðurstöðva og fastra radíóstöðva notenda þar sem þau mynda þráðlaust
aðgangsnet sem kemur í stað heimtauga í jörðu. Gert er ráð fyrir að
gagnaflutningsþjónusta sem veitt verður notendum verði með hraða sem er
sambærilegur við aðgangsnet sem nota hefðbundnar koparheimtaugar í jörðu,
t.d. ADSL.
Sérhver úthlutun mun fela í sér heimild til notkunar á 28 MHz (2 x 14 MHz)
bandbreidd. Að uppfylltum vissum skilyrðum má þó veita heimild til notkunar
á 14 MHz (2 x 7 MHz) til viðbótar án auglýsingar.
Afhenda skal umsóknir í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar bæði á
pappírs- og tölvutæku formi. Með hverri umsókn skal fylgja greiðsla að
upphæð 70.000 kr.
Upplýsingar um útboðið og hvað þurfi að koma fram í umsókn og skilmála,
má nálgast í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar, Suðurlandsbraut 4,
Reykjavík, og á heimasíðu stofnunarinnar www.pfs.is
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2006, kl. 16:00
úthlutun tíðniheimilda
fyrir háhraða aðgangsnet
á 3,5 GHz og 10 GHz
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
P
O
S
32
13
3
0
4/
20
06
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 19