Fréttablaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 85
Útlit er fyrir að Alexandra Dana-
prinsessa færist fljótlega aftar í
goggunarröð konungsfjölskyld-
unnar, enda er fyrrverandi eigin-
maður hennar, Jóakim prins, kominn
í alvarlegt samband við franska
yngismey sem er ellefu árum yngri
en Alexanda. Hafa dönsku vikublöðin
áhyggjur af þessu enda er prinsessan
enn í miklum metum hjá dönsku
þjóðinni og myndir af henni prýða
forsíður blaðanna títt.
Það stefnir því í að Alexandra
verði að sýna lakkaðar klærnar ætli
hún að eiga bókað sæti í fínustu
veislunum í Amalienborgarhöll í
framtíðinni.
Alexandra færist aftar
ALEXANDRA DANAPRINSESSA Þarf að
berjast fyrir sæti sínu hjá dönsku hirðinni
eftir að fyrrum eiginmaður hennar Jóakim
hóf ástarsamband við franska snót.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
TÓNLIST
[UMFJÖLLUN]
Calexico búa bara til góðar plötur,
þannig hefur það verið og nýjan
platan sannar að þannig sé það
ennþá. Sveitin hefur aldrei ollið
mér vonbrigðum og virðist ekkert
vera á leiðinni að gera það.
Garden Ruin er fyrsta platan
þeirra í þrjú ár eða frá því að þeir
gerðu meistarastykkið sitt, Feast
of Wire. Samkvæmt öllum mínum
kenningum um hljómsveitir og lífs-
daga þeirra ætti glansinn af þess-
um mönnum að vera byrjaður að
mást af en svo er ekki. Calexico
setti sér mjög skíra stefnu strax
frá upphafi. Að blanda saman
bandarískri kántríhefð við mexí-
kanska tóna. Á þessari nýju plötu
eru mexíkósku áhrifin eiginlega
alveg farin. Þetta hljómar eins og
Calexico en sveitin hefur aldrei
áður sótt jafn sterkt í bandarískar
rætur sínar. Ég held líka að þeir
hafi aldrei hljómað svona sáttir í
sínu skinn því það er ekki vottur af
tilgerð á plötunni.
Platan hljómar eins og hún sé
hljóðrituð af þeim sjálfum í æfing-
arhúsnæðinu. Þeir missa sig meira
að segja óþægilega mikið í rokkið í
þetta skiptið. Einhverstaðar las ég
viðtal við liðsmenn þar sem þeir
fullyrtu að þessi plata væri aðgengi-
legri en fyrri verk. Það er bæði rétt
og rangt. Mér finnst lögin á þessari
plötu ekki eins eftirminnileg og
mörg af þeim eldri. Þá kannski
aðallega vegna þess að útsetning-
arnar núna eru meira blátt áfram.
Sjálfur er ég örlítið hrifnari af til-
raunamennskunni en hef það samt
á tilfinningunni að þetta gæti orðið
þeirra metsöluplata.
Hvernig sem því líður þá er
Garden Ruin enn ein perlan á feril
Calexico. Hún stenst allar vænting-
ar, býður hlustandanum í þægilegt
ferðalag og nær að hreyfa við
manni á þann hátt sem óskað var
eftir. Birgir Örn Steinarsson
Nær hjarta Ameríku
CALEXICO: GARDEN RUIN
Niðurstaða: Fyrsta hljóðversskífa Calexico í
þrjú ár er engin vonbrigði. Hér er á ferð sveit
sem veit hvað hún vill, og hefur burði til þess
að koma því til skila.
VI
N
N
IN
G
A
R
VE
RÐ
A
A
FH
EN
D
IR
H
JÁ
B
T
SM
Á
RA
LI
N
D
. K
Ó
PA
VO
G
I.
M
EÐ
Þ
VÍ
A
Ð
T
A
KA
Þ
ÁT
T
ER
TU
K
O
M
IN
N
Í
SM
S
KL
Ú
BB
. 9
9
KR
/S
KE
Y
TI
Ð
.
WALT DISNEY KYNNIR SÍGILT ÆVINTÝRI C.S. LEWIS
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Í BT um
allt land!