Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 86
34 9. apríl 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Guðbjörg með í sumar
Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður
Vals, mun leika með liðinu í sumar en
þegar hún fór í speglun kom í ljós að
hún er ekki með slitin krössbönd eins
og í fyrstu var talið. Hún ætti því að vera
klár í fyrsta leik eftir rúman mánuð.
> Örn lýkur keppni
Sundkappinn Örn Arnarson hefur lokið
keppni á HM í 25 metra laug sem
fram fer í Kína. Örn átti eftir að taka
þátt í tveim greinum. Í síðustu tveim
greinum hækkaði púls Arnar óeðlilega
mikið, í 240 slög á mínútu, og þjálfari
hans vildi ekki tefla á tvær
hættur og dró hann
því úr keppni.
Örn hefur átt
við hjartavanda
að etja og fór í
hjartaþræðingu
fyrir ekki margt
löngu. Hann fer
til sérfræðings
um leið og hann
kemur heim.
Ágúst Björgvinsson er...
snilldarþjálfari.
Uppáhaldsútivöllur: Keflavík.
Besti samherjinn: Pálína.
Erfiðasti andstæðingur:
Hildur Sigurðar.
Með hverjum hélstu í Idol-
inu? Ég fylgdist ekkert með því.
Hafnarfjörður er... Góður bær.
Af hverju körfubolti? Einfald-
lega besta íþróttin.
Ef ekki körfubolti þá... fótbolti.
Bold and the Beautiful eða Neighbours?
Neighbours.
O.C. eða One Tree Hill? Þessi er erfið, One
Tree Hill.
Usher eða Justin? Usher.
Nike eða Adidas? Nike.
Best geymda leyndarmál Hauka? Sam-
bönd milli karla- og kvennaliðsins.
MEÐ HELENU
SVERRISDÓTTUR60
SEKÚNDUR
KÖRFUBOLTI „Mínir menn voru
dauðþreyttir en ég verð að hrósa
ungu strákunum, sem börðust
gríðarlega vel. Það kom snemma í
ljós að menn mínir voru þreyttir
og því setti ég menn af bekknum
inn. Ég er mjög ósáttur við hvað
við fengum litla hvíld fyrir þessa
rimmu og körfuboltans vegna
gæti einvígið ekki orðið jafn
skemmtilegt af þeim sökum. Nú
þarf bara að halda áfram að berj-
ast,“ sagði Valur Ingimundarson,
þjálfari Skallagríms, eftir að lið
hans beið ósigur 89-70 í fyrsta
leiknum gegn Njarðvík í einvíginu
um Íslandsmeistaratitilinn.
Borgnesingar byrjuðu leikinn
mjög vel og voru 23-19 yfir eftir
fyrsta leikhlutann. Ungir strákar
sem lítið hafa fengið að spreyta
sig í vetur voru í aðalhlutverki hjá
liðinu í öðrum leikhluta en George
Byrd var kominn með þrjár villur
eftir þann fyrsta. Njarðvíkingar
áttu frábæran kafla þar sem þeir
skoruðu tuttugu stig gegn fjórum
stigum gestanna og leiddu 43-32 í
hálfleik.
Það var ljóst hvað í stefndi og
Njarðvíkingar gerðu út um leikinn
í þriðja leikhluta og gátu því leyft
sér að hvíla sína lykilmenn í þeim
fjórða. Niðurstaðan öruggur 89-70
sigur og ljóst að hvíldin hafði sitt
að segja enda voru Skallagríms-
menn að spila gríðarlega erfiðan
leik síðasta fimmtudag þegar þeir
mættu Keflavík í oddaleik í und-
anúrslitum.
„Leikurinn endaði einmitt eins
og við vildum. Þeir byrjuðu fljótt
að nota menn af bekknum og mitt
lið ætlaði sér um of gegn þeirra
minni spámönnum. Svo komust
menn sem betur fer í rétta gírinn
og í lokin gátu okkar lykilmenn
fengið fína hvíld,“ sagði Einar
Árni Jóhannsson, þjálfari Njarð-
víkinga.
Brenton Birmingham var besti
maður vallarins í gær með fjórtán
stig, sex stoðsendingar, fimm
stolna bolta og sex fráköst. Egill
Jónasson og Jeb Ivey komu svo
með þrettán. Hjá gestunum var
Axel Kárason stigahæstur með
sextán stig.
Næsti leikur liðanna fer fram í
Borgarnesi á mánudag. - egm
Bensínlausir Borgnesingar
Njarðvík byrjaði vel í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn
Skallagrími í fyrsta leik, 89-70. Borgnesingar byrjuðu vel en urðu bensínlausir.
BARÁTTA Njarðvíkingar virtust alltaf vera tveir gegn einum Borgnesingi í gær enda mun
ferskari eftir góða hvíld, ólíkt Borgnesingum, sem fengu að hvíla í heilan dag eftir rimmuna
gegn Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR