Fréttablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 28
 11. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR4 Þorvaldur Þórsson, eða Olli eins og hann er kallaður, er annálaður útivistarmaður. Hann heldur sér í formi meðal annars með klettaklifri. Allt frá því að Olli var drengur var hann uppi um öll fjöll og firnindi. „Mamma segir að ég hafi verið til algjörra vandræða, alltaf hlaupinn upp á næsta fjall,“ segir Olli. „Það má því segja að það hafi aldrei þurft að kveikja hjá mér áhugann á fjallgöngum, hann sé meðfæddur.“ Meðal þess sem Olli stundar af kappi er ísklifur. „Ísklifur er geysilega skemmtilegt sport,“ segir Olli. „Allir sem prófa sport- ið verða fljótlega hugfangnir og mesta hættan sem fylgir klifrinu er hversu ávanabindandi það er.“ Klifur, hvort sem það er í klett- um eða ís, er erfitt og reynir mjög á líkamann. Þess vegna leggur Olli mikið upp úr því að halda sér í góðu formi. „Ég er svo heppinn að á móti vinnustaðnum mínum, handa götunnar, er sundlaug með ágætis tækjasal. Ég fer þangað þrisvar til fimm sinnum í viku en það er klifrið sem rekur mig til að mæta reglulega.“ Kletta- og ísklifur sýnist flest- um, sem aldrei hafa prófað, hættulegt sport. Olli segir þó að það sé eins með það og annað, þú ræður því sjálfur hversu hættu- leg staðan verður. Maður verði einfaldlega að gæta fyllsta örygg- is. „Það er hægt að segja að það sé hættulegt að fara á Laugaveginn. Það getur alltaf einhver keyrt á mann. Maður verður bara að passa sig. Það sama á við um klif- rið. Auk þess sýnir tölfræði frá tryggingafélögum í Bandaríkjun- um að það er hættuminna að fara sex klifurferðir á ári en að hjóla í vinnuna,“ segir Olli. Olli fær útrás fyrir klifurárátt- una með Íslenska Alpaklúbbnum. Þar er á ferð félagsskapur úti- vistarmanna sem fara í svokall- aðar jaðarferðir, það er ferðir á tinda sem menn klífa ekki oft. Olli fór til dæmis í ferð í fyrra upp suðaustur hrygg Hrútfells- tinda sem tók 27 tíma. Það er engin nauðsyn að leggja á sig 27 tíma ferð til að komast í ísklifur. „Það þarf ekki að keyra lengur en í hálftíma frá Reykja- vík til að komast í almenninlegan ís,“ segir Olli. „Svo erum við líka með æfingaaðstöðu í súrheyst- urni á gömlu ruslahaugunum. Utan á turninum er vírnet og þegar frystir vel getum við hleypt vatni á turninn og úr verður fínasti ísveggur þar sem gott er að æfa sig.“ tryggvi@frettabladid.is Klifur er ekki hættulegra en að hjóla á Laugavegi Mikilvægt er að hafa öryggisbúnaðinn í lagi. MYND: PÁLL SVEINSSON Þorvaldur er mikill klifurkappi og á auðvitað allar réttu græjurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Tækninýjungar í leisigeisla- tækni eru í hraðri þróun. Vísindamenn á ríkisspítala Mass- achusetts vinna að því að þróa leisi- geislatæki sem bræða á fitu. Frá þessu er greint á vef BBC. Geislinn bræðir fitu án þess að skaða aðra vefi. Þessi uppgötvun getur nýst meðal annars í baráttu gegn hjarta- sjúkdómum og kransæðastíflum. Þó augljóslega sé til mikils að vinna á sviði hjartalækninga eru einnig miklar vonir bundnar við þessa aðferð í lýtalækningum. Leisi- geislinn á einnig að nýtast í hinni eilífu baráttu við unglingabólur. Hann bræðir fitu í fitukirtlum sem mynda bólur, þannig að fitan safnast ekki saman heldur er brotin aftur