Fréttablaðið - 09.04.2006, Side 82
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR30
baekur@frettabladid.is
5.hver
vinnur!
Þú sendir
SMS skeyt
ið BT FBT
á númerið
1900
Þú færð sp
urningu.
Þú svarar m
eð því að
senda SMS
skeytið
BT A, B eð
a C á
númerið 19
00.
+DVD pakki
67. 588119. 988215. 988
Dregin út
28.apríl
Dregin út
21.apríl D
regin út
12.apríl 0kr0kr0kr
S
M
S
LE
IK
UR
!
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum
Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
Blooker-verðlaunin
voru afhent í fyrsta
sinn í vikunni. Eftir
því sem næst verður
komist eru verðlaun-
in þau fyrstu sinnar
tegundar, en þau eru
veitt fyrir svokallað-
ar bloggbókmenntir
eða „blókmenntir“
því aðeins bækur sem
hafa byrjað sem
blogg eiga möguleika
á að hljóta þau.
Höfundurinn Julie
Powers hreppti
hnossið fyrir „blók“
sem lýsir því þegar
hún reyndi að elda
524 franskar sæl-
kerauppskriftir úr
bók sælkerakokksins
Juliu Child frá 1961 á einu ári en
eiginmaður Powers hvatti hana
til að blogga um þessa tilraun.
Bloggið hennar
spurðist hratt út og
kom síðar út undir
heitinu Julie og
Julia: 365 dagar,
524 uppskriftir, eitt
lítið eldhús.
Bandarískur
athafnamaður að
nafni Bob Young
kom Blooker-verð-
laununum á fót,
meðal annars til að
kynna vefsíðu sína
Lulu.com, þar sem
fólki gefst kostur á
að setja handrit á
netið og gefa út
eftir pöntun. Honum
kom ánægjulega á
óvart hversu sterk
viðbrögð verðlaun-
in fengu en alls voru 89 bækur frá
tólf löndum tilnefndar til Blooker-
verðlaunanna.
Fyrstu „blókmenntaverðlaunin“
VERÐLAUNA-„BLÓKIN“ Julie
Powers ákvað að blogga um
eldhúsraunir sínar.
Sönghópurinn Voces Thul-
es sérhæfir sig í flutningi
íslenskrar miðaldatónlist-
ar og nú er söngur hans á
Þorlákstíðum kominn út í
veglegri safnútgáfu.
Sverrir Guðjónsson, söngvari og
einn af stofnendum hópsins, rekur
aðdraganda verkefnisins allt til
ársins 1993 þegar hópurinn flutti
kafla úr tíðasöngnum í Krists kirkju
í tilefni af 800 ára ártíð Þorláks
biskups. Þorlákstíðir eru tilbeiðslu-
eða íhugunarsöngur en verkið er
eitt merkasta tónverkið sem varð-
veist hefur frá kaþólska tímanum.
Þorlákur var biskup í Skálholti á
árunum 1177-1193 og eru til um
hann mörg kvæði og textar. Ekki er
vitað hver höfundur tíðasöngsins
er en handritið, sem er á latínu, er
talið frá um 1400.
„Í framhaldi af heildarflutningi
verksins á Listahátíð í Reykjavík
árið 1998 þróaðist hugmyndin um
að hljóðrita það,“ segir Sverrir.
Síðar var tekin ákvörðun um að
vinna veglega útgáfu á því og gefa
út sannkallaða listbók. „Í öskjunni
eru þrír geisladiskar og einn DVD-
diskur en upptökurnar eru allar í
fullkomnustu hljómgæðum. Svo
fylgir latneski textinn ásamt
íslenskri og enskri þýðingu en í
bókinni sjálfri má síðan finna
greinar á ýmsum tungumálum,
meðal annars á japönsku,“ segir
Sverrir. Hópurinn leitaði til margra
sérfræðinga á vinnuferlinu, til
dæmis til bróður Daníels Saulnier,
sem er yfirmaður handritadeildar
Solesmes-klaustursins í Frakk-
landi, en hann ritar aðalgrein bók-
arinnar.
