Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 36
ATVINNA
14 9. apríl 2006 SUNNUDAGUR
Björg Helgadóttir er
landfræðingur og vinnur
hjá Landupplýsinga-
deild Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar. Hún
segir að starfið sé mjög
fjölbreytt og skemmti-
legt.
Hjá Reykjavíkurborg þarf
Björg að fást við ýmis ólík
verkefni. „Mitt starf felst
mikið í umferðartalningum
og hraðamælingum auk
þess sem ég starfa við. Hún
er alltaf á haustin og er sam-
evrópskt verkefni sem á að
stuðla að því að fólk noti
einkabílana á skynsamleg-
an hátt,“ segir hún.
Björg lauk BS-prófi í
landafræði frá Háskóla
Íslands árið 1999. Eftir að
hún kláraði námið fór hún
fyrst að vinna hjá Flugleið-
um og síðan hjá Reykjavík-
urborg en lokaritgerðin
hennar, sem fjallaði um
skipulagsmál og umferð,
varð til þess að hún fékk
vinnu hjá Landupplýsinga-
deild. „Nú í vikunni eru sex
ár síðan ég byrjaði að vinna
hjá Reykjavíkurborg,“ segir
hún.
Björg segir að umferð-
artalningarnar séu mikil-
vægar fyrir skipulagsvinnu
í borginni. „umferðartaln-
ingar eru notaðar til þess
að meta hvort breyta þarf
einhverjum gatnamótum
eða endurskipuleggja eitt-
hvað í tengslum við umferð-
ina, endurstilla umferðar-
ljós og þess háttar.“ Hún
segir að hraðamælingar
séu margs konar. „Ég vinn
mikið í þrjátíu kílómetra
hverfunum og í nágrenni
við skóla. Ég mæli hraðann
þar, bæði fyrir og eftir að
er búið að setja upp þrjátíu
kílómetra skilti. Ef
hámarkshraðinn er ekki
virtur þarf að gera eitthvað
í því. Það má oft kenna mér
um ef búið er að setja upp
hraðahindrun eða þreng-
ingu einhvers staðar,“ segir
Björg og hlær.
Björg segir að starfið sé
mjög fjölbreytt og skemmti-
legt. „Ég er ýmist fyrir
framan tölvuna að vinna úr
gögnum eða úti á vettvangi
með verkfærakassann og
naglabyssuna að setja upp
tæki.“ emilia@frettabladid.is
Mælir hraðann
í borginni
Björg Helgadóttir landfræðingur vinnur hjá Landupplýsingadeild Fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VR hvetur ungt fólk til að
láta vita ef það telur að
verið sé að brjóta á rétt-
indum þess í vinnunni.
Tuttugu til þrjátíu mál ber-
ast VR árlega frá ungu fólki
á vinnumarkaði. Er þá oft-
ast um að ræða brot á lág-
marksréttindum eins og
hvíldartíma, veikindarétti,
uppsagnarfresti eða lág-
markslaunum. Í flestum til-
vikum leysast málin fljótt
og auðveldlega, enda er oft-
ast þekkingarleysi yfir-
manna um að kenna eða
misskilningi milli aðila.
Aftur á móti er oftar brotið
á ungu fólki en þeim sem
eldri eru.
Þriðjungur félagsmanna
VR er yngri en 25 ára og
stóðu þeir fyrir auglýsinga-
herferð árið 2003 sem vakti
sterk viðbrögð. Nú hvetur
félagið ungt fólk til þess að
láta vita ef það telur að
verið sé að brjóta á réttind-
um þess og auk þess að
kynna sér réttindi sín vel.
Það er til dæmis hægt á
heimasíðu VR, www.vr.is
Réttur ungs fólks
Oftar er brotið á réttindum ungs fólks en því eldra.
Fjölskyldudeild
Framkvæmdastjóri barnaverndarnefndar.
Fjölskyldudeild Akureyrabæjar óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra
barnaverndarnefndar. Um nýtt starf er að ræða. Starfssvið
framkvæmdastjóra er eftirfarandi:
• Stjórnar og ber ábyrgð á vinnslu barnaverndarmála á Fjölskyldu
deild og er yfirmaður sérhæfðs starfsliðs barnaverndar.
