Fréttablaðið - 09.04.2006, Page 35
Leitum að forstöðuþroskaþjálfa
/forstöðumanni í Kópavog
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi
óskar eftir að ráða tímabundið forstöðuþroska-
þjálfa/forstöðumann á heimili fólks með fötlun
að Marbakkabraut í Kópavogi.
Leitað er eftir þroskaþjálfa sem hefur góða
samstarfs- og skipulagshæfileika, jákvæðni og
drifkraft. Einnig kemur til greina að ráða einstakling
með menntun á sviði félagsvísinda. Laun eru
samkvæmt gildandi kjarasamningum Þ.Í eða S.F.R.
Umsóknarfrestur er til 23.04.2006.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 525-0900 á
skrifstofutíma. Umsóknareyðublöð eru á skrifstofunni
að Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði og á heimasíðu
Svæðisskrifstofu www.smfr.is
Sjúkrahúsið Vogur
Sjúkraliðar
Vegna forfalla er laus staða sjúkraliða við
Sjúkrahúsið Vog. Stórhöfða 45.
Á Sjúkrahúsinu Vogi er starfrækt afeitrun og meðferð áfen
vímefnasjúklinga. Góð vinnuaðstaða, gott umhverfi.
Frekar upplýsingar veitir Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjó
staðnum, sími 824 7615, netfang thora@saa.is
VIÐSKIPTAFULLTRÚI
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu viðskiptafull-
trúa lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 21.
apríl 2006. Frekari upplýsingar er að finna á heima-
síðu sendiráðsins: http//iceland.usembassy.gov.
SMIÐIR
Byggingafélag
Gylfa og Gunnars óskar eftir
mönnum vönum mótauppslætti.
Mikil mælingavinna framundan.
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar í síma 693-7310.
Hjá okkur er virkt
starfsmannafélag
og góður aðbúnaður.
Við leitum eftir fólki
á öllum aldri.
Gagnheiði 28
IS-800 Selfoss
Iceland
Sími +354 480 1700
Fax +354 480 1701
JÁVERK ehf. er 14 ára öflugt, metnaðarfullt og vaxandi verktakafyrirtæki. Starfsmenn eru um
80 í dag og verkefnastaða fyrirtækisins er traust næstu árin. Áætluð velta ársins 2006 er
2,6 milljarðar. Fyrirtækið er með starfsstöðvar og verkefni bæði á Suðurlandi og á
höfuðborgar- svæðinu. Helstu verkefni fyrirtækisins framundan eru:
Egilshöll bíó og keilusalir
Hótel Borg – endurbætur
Verksmiðjuhús fyrir Frónkex á Tunguhálsi
Sjúkrahús á Selfossi viðbygging
Sundlaug og íþróttahús á Borg í Grímsnesi
Leikskóli við Erlurima á Selfossi
Auk þessara verkefna eru nokkur eigin verkefni á undirbúningsstigi.
Starfsmannastefna fyrirtækisins gerir ráð fyrir að aðbúnaður og starfsumhverfi sé með því
besta sem þekkist. Starfsandi er góður og starfsmannafélagið er mjög virkt og stendur fyrir
margskonar skemmtunum og ferðalögum.
STARFSFÓLK ÓSKAST
Byggingastjóri / verkstjóri
Óskum eftir að ráða til framtíðarstarfa reyndan verkstjóra / byggingastjóra yfir framkvæmd-
um á vegum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu.
Helstu verkefni:
Stjórnun starfsmanna og undirverktaka og skipulag á vinnustað.
Samskipti við verkkaupa og undirverktaka.
Eftirlit með verkáætlun.
Innkaup í samráði við verkefnastjóra.
Góð laun í boði fyrir reynda og öfluga stjórnendur.
Allar nánari upplýsingar veita Gylfi í síma 860 1707 (gylfi@javerk.is) og Guðmundur í síma
860 1730 (gbg@javerk.is).
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
AtvinnaByggingastjori_16x20cm.aiPage 1 4/7/06 10:52:43 AM
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Starfsmannasvið
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
www.heilsugaeslan.is
Laus störf hjá Heilsugæslu höfuborgarsvæðisins
Innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru heilsugæslustöðvarnar í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi, alls 15 heilsugæslustöðvar, auk Heilsuverndarstöðvarinnar og
Miðstöðvar heimahjúkrunar í Reykjavík. Starfsmenn stofnunarinnar eru alls um 600.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast til starfa við Miðstöð heimahjúkrunar sem fyrst
eða eftir nánara samkomulagi. Miðstöð heimahjúkrunar sinnir sólarhringsþjónustu, svo um
er að ræða morgun-, kvöld- og næturvaktir. Samkomulag getur verið um vinnufyrirkomu-
lag sem og starfshlutfall.
Einnig er verið að leita eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum eingöngu til
sumarafleysinga.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar við
Miðstöð heimahjúkrunar
Miðstöð heimahjúkrunar er til húsa að Álfabakka 16 í Reykjavík. Miðstöðin sér um
dag-, kvöld-, helgar og næturþjónustu fyrir íbúa Reykjavíkur og Seltjarnarness sem
þarfnast heimahjúkrunar.
Starf hjúkrunarfræðings og sjúkraliða hjá Miðstöð heimahjúkrunar krefst sjálfstæðra
vinnubragða og þarf umsækjandi að búa yfir góðri reynslu og hæfileikum til að geta
unnið sjálfstætt. Bíll til afnota á vinnutíma.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir: Þórdís Magnúsdóttir, forstöðumaður
Miðstöðvar heimahjúkrunar, í síma 513-1300, netfang: thordis.magnusdottir@hhjuk.hr.is
Umsóknum skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfum.
Umsóknir sendist til starfsmannasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Barónsstíg 47,
101 Reykjavík, fyrir 23. apríl n.k.
Reykjavík, 9. apríl 2006.
ATVINNA
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 13