Fréttablaðið - 10.04.2006, Síða 82

Fréttablaðið - 10.04.2006, Síða 82
 10. apríl 2006 MÁNUDAGUR VI NN IN GA R VE RÐ A AF HE ND IR H JÁ B T SM ÁR AL IN D. K ÓP AV OG I. M EÐ Þ VÍ A Ð TA KA Þ ÁT T ER TU K OM IN N Í S M S KL ÚB B. 9 9 KR /S KE YT IÐ . SMSLEIKUR FYRIR TVO. VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO DVD MYNDIR • PEPSI OG MARGT FLEIRA . ERU BÍ I FY IR TVO DVD MYNDIR • P SI ARGT FLEIRA PAUL WALKER „Sama hvað þú lest eða heyrir, ekkert mun búa þig undir kraftinn og þungann í þessari mynd!” -Quentin Tarantino „Ég er dolfallinn!” -Roger Ebert FÓTBOLTI Leikmenn Chelsea sýndu stórbrotna frammistöðu gegn West Ham á heimavelli í gær. Eftir aðeins sextán mínútur var West Ham marki yfir og manni fleiri eftir að Maniche hafði fengið að líta rauða spjaldið. Þrátt fyrir það neitaði Chelsea að leggja árar í bát og Drogba og Crespo komu liðinu yfir fyrir hlé. Terry og Gallas fullkomnuðu svo stórsigur Chelsea, 4-1. „Við sýndum að það skiptir engu hvað Manchester United gerir. Við þurfum ekki að treysta á önnur úrslit til að verða meistarar. Þetta var gott svar við sálfræði- leikjum Fergusons. Annars var þetta ótrúlegur karaker sem strák- arnir sýndu. Það var engin hræðsla og ótrúlegur andi í liðinu. Þetta var stórbrotin frammistaða,“ sagði Jose Mourinho, stjóri Chel- sea. - hbg Leikmenn Chelsea sýndu gríðarlegan karakter manni færri gegn West Ham: Skoruðu fjögur mörk manni færri HETJUR Drogba og Crespo skoruðu báðir í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI Annar leikur Skalla- gríms og Njarðvíkur um Íslands- meistaratitilinn í körfuknattleik fer fram í kvöld. Njarðvík vann fyrsta leikinn, 89-70, sem var nokkuð furðulegur enda var Valur Ingimundarson, þjálfari Skalla- gríms, fullfljótur að margra mati að leggja árar í bát. Skal reyndar haft í huga að Skallagrímur fékk aðeins að hvíla í einn dag eftir fimm leikja rimmu við Keflavík á meðan Njarðvíkingar mættu úthvíldir til leiks. Axel Kárason var einna skástur hjá Skallagrími í fyrsta leiknum og hann á von á betri frammistöðu í kvöld. „Við erum vanir að leika vel heima og ég get lofað því að það verður allt vitlaust í Fjósinu í kvöld,“ sagði Axel en íþróttahús Borgnesinga gengur iðulega unir nafninu Fjósið. „Síðasti leikur var mjög sérstakur en við vorum fljót- ir að byrja að hugsa um næsta leik. Það má sjá þreytu á ákveðn- um leikmönnum en við gefum allt í kvöld og svo kemur ágætt frí en þetta leikjafyrirkomulag er mjög furðulegt.“ - hbg Axel Kárason, leikmaður Skallagríms, bjartsýnn: Það verður allt vitlaust í „Fjósinu“ í kvöld SAMEINAÐIR STÖNDUM VÉR Valur Ingimundarson og lærisveinar hans í Skallagrími verða að þjappa sér saman í kvöld er Njarðvík kemur í heimsókn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Enska úrvalsdeildin CHELSEA - WEST HAM UNITED 4-1 0-1 Collins (10.), 1-1 Drogba (29.), 2-1 Crespo (31.), 3-1 Terry (54.), 4-1 Gallas (69.). LIVERPOOL - BOLTON WANDERERS 1-0 1-0 Robbie Fowler (47.). MANCHESTER UNITED - ARSENAL 2-0 1-0 Wayne Rooney (54.), 2-0 Park Ji-Sung (78.). MIDDLESBROUGH - NEWCASTLE UNITED 1-2 0-1 Boateng, sjm (29.), 0-2 Ameobi (44.), 1-2 Boateng (79.) STAÐA EFSTU LIÐA: CHELSEA 33 26 4 3 64-20 82 MANCHESTER 33 23 6 4 66-30 75 LIVERPOOL 34 21 7 6 48-22 70 TOTTENHAM 33 16 10 7 48-33 58 BLACKBURN 33 16 6 11 45-39 54 ARSENAL 32 16 5 11 53-25 53 Ítalska A-deildin AC MILAN - CHIEVO 4-1 0-1 Pellisier (13.), 1-1 Nesta (28.), 2-1 Kaká (62.), 3-1 Kaká (70.), 4-1 Kaká (91.). AS ROMA - LECCE 3-1 1-0 Mancini (20.), 2-0 Chivu (23.), 3-0 Mancini (73.), 3-1 Del Vecchio (93.). STAÐA EFSTU LIÐA: JUVENTUS 32 24 7 1 61-20 79 AC MILAN 33 23 4 6 74-27 73 INTER 33 22 5 6 61-25 71 Spænska 1-deildin RACING SANTANDER - FC BARCELONA 2-2 0-1 Henrik Larsson (18.), 1-1 Antonio (19.), 2-1 Oscar Serrano (23.), 2-2 Samuel Eto’o (33.). SEVILLA FC - REAL ZARAGOZA 1-1 0-1 Sergio Garcia (46.), 1-1 Enzo Maresca (92.) STAÐAN: BARCELONA 31 21 6 4 70-27 69 VALENCIA 32 16 11 5 45-28 59 REAL MADRID 32 17 8 7 57-29 59 ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Dagurinn hjá Rooney byrjaði með því að hann las um meinta 700 þúsund punda spila- skuld sína í blöðunum. Fréttin vakti að sjálfsögðu heimsathygli og biðu menn því spenntir eftir því hvernig Rooney kæmi stemmdur til leiks. Strákurinn var verðlaunaður fyrir leik sem besti leikmaður marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Hann tók síðan til starfa og skoraði fyrra mark leiksins og lagði upp hið síðara er United vann sinn níunda leik í röð. „Skoðið þessa frammistöðu og spáið síðan í hvort þessar fréttir séu eitthvað að trufla mig,“ sagði Rooney við breska blaðamenn eftir leikinn. Rooney hefði átt að skora annað mark í leiknum er varnar- maðurinn Kolo Toure brá sér í gervi markvarðar og varði skot Rooneys í dauðafæri í stöng. Dómarinn virtist ekki sjá atvikið og sleppti að dæma augljóst víti. „Ef við hefðum ekki unnið leikinn hefði verið sárt að dómarinn sleppti því að dæma. Annars erum við að spila frábærlega sem lið og níu sigrar í röð eru frábær árangur,“ sagði Rooney. Liðsuppstilling Arsenal í leiknum vakti mikla athygli en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var bæði með Thierry Henry og Freddie Ljungberg á bekknum og Henry lék ekki nema síðustu tuttugu mínútur leiksins og komst ekki í neinn takt við leik- inn. „Thierry var ekki búinn að jafna sig eftir Evrópuleikinn á miðviku- dag. Það hefur verið mikið álag á honum og því setti ég hann á bekk- inn,“ sagði Wenger en þess má að lokum geta að áhorfendamet í ensku úrvalsdeildinni var sett á leiknum en hann sáu 70.908 úr stúkunni. henry@frettabladid,is Rooney rotaði Skytturnar Wayne Rooney fór á kostum í liði Manchester United er það lagði Arsenal sann- færandi og sanngjarnt, 2-0. Rooney lét sögur í bresku blöðunum um morgun- inn ekki koma sér úr jafnvægi og lét verkin tala á vellinum. SVEKKTUR Arsene Wenger hvíldi Thierry Henry í leiknum og saknaði liðið hans sárt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÖGNUÐUR Rooney fagnar hér marki Parks gegn Arsenal en hann lagði það listavel upp og var fyrir búinn að skora eitt mark. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.