• Vinnur fyrir barnaverndarnefnd Eyjafjarðar og ber ábyrgð gagnvart
henni á því að framkvæma þær ákvarðanir sem nefndin tekur.
• Ber ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlanagerð að því er viðkemur
barnavernd, í samvinnu við deildarstjóra Fjölskyldudeildar.
• Sér um ársskýrslugerð fyrir barnavernd og vinnur að ýmsum for
varnar og þróunarverkefnum.
• Tekur auk stjórnunar þátt í vinnslu barnaverndarmála.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í félagsráðgjöf eða sálfræði og
viðeigandi starfsleyfi á Íslandi. Önnur menntun getur komið til greina
svo sem embættispróf í lögfræði. Starfið krefst góðrar hæfni til stjórn-
unar og innleiðslu nýrra vinnubragða. Það krefst mikils sveigjanleika
og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af stjórnun er æskileg og reynsla af vinnu í barnaverndarmál-
um er skilyrði.
Sálfræðingur.
Fjölskyldudeild óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa. Um er að ræða
starf á sviði einstaklingsþjónustu við leik- og grunnskóla. Á verksviði
sálfræðings við sérfræðiþjónustu skóla á Fjölskyldudeild eru greiningar
einstakra nemenda ásamt ráðgjöf/meðferð.
Gerð er krafa um að viðkomandi hafi réttindi til að starfa sem sálfræð-
ingur á Íslandi. Auk þess er gerð krafa um haldgóða þekkingu og
reynslu á greiningu, ráðgjöf og meðferð barna. Reynsla af starfi skóla-
sálfræðings er nauðsynleg. Æskilegur ráðningartími er frá 1. ágúst
2006.
Launakjör vegna starfs sálfræðings eru samkvæmt kjarasamningi Sál-
fræðingafélags Íslands og Launanefndar sveitarfélaga.
Félagsráðgjafi.
Laus er staða félagsráðgjafa í félagsþjónustu. Um er að ræða afleys-
ingu í eitt ár frá 1. maí 2006. Starfið felst í þjónustu skv. Lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Um er að ræða annars vegar
félagslega ráðgjöf og hins vegar vinnu við fjárhagsaðstoð, þ.e. mót-
töku og vinnslu fjárhagserinda. Leitað er eftir félagsráðgjafa en til
greina kemur að ráða starfsmann með annarskonar háskólapróf.
Reynsla af félagsþjónustu eða þjónustu skv. Lögum um máefni fatl-
aðra nr. 59/1992 er æskileg.
Launakjör vegna starfs félagsráðgjafa eru samkvæmt kjarasamningi
SÍF og Launanefndar sveitarfélaga.
Akureyrarbær hefur sameinað hefðbundna félagsþjónustu, barnavernd,
þjónustu við fatlaða og þjónustu við leik og grunnskóla í einni deild.
Unnið er markvisst þróunarstarf og þátttaka í þverfaglegu starfi er
mikilvæg. Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæj-
ar um jafnréttismál við ráðningu í störfin.
Upplýsingar um störfin veita Karl Guðmundsson, sviðsstjóri félagssviðs
í síma 460 1488 og netfang: karlg@akureyri.is og Guðrún
Sigurðardóttir, deildarstjóri fjölskyldudeildar í síma 460 1420 og
netfang: gudruns@akureyri.is
Umsóknareyðublöð fást í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9
og á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is,
umsóknarfrestur er til 20. apríl 2005.
FLOKKSTJÓRI, SUMARVINNA
Faxaflóahafnir sf óska að ráða til starfa
flokkstjóra sumarvinnuflokks.
Starfið felst í umsjón með sumarvinnuflokknum sem vinnur
að hirðingu opinna svæða auk minni viðhalds- og
þjónustuverkefna á vegum hafnanna. Um tímabundið starf
er að ræða. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af
garðyrkjustörfum. Vinnuflokkurinn mun hafa starfsstöð í
Bækistöð Faxaflóahafna að Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefur
Jón Guðmundsson í síma 5258951.
Reykjavík
Grundartangi
Akranes
Borgarnes
Faxaflóahafnir sf
Associated
Icelandic
Ports
Starfsfólk óskast við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
næsta skólaár. Í skólanum eru 610 áhugasamir og
góðir nemendur í 1. til og með 10. bekk og frábært
starfsfólk. Mat á skólastarfinu í vetur hefur m.a.
staðfest góðan vinnuanda starfsfólks og ótvírætt
traust foreldra á starfi skólans. Síðastliðin tvö skólaár
hefur verið unnið að þróunarverkefni Dans Olweus-
ar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Ennfremur
fá kennarar góðan stuðning og handleiðslu við að
þróa kennsluhætti sína, en símenntunaráætlun
skólans miðar meðal annars að því. Lögð er mikil
áhersla á foreldrasamstarf og við skólann starfar
öflugt og áhugasamt foreldrafélag og foreldraráð
sem styður við starfið með ráðum og dáð.
Veffang skólans er www.oldutunsskoli.is
Leitað er að starfsfólki í eftirtalin störf :
Skólaliða.
Matráð í mötuneyti starfsmanna.
Smíðakennara, umsjónarkennara á miðstigi,
dönsku- og íslenskukennara í unglingadeild.
Íþróttakennara til að kenna stúlkum á
unglingastigi, hlutastarf.
Deildarstjóra, kennara og þroskaþjálfa við sér
deild sem starfrækt er í skólanum fyrir nemendur
í 8. til 10. bekk.
Upplýsingar um störfin gefa Erla Guðjónsdóttir,
skólastjóri, s. 664 5896, María Pálmadóttir,
aðstoðarskólastjóri, s. 664 5898 og Guðmundur
Ingi Jónsson, aðstoðarskólastjóri, s.664 5899.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl næstkomandi.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun, fyrri
störf og meðmælendur, skal senda á netfangið
herla@oldutunsskoli.is eða með pósti í
Öldutúnsskóla v/Öldutún, 220 Hafnarfjörður.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
ÖLDUTÚNSSKÓLI HAFNARFIRÐI
KENNARAR OG SKÓLALIÐAR
SKÓLAÁRIÐ 2006-2007
Bílamálun og réttingar
Óskum eftir að ráða réttingarmann á nýttt bílasprautu
verkstæði í Súðavík. Húsnæði til staðar.
Súðavík stendur við vestanverðan Álftafjörð við Ísafjarðardjúp.
15 mín akstur er til Ísafjaraðar. Frír leikskóli er í sveitarfélaginu.
Uppl. gefur Jónas Skúlason í síma 456-5950
865-7343. Minney ehf. Bílamálun.
JÁRNIÐNAÐARMENN
ÓSKUM AÐ RÁÐA NÚ ÞEGAR VANA JÁRNIÐANAÐARMENN
MEÐ EFTIRFARANDI RÉTTINDI. VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ
MÖNNUM SEM GETA UNNIÐ SJÁLSTÆTT,
SEM OG Í STÆRRI HÓPUM.
PLÖTUSMIÐI
STÁLSKIPASMIÐI
VÉLVIRKJA
RAFSUÐUMENN
ÓSKUM EINNIG EFTIR AÐ RÁÐA AÐSTOÐARMENN
MEÐ ÁHUGA Á AÐ KOMAST Á SAMNING
UMSÓKNAREYÐUBLÖÐ LIGGJA FRAMMI Á SKRIFSTOFU
KAPLAHRAUNI 17, UPPLÝSINGAR EINNIG VEITTAR Í SÍMA
660 96 60 EIRÍKUR OG 660 96 70 GUÐMUNDUR Á MILLI
KLUKKAN 9 OG 17 VIRKA DAGA.
VÉLSMIÐJA ORMS OG VÍGLUNDAR VAR STOFNUÐ ÁRIÐ 1973, HÚN HEFUR SÉR-
HÆFT SIG Í NÝSMÍÐI Á TÆKJUM OG VÉLBÚNAÐI FYRIR IÐNAÐ OG VIRKJANIR.
FYRIRTÆKIÐ ER EINNIG Í VIÐHALDI OG ÞJÓNUSTU Á SKIPUM OG BÁTUM ÞAR
SEM LÖGÐ ER RÍK ÁHERSLA Á VÖNDUÐ VINNUBRÖGÐ. GRUNN EININGAR
ÞESS ERU PLÖTUVERKSTÆÐI, RENNIVERKSTÆÐI, TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI,
SLIPPUR OG FLOTKVÍAR.