Fréttablaðið - 10.04.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 10.04.2006, Síða 4
4 10. apríl 2006 MÁNUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ������������������� ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� � Bandaríkjadalur 72,25 72,59 Sterlingspund 126,42 127,04 Evra 87,98 88,48 Dönsk króna 11,788 11,856 Norsk króna 11,173 11,239 Sænsk króna 9,421 9,477 Japanskt jen 0,6129 0,6165 SDR 104,39 105,01 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 7.4.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 122,8137 TÓKÝÓ, AP 49 slösuðust eftir að ferja steytti á hval í suðvestur- hluta Japans í gær. Alls voru 109 manns um borð í ferjunni, sem var á hraðri siglingu þegar hún lenti á hvalnum í Kagoshima-flóa við syðstu eyjar landsins. Landhelgisgæslan flutti nokkra alvarlega slasaða í land. Aðrir urðu eftir um borð í ferjunni, sem var mikið löskuð en hélst á floti þar til hana rak á land, þar sem fólkinu var komið til hjálpar. - bs Sjóslys í Japan: Sigldi á hval DÓMSMÁL Helgi Hermannsson hefur verið sýknaður af lögbanns- kröfu Símans en Héraðsdómur synjaði kröfu Símans um staðfest- ingu á lögbanni á störfum Helga fyrir 365. Helgi starfaði áður sem dagskrár- stjóri Skjás eins en var nýlega ráðinn til 365 miðla. Vísað var frá dómi kröfu Símans um að Helga væri óheimilt að hagnýta sér atvinnuleyndar- mál og/eða trúnaðarupplýsingar í eigu stefnanda sem kynnu að vera eða koma í vörslu Helga, á þeim grundvelli að stefnanda reyndist ekki unnt að tilgreina hvaða upp- lýsingar væri um að ræða. Að auki hefði Helga ekki verið óheimilt að ráða sig til starfa hjá 365 miðlum, eða öðrum fyrirtækjum sem væru í eigu sömu aðila og væru í sam- keppni við stefnanda. - sgi Helgi Hermannsson: Sýknaður af lögbannskröfu HELGI HERMANNSSON Lýst eftir vitnum Bakkað var á hvítan Mitsubishi við Gullteig 4 í Laugarnes- hverfi fyrir hádegi föstudaginn 7. apríl. Eigandi bílsins lýsir eftir vitnum eða að tjónvaldur gefi sig fram í síma 8459290. ÁREKSTUR BAGDAD, AP Írösk stjórnvöld eru æf út í fullyrðingar Hosni Mubar- ak Egyptalandsforseta fyrir að láta þau ummæli falla í sjónvarps- viðtali á laugardag að Írak sé á barmi borgarastyrjaldar og að sjíar þar í landi sýni Írönum meiri hollustu en eigin ættjörð. „Þessi ummæli koma okkur í opna skjöldu og okkur er ekki skemmt,“ sagði Jalal Talabani Íraksforseti í viðtali við sjón- varpsstöð þar í landi. „Sagan sýnir að sjíar eru og hafa verið afar þjóðhollir. Þessar ómaklegu full- yrðingar eiga sér enga stoð í raun- veruleikanum.“ Ibrahim al-Jaafari, forsætis- ráðherra Íraks, brást einnig við ummælum Mubaraks og sagði þau móðgun við öll þjóðarbrot, trúar- hópa og pólitísk samtök í Írak og að íraskir erindrekar í Kaíró myndu krefjast frekari skýringa á þessum staðhæfingum frá egypsk- um yfirvöldum. Fleiri áhrifamenn innan arabaheimsins hafa lýst yfir áhyggjum af ítökum og áhrifum Írana meðal sjía. Þá hafnaði al-Jaafari þeirri fullyrðingu Mubaraks að Írakar væru á barmi borgarastyrjaldar og sagði að ekki ætti að lýsa ástandinu í landinu sem stríði milli sjía og súnnía. „Sumir innan þess- ara hópa vilja ef til vill ala á sundr- ung meðal þjóðarinnar, en á heild- ina litið eru Írakar sameinaðir.“ Mubarak er ekki einn um að draga upp dökka mynd af ástand- inu í Írak. Eftir að níutíu manns féllu í sprengjuárás á mosku í Bag- dad á föstudag lét íraskur hers- höfðingi hafa eftir sér að borgara- stríð hefði ríkti í landinu undanfarið ár. „Við finnum ótal lík í Bagdad, pílagrímar eru drepnir á leið til helgistaða, ráðist er á moskur og þær sprengdar upp. Þetta er allt hluti af borgarastríðinu.“ Bandaríkjamenn og Bretar telja að þó að ástandið í Írak sé sannarlega alvarlegt ríki þar ekki borgarastyrjöld og fyrir það megi helst þakka leiðtogum sjíamús- lima sem hafi sýnt stillingu. bergsteinn@frettabladid.is Æfir út í Mubarak Íraskir ráðamenn vísa fullyrðingum Egyptalandsforseta um að Írak sé á barmi borgarastyrjaldar til föðurhúsanna. Þá finnst þeim ummæli hans þess efnis að íraskir sjíar sýni Írönum meiri hollustu en ættjörð sinni ómakleg og móðgandi. ÓSÁTTIR RÁÐAMENN Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra, Jalal Talabani forseti og Adnan Al-Pachachi, talsmaður íraska þingsins, komu fram í sjónvarpi og vísuðu ummælum Mubaraks til föðurhúsanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Mikill erill var hjá lögreglunni á Selfossi að kvöldi laugardags og aðfaranótt sunnu- dags. Klukkan hálf níu var tilkynnt um slagsmál við Skíðaskálann í Hveradölum þar sem stóð yfir fögnuður nokkurra fyrirtækja. Tveir voru fluttir á slysadeild, annar með alvarlega höfuðáverka, nefbrot og önnur beinbrot sem hlutust af spörkum, höggum og sköllum. Þrír voru vistaðir í fanga- klefum en málið er í rannsókn. Þá brutust út mikil slagsmál á Snúllabar í Hveragerði. Þegar lög- reglu bar að voru átökin afstaðin og engar kærur hafa borist. - sgi Slagsmál við Skíðaskála: Þrír vistaðir í fangageymlsu ÖRYGGI Skoðun á stærri þyrlu Landhelgisgæslunnar lýkur fyrir páska. Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi segir að skoð- unin hafi hingað til gengið mjög vel. Hún sé á áætlun. Í fyrsta sinn er aðeins unnið að viðhaldi þyrlu Landhelgisgæslunn- ar, TF-LÍF, á dagvinnutíma. Hún er í þrjú þúsund flugtíma skoðun sem tekur um fimmtán hundruð vinnu- stundir. Haft var eftir rekstrarstjóra gæslunnar um miðjan mars að auk þess að spara peninga við að vinna verkið í dagvinnu krefðist það nákvæmni og því ekki ákjósanlegt að hafa tæknimenn í mikilli yfir- vinnu. Minni þyrla Gæslunnar sé til reiðu. - gag Stærri þyrla Gæslunnar: TF-LÍF til taks fyrir páska STJÓRNMÁL Flokksráðsfundi Sjálf- stæðisflokksins lauk á Akureyri á laugardag. Í ályktun fundarins kemur fram að lögð verði sérstök áhersla á velferð eldri borgara og þörf sé á breyttu hugarfari á því sviði. Vill Sjálfstæðisflokkurinn færa verkefni á sviði öldrunarmála til sveitarfélaga. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir mun á launum ófaglærðs fólks á hinum ýmsu umönnunarheimilum óviðunandi. „Ég er ekki að leita að sérstökum sökudólgi heldur er þetta staða sem kemur upp í fram- haldi af samningum sveitarfélag- anna. Þeir sem reka vist- og hjúkr- unarheimilin gera kjarasamninga sem eru gerðir í samráði við ríkis- valdið. Ríkisvaldið verður að koma inn í málið þó svo að vandinn sé ekki tilkominn vegna þess. Samt hvílir sú skylda á ríkisvaldinu að málið verði leyst. Þetta er staða sem við sjálfstæðismenn eigum ekki að sætta okkur við og eigum að hafa forystu um að breyta,“ segir Vil- hjálmur. „Það er mikið atriði að það sé ákveðið samráð því annars missa þessar stofnanir fólkið frá sér og það greinilega stefnir í þá áttina. Það getur haft alvarlegar afleiðing- ar fyrir rekstur þessara stofnana og fyrir fólkið sem þar er, því það er mjög fjölmennur hópur sem gegnir þessum störfum,“ segir Vilhjálmur, sem er sjálfur formaður stjórnar hjúkrunarheimilisins Eirar og þekk- ir því vel til þessa málaflokks. - fb Sjálfstæðismenn vilja leggja sérstaka áherslu á velferð eldri borgara: Öldrunarmál til sveitarfélaga VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON Oddviti sjálf- stæðismanna í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN, AP Þingmaður banda- ríska Repúblikanaflokksins vill að George Bush Bandaríkjaforseti og Dick Cheney varaforseti skýri opinberlega frá sínum þætti í CIA- lekanum svokallaða. I. Lewis Libby, fyrrum starfs- mannastjóri Cheneys, bar fyrir rétti í síðustu viku að varaforset- inn hefði gefið honum grænt ljós frá Bush til að ljóstra upp um leyniþjónustumanninn Valerie Plame. Talið er að komið hafi verið upp um Plame til að kasta rýrð á eiginmann hennar, Joseph Wilson, sem hefur gagnrýnt Íraksstríðið harðlega. Arlen Specter, þingmaður Repúblikanaflokksins, sagði í við- tali við sjónvarpsstöðina Fox að forsetinn og varaforsetinn yrðu að gera hreint fyrir sínum dyrum. „Það er nauðsynlegt að þeir segi þjóðinni hvað gerðist nákvæm- lega.“ - bs Þingmaður repúblikana: Bush og Cheney svari ásökunum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.