Fréttablaðið - 09.04.2006, Blaðsíða 90
9. apríl 2006 SUNNUDAGUR
SJÁVARKJALLARINN ÓSKAR
SÍNU FÓLKI TIL HAMINGJU
MEÐ ÁRANGURINN Á
SÝNINGUNNI MATUR 2006.
2006
MATREIÐSLUMAÐUR ÁRSINS
STEINN ÓSKAR SIGURÐSSON
MATREIÐSLUNEMAR ÁRSINS
GUÐLAUGUR P. FRÍMANNSSON
GÚSTAF AXEL GUNNLAUGSSON
2005
MATREIÐSLUNEMI ÁRSINS
PÉTUR ÖRN SIGFÚSSON
GRAND MARNIER TROPHY
VALTÝR BERGMANN, SILFURVERÐLAUN
2004
MATREIÐSLUMAÐUR ÁRSINS
LÁRUS GUNNAR JÓNSSON
CONDÉ NAST HOT TABLE
EINN AF 66 BESTU NÝJU VEITINGASTÖÐUM HEIMS
sjávarkjallarinn
aðalstræti 2
sími 511 1212
www.sjavarkjallarinn.is
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í handknattleik hafnaði í
neðsta sætinu á alþjóðlega æfinga-
mótinu í Tékklandi en það tapaði
fyrir Úkraínu 25-26 í síðasta leik
sínum í gær.
Hrafnhildur Skúladóttir var
markahæst í íslenska liðinu með
tíu mörk en þar af komu sjö úr
vítaköstum. Drífa Skúladóttir og
Sólveig Lára Kjærnested gerðu
báðar þrjú mörk og komu þar á
eftir.
Íslenska liðið tapaði öllum
leikjum sínum á mótinu; fyrir Sló-
vökum, Hollendingum og Tyrkj-
um og svo gegn Tékklandi í leikn-
um um næstneðsta sætið í gær.
Þetta mót var fyrsti liðurinn í
undirbúningi kvennalandsliðsins
fyrir tvo leiki gegn Makedóníu um
sæti á Evrópumeistaramótinu í
Svíþjóð í desember. - egm
Kvennalandsliðið tapaði öllum leikjum sínum:
Ísland í neðsta sæti
TÍU MÖRK Hrafnildur Skúladóttir var marka-
hæst í íslenska liðinu.
FÓTBOLTI Tottenham er nú fimm
stigum á undan hinu sjóðaheita
liði Arsenal sem reyndar á tvo
leiki til góða. Martin Jol, stjóri
Spurs, var himinlifandi með sigur-
inn í gær og trúir því varla að hans
lið sé ofar en Arsenal á töflunni.
„Vinr mínir frá Ítalíu hafa verið
hjá mér og þeir eru heillaðir af
Arsenal. Ég spurði hvort þeir
trúðu því að mitt lið væri búið að
vera ofar en Arsenal á töflunni
meirihluta tímabilsins,“ sagði Jol.
„Enski boltinn er í háum gæða-
flokki og þeir eru sammála því.
Arsenal er í fimmta sæti deildar-
innar en er búið að klára Real
Madrid og Juventus í Meistara-
deildinni. Það væri magnað afrek
ef okkur tækist að komast í Meist-
aradeildina.“
Leikur Fulham og Sunderland
stóð aðeins yfir í tuttugu mínútur
en þá blés Mike Riley dómari leik-
inn af vegna lygilegrar snjókomu
sem hafði gert völlinn stórhættu-
legan og því ekki lengur hættandi
á að spila en Fulham var 1-0 yfir.
Hermann Hreiðarsson var
fyrirliði hjá Charlton, sem gerði
markalaust jafntefli við Everton.
Einnig var jafnt hjá Portsmouth
og Blackburn, 2-2, sem og hjá
Wigan og Birmingham, 1-1.
Stórleikur umferðarinnar fer
síðan fram í dag þegar Man. Unit-
ed og Arsenal mætast í uppgjöri
heitustu liða deildarinnar. - hbg
Mikilvægur sigur
hjá Tottenham
Tottenham heldur velli í baráttunni um fjórða sæti
ensku úrvalsdeildarinnar en liðið vann baráttusigur
gegn Manchester City í gær, 2-1.
ÁTÖK Sylvain Distin, varnarmaður Manchester City, hefur hér betur í baráttunni við Jermain
Defoe, framherja Tottenham. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FIMLEIKAR Hin magnaða fimleika-
kona úr Gerplu, Sif Pálsdóttur,
gerði sér lítið fyrir í gær og vann
Norðurlandameistaratitilinn í
samanlögðu en mótið fór fram í
íþróttahúsi Gerplu. Árangur Sifj-
ar er stórglæsilegur en hún er
fyrsta íslenska konan sem hamp-
ar þessum titli.
Það verður spennandi að
fylgjast með Sif í dag er keppt
verður til úrslita á einstökum
áhöldum.
NM í áhaldafimleikum hófst á Íslandi í gær:
Sif Norðurlandameistari
í samanlögðu
TIGNARLEG Sif Pálsdóttir fór hreint á
kostum í æfingum sínum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM