Fréttablaðið - 09.04.2006, Page 25
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
A
LC
3
20
14
04
/2
00
6
Búðareyri 3
730 Reyðarfjörður
Sími 470 7700
www.alcoa.is
Almennar kröfur sem gerðar eru til allra starfsmanna:
• Færni í mannlegum samskiptum
• Vilji til að starfa í teymum með jafningjum
• Jákvæðni og virðing fyrir öðrum
• Vilji til að leita stöðugra endurbóta
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
Fjölbreytt og spennandi
störf hjá Alcoa Fjarðaáli
Við tökum vel
á móti þér
Frekari upplýsingar fást á
www.alcoa.is og hjá
Sigurlaugu Þorsteinsdóttur
(sigurlaug@img.is) og Helgu
S. Guðmundsdóttur
(helgas@img.is) hjá IMG
Mannafli-Liðsauka.
Við hvetjum konur jafnt
sem karla til að sækja
um störf hjá Alcoa
Fjarðaáli.
Starfsumhverfi er
hannað þannig að öll
störf henta jafnt báðum
kynjum og stefnt er að
góðri aldursdreifingu
starfsmanna. Fjarðaál á
að endurspegla og efla
samfélagið.
Allir starfsmenn munu
búa á Austurlandi og
greiðir fyrirtækið götu
þeirra sem þurfa að
flytjast búferlum.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf 1. október 2006.
Umsóknarferstur er til og með 23. apríl næstkomandi.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á
heimasíðu IMG Mannafls-Liðsauka, www.mannafl.is og láta starfsferilskrá
fylgja með. Allir umsækjendur eru boðaðir í viðtal og gildismatskönnun.
Hjá Alcoa Fjarðaáli
vinnum við saman í
sjálfstýrðum teymum.
Þannig samnýtum við
mismunandi sérþekk-
ingu, köllum fram
lifandi umræðu ólíkra
einstaklinga, veitum
hvert öðru stuðning
og lærum saman. Hin
ýmsu teymi vinna
síðan náið saman.
Viðhaldsverkfræðingar (2 störf)
Við leitum að viðhaldsverkfræðingum til að tryggja stöðugleika framleiðslunnar með því að stýra viðhalds-
og úrbótaverkefnum á tæknibúnaði Alcoa Fjarðaáls. Viðhaldsverkfræðingar greina gögn úr viðhaldskerfi sem
notuð eru til að stýra fyrirbyggjandi viðhaldi, ásamt því að taka þátt í þjálfun tæknifólks viðhaldsteymis.
Viðkomandi þurfa að hafa háskólamenntun á sviði véla- eða rafmagnsverkfræði eða tæknifræði. Góð
enskukunnátta er æskileg.
Tækniteiknarar (2 störf)
Við leitum að tækniteiknurum til að viðhalda teikningasafni Alcoa Fjarðaáls ásamt því að sinna annarri
teiknivinnu innan viðhaldsteymis. Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi í tækniteiknun eða á öðru
sambærilegu sviði og hafa reynslu af teiknivinnu í tölvum. Góð enskukunnátta er æskileg.
Notendaþjónusta
Við leitum að öflugum einstaklingi til að sinna daglegri notendaþjónustu innan fyrirtækisins, meðal annars
uppsetningu útstöðva og notkun viðskipta- og iðnhugbúnaðar. Viðkomandi þarf að hafa menntun á sviði
upplýsingatækni. Tveggja ára starfsreynsla í notendaþjónustu er skilyrði og Microsoft-gráður eru æskilegar.
Góð enskukunnátta er nauðsynleg.
Umhverfistæknar – Stjórnun og viðhald hreinsivirkja (6 störf)
Við leitum að áhugasömum og ábyrgum iðnaðar- eða tæknimönnum til að sjá um viðamikil hreinsivirki
Alcoa Fjarðaáls, þar með talin reykhreinsivirki og vatnshreinsikerfi. Umhverfistæknar þurfa meðal annars að
framkvæma reglubundnar mælingar og prófanir á tækjabúnaði og sinna úrbótum til að viðhalda
hámarksafköstum hreinsibúnaðar og tryggja stöðuga framþróun á sviði umhverfisvarna. Viðkomandi þurfa
að hafa iðn- eða tæknimenntun á sviði vélaviðhalds. Bæði er um dagvinnu og vaktavinnu að ræða.
Öryggissérfræðingur
Við leitum að traustum einstaklingi sem er tilbúinn að sérhæfa sig í öryggismálum Alcoa Fjarðaáls.
Öryggissérfræðingur þarf að þekkja öryggiskröfur fyrirtækisins til hlítar og vera fyrirmynd annarra
starfsmanna þegar kemur að öryggi. Hann greinir ástand öryggismála, sér um innleiðingu öryggisáætlana
og stjórnar öryggisþjálfun starfsmanna. Umhverfissérfræðingur þarf að hafa góða viðeigandi menntun, helst
á háskólastigi, ásamt starfsreynslu.
Sérfræðingur á heilbrigðissviði
Við leitum að einstaklingi sem tekur þátt í að móta og annast framkvæmd heilbrigðisstefnu Alcoa Fjarðaáls.
Í starfinu felst meðal annars að sinna mælingum, hafa umsjón með virkni tækja og hafa áhrif á viðhorf
starfsfólks til þeirra þátta er kunna að hafa áhrif á heilsufar þess. Viðkomandi þarf að hafa menntun í
efnafræði, eðlisfræði, heilsuverkfræði, líffræði, lýðheilsufræðum eða öðru viðeigandi. Starfsreynsla í
sambærilegu framleiðsluumhverfi er æskileg.
Iðjuþjálfi/Sjúkraþjálfari
Meginstarf iðjuþjálfa/sjúkraþjálfara felst í eftirliti með líkamsbeitingu starfsfólks Alcoa Fjarðaáls og að
skilgreina leiðir og úrbætur til að koma í veg fyrir meiðsl og atvinnutengd óþægindi vegna lyftinga,
endurtekinna hreyfinga eða staðsetningar tækja og vinnustöðva. Iðjuþjálfi/sjúkraþjálfari mun starfa með
verkfræðingum og heilbrigðisstarfsfólki fyrirtækisins að úrbótum.
Umhverfis- og vinnuverndarteymi
Viðhaldsteymi
Upplýsingatækniteymi
Viðskiptastjóri
Við leitum að viðskiptastjóra til að annast samskipti við innlenda og alþjóðlega birgja Alcoa Fjarðaáls.
Viðskiptin verða mjög fjölbreytt og umfangsmikil. Notast er við nýjustu aðferðir og tækni á öllum sviðum og
stöðugt er leitast við að bæta árangur. Starfið hentar kraftmiklum einstaklingi með mikla
samskiptahæfileika. Starfinu fylgir þjálfun bæði hérlendis og erlendis. Góð enskukunnátta er skilyrði og gott
tölvulæsi er nauðsynlegt. Háskólamenntun er kostur en ekki skilyrði ef viðkomandi hefur góða reynsla af
sambærilegum verkefnum.
Innkaupateymi
ATVINNA
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 3