Endanleg hljóðritun verksins
fór fram í Hallgrímskirkju en
Sverrir segir að hópurinn hafi leit-
að víða að hentugum stað fyrir
upptökurnar því gregorískur söng-
ur þarfnist sérstaks hljóms til að
njóta sín. „Við fengum aðgang að
kirkjunni fyrir velvild en það tók
langan tíma að hljóðrita verkið í
heild,“ segir hann. Hópurinn hafði
áður hljóðritað í samvinnu við Rík-
isútvarpið en ákvörðun var tekin
um að taka upp á ný því hópurinn
vildi nýta sér nýjustu tækni. „Það
var viturlegt því við fórum ennþá
betur ofan í saumana á verkinu og
fundum þann tón sem við höfðum
verið að leita að,“ segir hann og
bætir við að verkefnið í heild hafi
verið mjög spennandi ferðalag
fyrir hópinn.
Hönnun gripsins er í höndum
Brynju Baldursdóttur myndlistar-
konu. „Hún byggir á dýrlingamynd
úr útsaumuðu altarisklæði frá fyrri
hluta 16. aldar,“ útskýrir Sverrir
en útkoman er einkar glæsileg.
Þessi veglegi safngripur kemur
aðeins út í takmörkuðu upplagi,
1.200 tölusettum eintökum, en
útgáfufyrirtækið 12 Tónar sér um
dreifingu. kristrun@frettabladid.is
Stafrænar Þorlákstíðir
SVERRIR GUÐJÓNSSON SÖNGVARI Voces Thules flutti fyrst kafla úr tíðasöngnum árið 1993 í
Krists kirkju í tilefni af 800 ára ártíð Þorláks biskups. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það sparar tíma og fyrirhöfn að geta flett
upp upplýsingum í tölvu í stað þess að
grufla í þykkum skruddum. Fólk sem
ver löngum stundum fyrir framan
skjái kætist víst þegar vefútgáfum
uppfletti rita fjölgar. Nú hefur Edda
útgáfa smellt saman vefbókum í
eina gjafaöskju en með henni má fá
aðgang að Íslenskri orðabók, Dansk-
íslenskri orðabók, Íslensk-danskri
orðabók, ritinu Samtíðarmönnum,
Kortabók Íslands og Nöfnum Íslend-
inga til tveggja ára.
Edda hóf útgáfu á vefritunum veturinn
2004 þegar framhaldsskólum var boð-
inn frír aðgangur að Íslenskri orðabók og
Dansk-íslenskri orðabók á vefsvæðinu
gagnasafn.is. Í fyrrahaust var vefsvæðið
vefbaekur.is opnað og þá bættust Korta-
bók Íslands, Samtíðarmenn og Íslensk-dönsk
orðabók við en Orðstöðu-
lyklar Laxness og Íslendinga-
sagna hafa frá upphafi verið
hluti af útgáfunni. Hægt er
að sækja um tímabundna
áskrift að tilteknum ritum á
vefsvæðinu.
Nýjasta viðbótin við vefritasafn
Eddu er bókin Nöfn Íslendinga
eftir Guðrúnu Kvaran, forstöðu-
mann Orðabókar háskólans, og
Sigurð Jónsson frá Arnarvatni en
hún hefur verið ófánleg um ára-
bil og verður ekki endurútgefin á
bókarformi og er því mikill fengur
í útgáfu hennar á netinu.
ÍSLENSK ORÐABÓK Hilluplássið sparað.
Fyrirferðarminni fróðleikur
HEILDARLISTI
1 DRAUMALANDIÐANDRI SNÆR MAGNASON
2 FLUGDREKAHLAUPARINNKHALED HOSSEINI
3 MUNKURINN SEM SELDI...ROBIN SHARMAN
4 SÁLMABÓKÝMSIR HÖFUNDAR
5 VÍSINDABÓKIN MÁL OG MENNING
6 FULLUR SKÁPUR AF LÍFI ALEXANDER MCCALL SMITH
7 TÍMI NORNARINNARÁRNI ÞÓRARINSSON
8 FERMIÐ OKKURHUGLEIKUR DAGSSON
9 GÆFUSPORGUNNAR HERSVEINN
10 DÝRARÍKIÐPENELOPE ARLON
HAND- OG FRÆÐIBÆKUR/ ÆVISÖGUR
1 DRAUMALANDIÐ ANDRI SNÆR MAGNASON
2 MUNKURINN SEM SELDIROBIN SHARMAN
3 VÍSINDABÓKINMÁL OG MENNING
4 GÆFUSPORGUNNAR HERSVEINN
5 ÍSLENSK ORÐABÓK I-IIIMÖRÐUR ÁRNASON
6 ÍSLENSKIR MÁLSHÆTTIRSÖLVI SVEINSSON
7 ÍSLENSKUR STJÖRNUATLASSNÆVARR GUÐMUNDSSON
8 ENSK-ÍSL/ ÍSL-ENSK ORÐABÓKORÐABÓKAÚTGÁFAN
9 DRAUMALANDARNA SKÚLADÓTTIR
10 SU DOKUWAYNE GOULD
SKÁLDVERK -INNBUNDNAR BÆKUR
1 SÁLMABÓKÝMSIR HÖFUNDAR
2 PASSÍUSÁLMARHALLGRÍMUR PÉTURSSON
3 STEINN STEINARR - LJÓÐASAFNSTEINN STEINARR
4 LJÓÐASAFNTÓMAS GUÐMUNDSSON
5 STÓRBÓKÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON
6 BREKKUKOTSANNÁLLHALLDÓR LAXNESS
7 DÁIÐ ER ALLT ÁN DRAUMAHALLDÓR LAXNESS
8 ÍSLENDINGASÖGUR I-IIIMÁL OG MENNING
9 FJALLKIRKJANGUNNAR GUNNARSSON
10 ÞJÓÐSKÁLDIN - STÓRBÓKMÁL OG MENNING
SKÁLDVERK - KILJUR
1 FLUGDREKAHLAUPARINN KHALED HOSSEINI
2 FULLUR SKÁPUR AF LÍFIALEXANDER MCCALL SMITH
3 TÍMI NORNARINNARÁRNI ÞÓRARINSSON
4 FERMIÐ OKKUR HUGLEIKUR DAGSSON
5 KLEIFARVATNARNALDUR INDRIÐASON
6 HROKI OG HLEYPIDÓMARJANE AUSTEN
7 ALKEMISTINNPAOLO COELHO
8 MÝRIN ARNALDUR INDRIÐASON
9 DAUÐARÓSIRARNALDUR INDRIÐASON
10 ENGLAR OG DJÖFLAR DAN BROWN
[METSÖLULISTI]
29. MARS - 4. APRÍL
„Koddi minn er fullur af ófæddum draumum sem
bíða fæðingar“
Upphafsorð ljóðsins „Rúmið mitt“ úr bókinni Sérstakur
dagur eftir Kristínu Ómarsdóttur. Bókin kom út árið
2000.
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
6 7 8 9 10 11 12
Sunnudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Tríó Reykjavíkur heldur
tónleika í Hafnarborg ásamt Elínu
Ósk Óskarsdóttur sópransöng-
konu.
20.00 Akureyríska metal-
hljómsveitin Nevolution spilar í
Sjallanum á Ísafirði ásamt Fabb,
Dimmu og Lack of talent.
20.00 Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson halda sálma-
tónleika í Fríkirkjunni ásamt
góðum gestum.
20.00 Vortónleikar Söng-
sveitarinnar Fílharmóníu í
Langholtskirkju. Flutt verða verk
eftir Haydn og Mozart. Stjórnandi er
Magnús Ragnarsson.
Skoðum myndlist
Fróðleg bók fyrir unga listunnendur eftir
Önnu C. Leplar og Margréti Tryggvadótt-
ur. Íslensk myndlist fyrr og nú í fléttuð
inn í skemmtilega sögu af hressum
krökkum og uppátækjasömum hundi.
> Bók vikunnar