Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 88
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR36
Ellert fæddist hinn 10. október
1939 í Vesturbæ Reykjavíkur og
byrjaði ungur að æfa knattspyrnu
með KR. Þar með fylgdi hann í fót-
spor Björgvins föður síns, sem og
allrar fjölskyldu sinnar, sem er
svört og hvít út í gegn. „Í mínu
ungdæmi var fátt annað á boðstól-
um en að spila fótbolta,“ sagði Ell-
ert, sem átti glæstan feril með
Vesturbæjarliðinu. Faðir Ellerts
sá honum fyrir útbúnaði sem var
ekki á hverju strái og lék hann í
fimmtán ár með KR.
Á þeim tíma varð Ellert fimm
sinnum Íslandsmeistari og sjö
sinnum bikarmeistari auk þess að
vera fastamaður og fyrirliði
íslenska landsliðsins í rúman ára-
tug. Ellert þótti einnig liðtækur
markmaður í handbolta þrátt fyrir
að knattspyrnan hafi orðið ofan á.
„Frá unga aldri hef ég verið
alæta á íþróttir og sem betur fer
hef ég enn orku og líkama til að
leika mér. Ég stunda skíði, skvass,
sund og almenna líkamsrækt en
ég hef dregið mig aðeins í hlé frá
knattspyrnunni til að meiða mig
ekki. Þá er ég orðinn mikill áhuga-
maður um golf og því er af nógu
að taka,“ segir Ellert.
Lék gegn Liverpool
KR lék í Evrópukeppninni og Ell-
ert mætti þar meðal annars Liver-
pool í fyrsta Evrópuleik enska
liðsins. „Dagurinn sem við spiluð-
um á Anfield er mér ógleymanleg-
ur. Það var stór stund fyrir okkur
og líka þá ensku enda bæði lið að
spila í fyrsta sinn í Evrópukeppn-
inni,“ sagði Ellert en auk þess spil-
aði hann með KR gegn liðum á
borð við Arsenal og Feyenoord.
Þrátt fyrir að hafa tilboð um að
spila erlendis sem atvinnumaður
tók Ellert nám, vinnu og fjölskyldu
fram yfir atvinnumennskuna. Ell-
ert er lögfræðingur að mennt og
starfaði sem slíkur áður en hann
fékk starf sem skrifstofustjóri
borgarverkfræðings. Þar vann
hann í fimm ár áður en hann var
kjörinn á Alþingi árið 1971. Þar
sat Ellert með hléum, í þrettán ár
áður en hann tók við ritstjórn dag-
blaðsins Vísis og síðar DV þar sem
hann sat í fimmtán ár.
Auk þessa var Ellert svo kjör-
inn forseti KSÍ árið 1973 og gegndi
því starfi í sextán ár þar til núver-
andi formaður, Eggert Magnús-
son, tók við af honum.
„Það var mjög skemmtilegur
tími, en erfiður. Fjármagn til
reksturs var af skornum skammti
og við höfðum litlar sem engar
tekjur aðrar en af landsleikjum og
happdrættum. Það kom nánast
enginn peningur inn af sjónvarps-
rétti eða kostunaraðilum. Þetta
var erfið barátta en okkur tókst að
gera margt nýtt, til að mynda að
fara af stað með stofna kvenna-
landslið, efla fræðslu og þjálfun
og fjölga deildum og liðum í þeim,“
segir Ellert.
Forseti í fimmtán ár
Árið 1991 var Ellert svo kjörinn
forseti ÍSÍ en lætur af störfum á
ársþingi sambandsins sem fer
fram í lok mánaðarins. „Fyrir
mann sem hefur brennandi áhuga
á íþróttum er þetta draumastarf.
Ég fæ að vinna að því sem er mér
kærast og þessu fylgja mikil sam-
skipti um allt, bæði hér heima og
erlendis, ekki síst í Ólympíuhreyf-
ingunni. Forseti ÍSÍ hefur í mörg
horn að líta, er viðstaddur íþrótta-
viðburði, vígslur íþróttahúsa,
afmæli og jafnvel jarðarfarir.