niður í líkamanum. Vísindamenn vona einnig að hægt verði að laga appelsínuhúð og þar er til mikils er að vinna. Tækið og tæknin eru enn á rannsóknarstigi og ekki hægt að nota enn á fólk. Þróa leiser gegn fitu Appelsínuhúð er eitt af því sem laga mætti með leisigeislameðferð. SAMSPIL GRÓÐURS OG BÆTTRAR LÍÐUNAR ER AÐALEFNI RÁÐSTEFNU SEM BER HEITIÐ UMHVERFI OG HEILSA OG VERÐUR HALDIN ÞANN 21. APRÍL. Margt bendir til að maðurinn hafi erfðafræðilega þörf fyrir að vera í beinu sambandi við náttúruna enda hluti af henni. Þegar borgirn- ar stækka og steinsteypan eykst er það verðugt verkefni nútímafólks að skipuleggja hið manngerða umhverfi þannig að þörfin fyrir náttúrutengsl sé uppfyllt. Gerð- ar hafa verið ýmsar rannsóknir á sambandinu á milli útiveru og streitulosunar sem sannað hafa kenningar um mikilvægi grænna svæða. Um þetta mun ráðstefnan Umhverfi og heilsa einkum snúast. Það er Sumarhúsið og garðurinn sem efnir til ráðstefnunnar með aðstoð Önnu Maríu Pálsdóttur garð- yrkjusérfræðings og landlæknis- embættisins. Fyrirlesarar eru fimm. Þeir eru Clare Cooper-Marcus, landslagsarkitekt frá Bandaríkjun- um, Anna Bengtsson, landlags- arkitekt og Liselott Lindfors lands- lagsverkfræðingur frá Svíþjóð og hinar íslensku Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt og Anna María Pálsdóttir garðyrkjuverkfræðingur. Umhverfið og áhrif þess á heilsuna Reykvíkingar eiga náttúruperlur við bæjardyrnar. MYND ÞÖK www.svefn.is Næstu námskeið hjá Maður lifandi 11. apríl Sætuefnið Aspartam – Er Diet kók betra en venjulegt kók? Haraldur Magnússon 25. apríl Er heilsan í fyrirrúmi? Örn Jónsson 26. apríl Heilbrigði og hamingja Benedikta Jónsdóttir. 27. apríl Rope yoga 27. - 30. apríl 09. maí Kennsla í notkun jurta og fæði við gigt Kolbrún Björnsdóttir Þriðjudagur 11. apríl Lyftur: Opið 14 – 20 Sundlaugin: Opið frá kl. 6:30 – 10 og 14 – 21 Miðvikudagur 12. apríl Lyftur: Opið frá 14 – 20 Sundlaugin: Opið frá kl. 6:30 – 10 og 14 – 21 Allinn Sportbar: Trúbadorinn Teitur – nýr og ferskur – Frítt inn! BíóSalur: FÍLAPENSLAR 15 ára og ball á eft- ir með Mðaldarmönnum. Fimmtudagur 13. apríl Skírdagur. Lyftur: Opið 10 -17 Leikjabraut og brettabraut Sundlaugin: Opin frá kl. 13 – 19 Bíó Salur: FÍLAPENSLAR Föstudagur 14. apríl Föstudagurinn langi Lyftur: Opið 10 – 22 Leikjabraut og brettabraut Tyrolagleði kl. 18 Garpamót kl. 18 Sundlaugin: Opin frá kl. 13 – 19 Allinn Sportbar: Stórdansleikur með hljómsveitinni VON Bíó Salur: Ball með Terlín frá miðnætti. Laugardagur 15. apríl Lyftur: Opið frá 10 – 17 Leikjabraut og brettabraut Andlitsmálun og páskaeggjamót fyrir 12 ára og yngri kl. 14. Sundlaugin: Opin frá kl. 10 – 19. Allinn Sportbar: Sönskemmtunin allt frá óp- eru til Idol og dansleikur með Stúlla og Sæv- ari á eftir. Bíó Salur: Ball með Spútnikk frá kl. 23. Bátahúsið: Söngskemmtun karlakórsins kl. 20:30. Sunnudagur 16. apríl. Páskadagur Lyftur: Opið frá 10 – 17 Leikjabraut og brettabraut Bretta- og freestylekeppni samhliðasvig kl. 14 Sundlaugin: Opin frá kl. 15 – 19 Allinn Sportbar: Trúbadorinn Teitur – Frítt inn ! Bíó Barinn: Lifandi tónlist frá kl. 23 – 3 Mánudagur 17. apríl Annar í páskum Lyftur: Opið frá 10 – 17 Leikjabraut og brettabraut Sundlaugin: Lokað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.