Fréttablaðið - 09.04.2006, Síða 76
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR24
Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12.
Þú sendir SMS skeytið
JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ
á númerið 1900!
Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er
Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON.
99 kr/SMS
Borðapantanir 551 9555
www.argentina.is
Leystu krossgátuna!
Þú gætir unnið 10.000 kr.
gjafabréf á einum besta
veitingastað landsins,
Argentínu steikhúsi.
TA
KT
U
ÞÁ
TT
!
Svítan · Einkaherbergi
4 glös · 4 diskar
Grillpartý Argentínu
����� ����������
������
����� ����� ����
����
����
�����
����
�����
�����
������
�������
����
��������
������
��������
���
������
�����
���
����
��������
����
��
���
�����
�����
�������
�����
�����
��
���
����
������
������
�����
����
�����
����
���������
��������
�����
������
�������
�����
���������
����
�����
������
������
�����
�����
�������
��
������
������
��
�������
����
�����
�����
������
�������
������
����
������
�����
�����
�����
�����
���
�����
���
�������
�����
�������
�����
����
������
���
������
����
����
������
������� ����������
�������
�
�
�
�
�
�
GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU } BJARGEYJAR ÓLAFSDÓTTUR, LISTAMANNS, KVIKMYNDAGERÐARKONU OG HEIMSHORNAFLAKKARA
Hraunbraut, Kópavogi, 1972-1993
Þetta er æskuheimilið sem ég bjó
í þar til ég flutti að heiman. Þarna
var ég með endalausa fram-
kvæmdasemi í gangi. Byggði fjöl-
marga kofa í garðinum, lék mér í
fjöru þar sem ég meðal annars
týndi plastblóm sem höfðu fokið af
leiðunum í kirkjugarðinum. Móðir
mín leyfði mér ekki að eiga plast-
blómin án þess að leggja þau í klór.
Þegar ég var krakki kveikti ég í
eldhúsinu þegar ég var að baka.
Gleymdi smjörlíki á hellunni og
fór að lesa Andrésblöð. Það komu
tveir slökkviliðsbílar og ég náði að
hlaupa út með páfagaukinn en við
vorum sko ein heima.
Hafrafell í Fellum,
Fljótsdalshéraði, 1977-1987
Á hverju sumri frá fimm ára aldri
til fimmtán ára fór ég hingað í
sveit. Þetta var því sumarheimilið
þar sem ég var í endalausum
útreiðartúrum, dundaði mér við að
veiða og hélt áfram að byggja kofa.
Ég hjálpaði eitthvað til við búskap-
inn en fékk þó ansi mikið að leika
mér bara. Einn veturinn fékk ég að
skrópa í skólanum og fara þangað í
heimsókn. Þá var rosaleg ófærð og
ég fór á flugvöllinn á snjósleða,
það þótti mér mikið sport.
Jorge Juan, Madríd, 1993-1994
Ég flutti að heiman og fór til
Madrídar þar sem ég var í
Erasmus-námi í Listaháskólanum
í Madrid enda var ég Erasmus-
skiptinemi. Þetta var huggulegt
hverfi og ég bjó hérna í risastórri
íbúð með átta stelpum. Þarna var
sko oft glatt á hjalla. Fyrsta daginn
minn í Madríd var ég rænd. Ég
gerði mér þó lítið fyrir og hljóp
þjófinn uppi enda var mín
dýrmæta myndavél í bakpokanum
og ég var ekki á því að týna henni.
Bretland, 1996
Ég var skiptinemi í Bretlandi í tvo
til þrjá mánuði. Ég var í bæ sem
hét Winchester þar sem ég bjó
með fyrsta árs nemum sem kunnu
ekki að laga til. Það var gjörsam-
lega allt í drasli, þau vöskuðu
aldrei upp og ég hef aldrei séð
annað eins. Stundum var líka lag-
legur hestur fyrir utan gluggann
minn.
Helsinki, Pietarinkatu og
Oikokatu, 1996-1998
Fyrst bjó ég á Pietarinkatu sem ég
kýs að kalla Morðingjastræti.
Danskur ógæfumaður bjó í sömu
götu og ég og um það leyti sem ég
flutti inn framdi hann hryllileg-
asta morð sem Finnar muna eftir.
Hann skaut tvo lögreglumenn og á
því götuhorni voru blómsveigir í
nokkra mánuði. Reyndar var þetta
hin huggulegasta gata og nálægt
hafinu. Íbúðin var mjög lagleg í
art deco-stíl og í henni var dýpsta
og besta baðkar sem ég hef haft.
Síðan flutti ég á Oikokatu í hús
sem heitir Valotalo en það þýðir
hús ljóssins. Þarna var rosalega
hátt til lofts og skemmtilegur arki-
tektúr. Ég átti stórt, gamalt,
bremsulaust hjól og ég var alltaf
með vasadiskó þegar ég hjólaði
sem var kannski ekki svo sniðugt.
Melhagi, Reykjavík, 1998-2006
Árið 1998 keypti ég mína fyrstu
íbúð en leigði hana fljótt út.
París, 1999
Þarna bjó ég í listamannabygg-
ingu sem heitir Cite des Arts við
Signu og var vinnustofa fyrir lista-
menn. Þarna dvaldi ég í nokkurn
tíma og vann á milli þess sem ég
lenti í alls kyns ævintýrum.
Gautaborg, 2000
Fór aftur í nám og var í kvik-
mynda- og ljósmyndaskólanum í
Gautaborg. Gatan var á bak við
listasafnið og íbúðin var rosalega
draugaleg en falleg. Hún var í svo-
lítið „gothic“-stíl og mjög skemmti-
leg. Ég dvaldi þarna í fjóra mán-
uði og dreif mig í að læra sænsku
á þeim tíma.
Johannesgatan, Stokkhólmi, 2001
Ég var í íbúð í Arthotel í miðborg
Stokkhólms og var á styrk hjá fyr-
irtæki sem heitir IASPIS (Inter-
national Artist Studioprogram in
Sweden). Þar var ég með 100 fer-
metra vinnustúdíó og litla íbúð
sem var mjög falleg, hugguleg og
björt. Þarna bjuggu bara ýmsir
myndlistarmenn og tónlistar-
menn. Ég man að á Lúsíuhátíðinni
vaknaði ég snemma og fór í messu
klukkan sex um morguninn. Þá
ætlaði fólkið sem sá um pró-
grammið að vekja mig með engla-
söng og þau voru öll í englabún-
ingum. Ég gekk bara til liðs við
þau og við fórum um húsið og
vöktum hina listamennina. Fólk
hefur sennilega haldið að það væri
komið til himna þegar það vaknaði
við englasönginn okkar.
Draugahús í Weimar og
Chorinerstrasse í Berlín, 2002
Þetta ár átti ég tvö heimili í
þessum tveimur borgum. Ég var
sífellt að fara á milli því ég vann í
báðum borgunum. Í Weimar var
ég ansi viss um að draugur byggi
á ganginum. Ég hélt risastóra
afmælisveislu í stúdíói þar sem
var meðal annars handalaus
plötusnúður að spila sem mixar
drum-and-bass með tánum. Þetta
var risastór bygging og ég var
með stúdíó og íbúð þar en húsið
var við hliðina á kirkjugarðinum
þar sem Goethe og Schiller eru
grafnir.
Í Berlín leigði ég íbúð af vini
mínum og deildi henni með þýsk-
um iðnhönnuði. Ég var svo á
sífelldum þeytingi með lestum á
milli borganna.
Njálsgata og Óðinsgata,
Reykjavík, 2003
Ég hafði ætlað mér að vera rosa-
lega lengi í útlöndum og leigði
íbúðina mína út. Svo fékk ég bara
heimþrá og fór heim og leigði í
miðbænum. Á Njálsgötunni voru
rónar sífellt að brjótast inn í húsið
til að hlýja sér. Einu sinni þegar ég
kom heim voru tveir sætir rónar
sofandi eins og Þyrnirós í stiga-
ganginum. Á Óðinsgötunni bjó ég
svo í stórkostlegri íbúð með heit-
um potti í garðinum. Kjallarinn
var svo undirlagður fyrir sturtuna
og þaðan var gengt út í heita pott-
inn. Þetta var að sjálfsögðu alveg
stórkostlegt.
Suomenlinna, Helsinki, 2004
Ég bjó á þessari eyju í listamanna-
íbúð með risastóru stúdíói. Eyjan
er friðuð hjá Unesco og það voru
alltaf allir að segja að það væri
reimt þarna. Ég bjó í tveimur íbúð-
um og var á styrk hjá stofnun sem
heitir Nifca.
Dalsasen, Noregur, 2005
Þarna eru listamannavinnustofur
uppi á fjalli og þarna bjó ég í verð-
launaarkitektúrshúsum eftir Haga
og Grov. Ég var alltaf á skíðum og
gerði ásamt öðrum verkefni fyrir
norsku drottninguna. Ég bjó eigin-
lega inni í póstkorti því það var
svo fallegt þarna. Ég byrjaði hvern
dag á að labba út í skóg. Ég er allt-
af svo lengi að vakna og mér þótti
gott að klæða mig bara, rölta út í
skó og vakna þar. Svo fór ég inn og
fékk mér kaffi.
Melhagi, Reykjavík, 1998-2006
Nú er ég í íbúðinni í bili en mig
langar að fara næst til Grænlands
eða til New York. Annars finnst
mér Vesturbærinn æðislegur og
Melabúðin er besta búð í heimi.
Íbúðin mín er svolítið eins og
æskuheimili mitt því stofan er svo
stór. Það skiptir mig miklu máli að
hafa hátt til lofts og vítt til veggja.
Hverfið er líka mjög hljóðlátt og
notalegt og það er stutt í sundlaug-
ina og niður að sjó. Mér finnst gott
að hafa hafið nálægt mér.
hilda@frettabladid.is
Kveikti í eldhúsi æskuheimilisins
BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR Myndlistarkonan flakkar um heiminn og dvelur á vinnustofum á
meðan hún iðkar list sína. Hún fær þó stundum heimþrá og finnst þá gott að koma heim
á Melhagann.