Fréttablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 52
11. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR36
Mikil hreyfing er á versl-
unar- og þjónustuaðilum
í miðbænum um þessar
mundir, ekki síst við Lauga-
veg. Verslanir koma og fara
en aðrar færa sig einfald-
lega um set.
Ekkjur tveggja lögreglumanna
sem létust við björgunarstörf
þegar Tvíburaturnarnir í New
York hrundu eru mjög ósáttar við
leikstjórann Oliver Stone og kvik-
mynd hans World Trade Center.
Ekki var við öðru búast þegar
Stone er nærri því kvikmyndir
hans hafa oftar en ekki valdið
miklum deilum. Þær Jamie Amor-
oso og Jeanette Pezzul eru ekki
síður sárar út í lögreglumennina
tvo sem komust lífs af en ekkjurn-
ar segja þá vera að græða á harmi
og sorg.
Kvikmyndin segir frá fimm
lögreglumönnum sem voru að
bjarga fólki úr rústunum þegar
fyrri turninn hrundi. Þeir Chris
Amoroso, Dominick Pezzulo og
Antonio Rodrigues létu allir lífið
en John McLoughlin og Will Jime-
no komust lífs af og byggir mynd-
in að hluta til á frásögn þeirra.
Ekkjurnar tvær segja kvikmynda-
verið Paramount Pictures vera að
ýfa upp gömul sár og þær vilja
ekki láta börnin sín sjá hvernig
feður þeirra dóu eða deila dauða
þeirra með milljónum áhorfenda.
Í yfirlýsingu frá kvikmynda-
verinu kemur fram að ekkjunum
tveimur hafi verið boðið á fund
sem eingöngu Amoroso mætti á.
Þar ítrekaði hún beiðni þeirra
beggja að eiginmönnum þeirra
yrði haldið frá myndinni. Kvik-
myndaverið sagðist ekki geta
orðið við ósk þeirra og vildi fá að
heiðra minningu lögreglumann-
anna. „Ég þarf enga kvikmynd til
að sýna mér hversu mikil hetja
eiginmaður minn var,“ sagði
Amoroso í samtali við The Sunday
Star Ledger of Newark.
Bæði McLoughlin og Jimeno
hafa verið sakaðir um ónærgætni
vegna myndarinnar og hefur
önnur ekkjan haft á orði að Jime-
no hafi vingast við fjölskylduna í
því skyni að afla sér upplýsinga
um hana. Sjálfir bera þeir af sér
allar sakir og segja nærveru sína
nauðsynlega til að myndin verði
sem raunverulegust. „Þetta er líka
okkar saga því við erum einnig
fórnarlömb.“
Með aðalhlutverkin í myndinni
fara þau Nicholas Cage og Maria
Bello.
Enn veldur Stone deilum
HRYÐJUVERKIN World Trade Center eftir
Oliver Stone hefur þegar ollið nokkrum
deilum en tveir lögreglumenn, og Para-
mount, eru sakaðir um ónærgætni í garð
hinna látnu. FRÉTTABLAÐIÐ / REUTERS
WALT DISNEY KYNNIR SÍGILT ÆVINTÝRI C.S. LEWIS
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Í BT um
allt land!
VI
NN
IN
GA
R
VE
RÐ
A
AF
HE
ND
IR
H
JÁ
B
T
SM
ÁR
AL
IN
D.
K
ÓP
AV
OG
I.
M
EÐ
Þ
VÍ
A
Ð
TA
KA
Þ
ÁT
T
ER
TU
K
OM
IN
N
Í S
M
S
KL
ÚB
B.
9
9
KR
/S
KE
YT
IÐ
.
SMSLEIKUR
PAUL WALKER
„Sama hvað þú lest eða
heyrir, ekkert mun búa
þig undir kraftinn og
þungann í þessari mynd!”
-Quentin Tarantino
„Ég er dolfallinn!”
-Roger Ebert
LAUGAVEGUR 116 Þar sem verslunin
Fataland var áður til húsa verður verslunin
Völuskrín með leikföng fyrir forvitið fólk.
LAUGAVEGUR 97 Seating Company hefur
flutt sig yfir í næsta hús og fasteignasalan
Domus hefur yfirtekið plássið.
LAUGAVEGUR 82 Lífstykkjabúðin er að flytja
frá Laugavegi 4 og hingað í þetta glæsilega
hornhús. Til stendur að rífa húsnæðið sem
hýsir verslunina núna en nýja húsnæðið er
meira en tvöfalt stærra en það gamla.
LAUGAVEGUR 70 Verslun Gismo sem selur
ýmsar sniðugar gjafir gafst upp á búskapn-
um við Laugaveg og flutti í Ármúlann.
LAUGAVEGUR 7 Íslenskir karlmenn flytja
bráðlega frá Laugavegi 74 og í síðasta versl-
unarplássið við Laugaveg 7.
LAUGAVEGUR 62 Nærfataverslunin Knicker-
box er farin af Laugaveginum og er nú
bara að finna í Kringlunni. Það verður
spennandi að sjá hvað kemur í staðinn í
þetta hornhús við Vitastíg.
BANKASTRÆTI 10 Islandica hefur rekið
verslun í Kringlunni en opnar nú einnig
útibú í miðbænum þar sem Stúdentaferðir
voru áður til húsa. Ferðaskrifstofan er flutt
í Borgartúnið.
LAUGAVEGUR 11 Cintamani opnaði
glæsilega verslun í þessu húsnæði síðasta
laugardag þar sem bæði er hægt að kaupa
útivistarfatnað og bóka ævintýraferðir. Þar
er einnig hægt að komast frítt á netið.
LAUGAVEGUR 44 Diza, verslun sem selur
fatnað, bútasaums- og prjónavörur, hefur
opnað þar sem Levis-verslunin var áður til
húsa. Það hlýtur það að vera til marks um
það að Reykvíkingar séu farnir að stunda
hannyrðir af meira kappi en áður.
LAUGAVEGUR 28 Veitingastaðurinn Sjanghæ var lengi hér til húsa en starfsemi hússins er
heldur betur að breytast. Fataverslunin Spútnik sem nú er til húsa við Klapparstíg flytur á
neðri hæðina sem er nærri 130 fm og uppi verður opnað kaffihús.
LAUGAVEGUR 12 Lakkrísbúðin var til húsa í
þessu litla krúttlega húsnæði og hýsti það
líka kosningaskrifstofu Oddnýju Sturlu-
dóttur á sínum tíma. Þar opnar fljótlega
fataverslun.
HRÆRINGAR Í MIÐBÆNUM