Fréttablaðið - 10.04.2006, Side 26
10. apríl 2006 MÁNUDAGUR
Eflaust leggja margir leið sína í sumarbústaði
um páskahelgina, dusta rykið af húsgögnunum
og gera huggulegt.
Gaman getur verið að lífga upp á bústaðinn með lit-
ríkum púðum, kertum og mottum og til að skoða hent-
ugar sumabústaðavörur á góðu verði var haldið í
Europris. Þar var margt sem fangaði augað. Meðal
þess sem athygli vakti var sósukanna sem heldur
heitu. Þannig könnu getur verið hentugt að hafa í
bústað þar sem fáar eldvélarhellur eru til staðar
og ekki er hægt að hita allt í einu. Bankari getur
líka komið sér vel í bústaðnum þegar mott-
ur og teppi sem fyrir eru viðruð eftir
veturinn og stígvél eru þarfaþing.
Tuskumottur, silkiblóm, kerti og
púðar voru meðal þess sem rataði í
körfuna og auðvitað getur
það alltsaman sem best
gengið í heimahúsum líka.
Berum vorið í bústaðinn
Ikea býður upp á fyrirtaks
þjónustu í sambandi við eld-
hús.
Á vef Ikea, www.ikea.is, var birt-
ur sérstakur eldhúsbæklingur í
mars. Er hann mjög aðgengilegur
og þægilegur þar sem að hægt er
að stækka upp myndirnar og skoða
þær þannig betur. Bæklingurinn
er í allt 48 blaðsíður og er boðið
upp á fjölmargar góðar hugmynd-
ir.
Á heimasíðunni er einnig hægt
að hanna eldhúsið í sérstöku for-
riti og er fólki leiðbeint hvernig
það á að mæla út eldhúsið til að
setja það inn í forritið. Þegar hönn-
unin er svo tilbúin er hægt að
prenta hana út eða senda hana
með tölvupósti til Ikea.
Í versluninni er líka kubbar
sem hægt er að nálgast í innrétt-
ingardeildinni. Kubbarnir eru
minnkuð útgáfa af innréttingun-
um sem í boði eru í Ikea og er
hægt að raða þeim saman til að sjá
hvað mun henta.
Á heimasíðu þeirra er einnig
er hægt að skoða eldhús sem hafa
verið hönnuð með þessu forriti og
gefur það manni góðar hugmynd-
ir.
Eldhúsum gerð skil hjá Ikea
Sósukanna, 899 kr. á tilboðsverði.
Stígvél er nauðsynlegt að hafa
í bústaðnum1.950 kr.
Púði 785 kr.
Púði 799 kr.
Páskadúkur á
borðið 549 kr.
Kubbarnir sem hægt er að nota til að
skipuleggja eldhúsið vel.
Flísteppi er gott að hafa til að
fleygja yfir sig 329 kr.
Tuskumotta á gólf
599 kr.
Halogen útiljós 3 stykki
á 3.490 kr.
Teppabankari
290 kr.
Silkiblóm í
potti 950 kr.
Kerti 269 kr. Kerti 145 kr.
534 1300
w w w . g l u g g a l a u s n i r . i s
Hafðu samband
og við komum
heim til þín
Vandað, einfalt og ódýrt