Fundarhöld, viðvera, þjónusta,
atbeini í þágu íþrótta og samskipti
við fjöldamarga aðila, innan og
utan hreyfingarinnar er stór hluti
af starfinu og umfang Íþróttasam-
bandsins er oft meira en fólk áttar
sig á. Það eru nálægt 1.000 form-
legar deildir, félög og sambönd
innan ÍSÍ, misstór en öll jafn
merkileg,“ segir Ellert.
Mikið vatn hefur runnið til
sjávar í stjórnartíð Ellerts og segir
hann mikið hafa breyst á þessum
fimmtán árum. „Þjóðfélagið hefur
breyst mikið, íþróttalífið sömu-
leiðis og umfangið stækkar. Það er
aukin þáttaka, vaxandi skilningur
á íþróttum, meiri umfjöllun, vel-
vilji í okkar garð og fólk er farið
að átta sig á því að íþróttir eru
ekki eyland. Þær tilheyra mannlíf-
inu. Íþróttir er menning og snar
þáttur af samfélaginu,“ segir Ell-
ert.
Áhyggjur af peningunum
Peningar skipa stóran sess í
íþróttalífi hér heima og erlendis.
Ellert hefur áhyggjur af vaxandi
áhrifum þeirra. „Vandamálið sem
við sjáum blasa við hér, meðal
annars í fótboltanum, er að pen-
ingar ráða því að hluta til hver
sigrar og hverjir eru bestir. Ég hef
áhyggjur af því. Það er ekki góð
þróun þegar menn geta sópað til
sín titlum í krafti auðmagns. Þetta
er er nýtt af nálinni og hefur færst
í aukana. Svona er veröldin í dag,“
segir Ellert, sem þó styður
atvinnumennsku í íþróttum heils-
hugar.
„Þeim sem skara fram úr gefst
kostur á að keppa erlendis fyrir
laun og á móti koma útlendingar
hingað heim til að stunda íþróttir.
Þetta er nútíminn og við það verð-
um við að búa. Í grundvallaratrið-
um styð ég það heils hugar að fólk
nýti hæfileika sína og njóti þeirra
í tekjum sínum.“ sagði Ellert.
Peningaskortur ÍSI er stórt vanda-
mál
Hreyfingarleysi ungs fólks á
Íslandi, sem og annars staðar, er
vandamál sem Ellert vill setja í
forgang. „Það þarf að vinna að því
að fólk, sér í lagi ungt fólk, hreyfi
sig meira. Þetta er stórt heilbrigð-
ismál og íþróttahreyfingin vill
gjarnan koma þar að máli. Þekk-
ing, aðstaða og áhugi er til staðar
en fjárskortur stendur okkur fyrir
þrifum. Íþróttahreyfingin er sjálf-
boðaliðahreyfing og verður það
vonandi áfram, en það þarf að
hjálpa sjálfboðaliðum til að sinna
verkefnum sínum,“ segir Ellert,
sem sér fyrir sér allsherjarátak á
þessu sviði, meðal annars með
aðstoð skólanna.
„Ég vil sjá grunnskóla og fram-
haldsskóla taka sér tak í íþrótta-
málum og sambandið á milli skól-
anna, íþróttahreyfingannar og
félaganna þarf að vera meira.
Íþróttafélögin geta einnig eflt
starfið með eldra fólki, til að
mynda með stofnun trimmhópa,
en stuðningur frá stjórnvöldum
þarf að vera til staðar til að sú
þróun geti átt sér stað. Starfi
íþróttahreyfingannar lýkur
aldrei, það er alltaf hægt að gera
betur,“ segir Ellert.
Erfið fæðing minnihlutahópa
„Eins og Fréttablaðið hefur tekið til
umfjöllunar eiga minnihlutahópar á
Íslandi, svo sem börn innflytjenda
og samkynhneigðir, undir högg að
sækja hvað íþróttastarf varðar. Ég
veit ekki hvort það er rétt en ef svo
er þá er það ekki meðvitað. Í ljósi
þeirrar umræðu sem hefur átt sér
stað höfum við verið í sambandi við
Fjölþjóðahúsið með samstarf í
huga. Við höfum sent út tilmæli til
hreyfingarinnar og varað við ein-
elti af þessum toga. Á ársþingi ÍSÍ í
lok apríl er gerð tillaga um laga-
breytingu þessu til stuðnings. Allir
eiga rétt á því sama án tillits til
búsetu, kyns, efnahags, litarháttar
og nú verður kynhneigð bætt við.
Það fer því ekki á milli mála að
stefna hreyfingannar er að allir sitji
við sama borð,“ sagði Ellert.
Stoltið í fyrirrúmi
Ellert gengur hnarreistur frá
borði af skrifstofu ÍSÍ eftir feril
sem hann getur verið stoltur af.
„Ég er stoltur af því að hafa getað
lagt lóð mín á vogarskálarnar til
að skapa góða íþróttahreyfingu og
skapa henni gott orð og góða
ímynd. Í stórum dráttum hefur
þetta verið farsælt tímabil og von-
andi bæði mér og hreyfingunni til
virðingar og velgengni. Ég tel mig
skila af mér góðu búi og ég held að
staða íþróttanna sé góð og vax-
andi. Meira getur maður ekki farið
fram á,“ sagði Ellert, sem verður
ánægður með arftaka sinn, sama
hver það verður, en Ólafur Rafns-
son, forseti KKÍ, og Sigríður Jóns-
dóttir, varaforseti ÍSÍ, eru í fram-
boði. „Bæði eru þau með mikla
reynslu úr íþróttahreyfingunni og
vel að því komin að taka við þessu
embætti,“ sagði Ellert, sem er
sáttur við árin sín fimmtán innan
ÍSÍ.
„Þetta hefur verið ógleyman-
legt og viðburðaríkt ævintýri þar
sem hver atburðurinn hefur rekið
annan en ekkert eitt og sér stend-
ur upp úr, það er af of mörgu að
taka. Sem betur fer hefur þetta
gengið vel og í íþróttum er fólk
sem hefur lífskraft og lífsgleði, er
jákvætt og hefur metnað. Það er
svona umhverfi sem ég hef þrifist
í og mun gera áfram. Að því leyti
hefur þetta verið hvatning til að
vakna á morgnana og takast á við
starfið. Mér telst til að frá því ég
byrjaði í stjórnarstörfum hjá
mínu gamla góða félagi KR spanni
þetta tímabil 45 ár. Það er því
kannski kominn tími á mig,“ sagði
Ellert brosmildur, en hann hefur
að mörgu að hyggja eftir að hann
lætur af embætti.
„Ætli ég byrji ekki á því að sofa
út og njóti þess að vera frjáls af
skyldumætingum og viðveru. Ég
þarf svo að fara að læra á ryksug-
una og þvottavélina, enda má búast
við að kröfurnar heima fyrir vaxi
við það að vera heimavinnandi.
Ætli ég fari ekki á matreiðslunám-
skeið til að mæta þeim kröfum og
svo vantar mig ekki áhugamálin og
verkefnin. Sennilega verð ég upp-
teknari nú en nokkru sinni fyrr,
enda langt í það að ég setjist í helg-
an stein,“ sagði Ellert B. Schram að
lokum. ■
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ ELLERT B. SCHRAM
ÓGLEYMANLEGT OG VIÐBURÐARÍKT ÆVINTÝRI
Ellert B. Schram lætur af embætti forseta Íþrótta-
sambands Íslands í lok aprílmánaðar eftir farsælan
fimmtán ára feril í embætti. Hjalti Þór Hreinsson
ræddi við Ellert um stjórnartíðina og sýn hans á
íþróttahreyfinguna á Íslandi.
ÍÞRÓTTAMAÐUR AF GUÐS NÁÐ Ellert hefur alltaf þótt liðtækur íþróttamaður og iðkar enn
fjölda íþrótta. Hann sést hér í leik með Old Boys-liði KR seint á níunda áratugnum.
FORINGINN STÍGUR AF STÓLI Ellert B. Schram hefur verið í framvarðasveit íslensku íþróttahreyfingarinnar um áratuga skeið en í lok mánað-
arins stígur hann af stóli og tekur sér önnur verkefni fyrir hendur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN