Fréttablaðið - 10.04.2006, Síða 22
[ ]
Gömul húsgögn öðlast nýtt líf í
höndum bólstrara.
Það færist í vöxt að fólk láti gera
upp eldri húsgögn í stað þess að
henda þeim á haugana, að sögn
Hafsteins Gunnarssonar í Bólstr-
aranum á Langholtsvegi 82. Þar
inni má sjá íslenska hægindastóla
úr tekki sem algengir voru í stof-
um landsmanna á sjöunda ára-
tugnum, virðuleg eldri húsgögn í
rókókóstíl og hin nútímalegu
kassalaga húsgögn sem eru á leið
í andlitslyftingu. Þótt litfagrir
efnisstrangar fylli eitt hornið í
fyrirtækinu segir Hafsteinn lang-
mest um að fólk sérpanti áklæði.
Þar hefur það líka úr miklu að
moða því mörg þúsund prufur af
vönduðum efnum eru í möppum á
borðunum. „Það er ekkert vit að
liggja með mikið af áklæði. Fólk
vill geta valið áferð og liti í sam-
ræmi við annað á heimilinu og
eigin smekk og það tekur bara 3-7
daga að fá vöruna frá útlöndum,“
segir Hafsteinn, sem kveðst gera
pantanir á hverjum degi og geta
fengið allt niður í eins metra bút
af hverju efni ef með þurfi. Upp-
hleypt og stórgerð mynstur eru
vinsæl núna, einnig gróf efni eins
og tvíd og hör. „Það er sixtís-tísk-
an sem gengur aftur en nú með
miklu betri efnum en upphaflega,
því framfarirnar eru orðnar svo
miklar, bæði í þráðum og vefn-
aði,“ segir Hafsteinn og tekur til
þess hversu Íslendingar séu vel
með á nótunum þegar kemur að
húsbúnaði og stíl. „Ég fer oft á
sýningar erlendis að skoða nýj-
ungar í áklæðum og gluggatjöld-
um og er varla kominn heim
þegar fólk er farið að spyrja eftir
þeim hér,“ segir hann og tekur til
við vinnu sína á ný. Þess má geta
að Bólstrarinn er með heimasíð-
una www.bolstrarinn.is og þar er
hægt að skoða úrval efna og vegg-
fóðurs.
Tvídefni eru vinsæl sem áklæði.
Upphleypt og gróf
mynstur áberandi
Einlit og mynstruð gardínuefni af ýmsum
gerðum eru líka í Bólstraranum.
Nútímahönnun skilar sér í áklæðið. Íburðarmikið efni sem hæfir vel á viss
húsgögn.
Skærir litir lífga upp á.
Slitsterkt og flott.
Hafsteinn við einn góðan grip sem búið er að klæða. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Svarthvítt er flott bæði í gardínur og
áklæði. Þetta efni er með upphleyptu
mynstri.
Mörg handtök eru við bólstrunina. Hér mundar Sighvatur Kristjánsson nálina.
Sóðaskapur er engum til framdráttar. Gakktu vel um húsið þitt og
láttu ekki þitt eftir liggja.
Annar hfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a Eignaskiptay rlýsingar
atvinnu- og íbúðahúsnæði
fyrir
����������������
����������������������������������
����������������������� ������
���������������������������������
�����������������������������������������������
����������������������������
�����������������
������������������������
��������������������� �����
������������������
�������������������������������
������ ���������ATH - nýr hringstigi
Frábært verð !
Beygjanlegur
harðviður -
tilvalin í
handlista
�
�
�
��
��
��
���
�
��������������������������������
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
www.svefn.is