Fréttablaðið - 11.04.2006, Page 27

Fréttablaðið - 11.04.2006, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 11. apríl 2006 3 Niðurstöður breskrar rann- sóknar sýna að konur fitna eftir að þær hefja sambúð en karlar taka upp á því að grennast. Nýlega var gerð rannsókn á vegum Newcastle-háskóla í Bret- landi þar sem rannsökuð voru áhrif sambúðar á mataræði og holdafar kvenna. Niðurstöðurnar, sem birtust í tímaritinu Complete Nutrition, sýndu að konum hættir til að fitna og borða óhollari mat þegar þær hefja sambúð með unnusta sínum. Þessu er öfugt farið með karlmenn en í flestum tilfellum tileinka þeir sér heilsusamlegra líferni eftir að þeir hefja sambúð. Vísindamennirnir telja að þetta stafi af því að fólk lagar sig að matarvenjum nýs sambýlings. Þegar konur hefja sambúð eykst hlutfall fitu og sykurs í mataræði þeirra en karlarnir seilast frekar í léttari og heilsusamlegri mat og borða meira af ávöxtum og græn- meti. Sambærileg rannsókn, sem gerð var í Bandaríkjunum, sýndi að konur juku kjötneyslu eftir að þær hófu sambúð en karlar drógu úr henni. Önnur bandarísk rann- sókn sýnir einnig að konum hætt- ir til að fitna eftir að þær hafa gengið í hjónaband en léttast aftur þegar þær skilja. Frétt fengin af www.bbc.com. Konur bæta á sig kílóum í sambúð Eftir að par hefur sambúð laga einstaklingarnir sig að mataræði hvors annars. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Ragna Rut Magnúsdóttir heildsali flytur inn Olivia húð- og hársnyrtivörur frá Grikklandi. Ragna kynntist Olivia-snyrtivörunum þegar hún var úti á Grikklandi í fyrrasumar og varð strax mjög hrif- in af þeim. „Ég hef alltaf haft mikla trú á ólífuolíu og svo rakst ég á þessar vörur og þær voru svo ótrúlega góðar að ég ákvað að prófa að flytja þær inn,“ segir hún. Olivia-vörurnar eru seldar í verslunum Hagkaupa, Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, Heilsubúðinni í Hafn- arfirði og Samkaupum í Njarðvík. „Vörurnar komu á markaðinn í desember og hafa alveg slegið í gegn enda eru þær mjög góðar og sérstakar vegna ólífuolí- unnar,“ segir Ragna. Ragna segir að Olivia-vörurnar henti öllum sem vilja hugsa vel um hárið og húðina. „Vörurnar hafa til dæmis reynst mjög vel þeim sem eru með viðkvæma húð eða exem og þess háttar enda hefur ólífuolía lengi verið notuð við ýmsum húðvandamálum.“ Grískar snyrtivörur með ólífuolíu fyrir viðkvæma húð Olivia-snyrtivörurnar hafa slegið í gegn á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ragna Rut hefur mikla trú á ólífuolíu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÚTSALA verslun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.