Fréttablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 51
ÞRIÐJUDAGUR 11. apríl 2006 35
Enn eru miðar eftir á tónleika Ray
Davies í Háskólabíói næstkom-
andi föstudag. Davis, sem kemur
hingað til lands ásamt hljómsveit
sinni á fimmtudag, mun flytja
blöndu af sínum gömlum perlum
og glænýjum lögum.
Ray Davies verður ætíð kennd-
ur við hljómsveit sína The Kinks,
sem er einhver mikilsvirtasta og
áhrifamesta hljómsveit gervallrar
rokksögunnar.
Miðaverð á tónleikana er frá
6.900 krónum. Miðasala fer fram í
Skífunni, BT á Selfossi og á Akur-
eyri og á concert.is. ■
Miðar eftir á Davies
RAY DAVIES Fyrrverandi forsprakki The Kinks
heldur tónleika í Háskólabíói á föstudag.
Súsanna Svavarsdóttir, blaða-
maður og gagnrýnandi, mun á
næstu dögum bætast í hóp pistla-
höfunda á menningarsíðum
Fréttablaðsins og skrifa reglu-
lega um leiklist. Súsanna hefur
komið víða við á ritferli sínum og
hefur til að mynda gefið út skáld-
sögur, starfað sem þýðandi og
ritstjóri, skrásett ævisögur auk
þess ritað fjölda greina og gagn-
rýni um menningarmál.
Guðmundur Oddur Magnús-
son mun halda áfram að fjalla
um sjónlistir annan hvern laug-
ardag og Halldór Guðmundsson
um bókmenntir annan hvern
sunnudag. ■
SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR
Pistlar um leiklistHVAÐ? HVENÆR? HVAR?APRÍL
8 9 10 11 12 13 14
Þriðjudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Vortónleikar Söngsveitar-
innar Fílharmóníu í Langholtskirkju.
Flutt verða verk eftir Joseph Haydn
og Wolfgang Amadeus Mozart.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran,
Nanna María Cortes messósópran,
Jónas Guðmundsson tenór
og Davíð Ólafsson bassi.
Konsertmeistari er Sif Tulinius og
stjórnandi er Magnús Ragnarsson.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.10 Helgi Þorláksson sagnfræð-
ingur heldur erindi í hádegisfyrir-
lestraröð Sagnfræðingafélags Íslands
í Þjóðminjasafni Íslands um
hugmyndir Íslendinga um víkinga í
sögulegu samhengi og útrás þeirra
að fornu.
20.00 Sigrún Harðardóttir M.Phil
í mannfræði flytur fyrirlesturinn
um stöðu bænda í suðvesturhluta
Kína. Fyrirlesturinn verður hald-
inn í ReykjavíkurAkademíunni,
Hringbraut 121. 4. hæð.
■ ■ OPIÐ HÚS
19.30 Annað Opna hús skóg-
ræktarfélaganna á þessu ári
verður haldið í Öskju, náttúru-
fræðahúsi Háskóla Íslands.
Þröstur Eysteinsson, þróunarstjóri
Skógræktar ríkisins, mun fjalla í
máli og myndum um topp 20 trjá-
tegundir, sem nota mætti meira í
íslenskri skógrækt en gert er.
■ ■ LJÓÐAKVÖLD
20.00 Ösp Viggósdóttir
les upp á þessu sextugasta
Skáldaspírukvöldi í Iðuhúsinu við
Lækjargötu.
21.00 Ljóðadagskráin Ljóðs manns
æði í Þjóðleikhúskjallaranum
á vegum Fræðsludeildar
Þjóðleikhússins og vina ljóðsins.
Fjallað verður um ljóð og minningar
á fjölbreyttan hátt. Sérstakur gestur
kvöldsins er Þorsteinn frá Hamri.
Húsið opnar 20.30, aðgangseyrir 500 kr.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
DANSleikhúsið
frumsýnir á Nýja sviði
Borgarleikhússins
9., 11., 19. og 23. apríl
The DANCEtheater
Fallinn engill
&
I´m FINE
Miðasala er í Borgarleikhúsinu,
sími 568 8000
og á vefnum
www.borgarleikhus.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI