Fréttablaðið - 11.04.2006, Page 38
ATVINNA
11. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR
! " # $%
&&'
(
)*+
( , &
- (
#.
!"#" $ %&'"!
"$() *
'""
$!
$!+$$"$
"" $"
,
"""$
-&
!
./
$ !&!"# !/#*
%$
"&!
!$"0
/ & -
/ 0-
' "
"
"1
1#!,! / 2-
/ ( '
/ 3
/ 4-& / 3 / 5 '
2&!!$$3!#$
!*
3!#$
KÓPAVOGSBÆR
Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogs
á auglýstri tillögu að breyttu aðalskipulagi.
Í samræmi við 3. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
afgreiðsla bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi tillögu:
Hnoðraholt, Smalaholt og Rjúpnahæð.
Breytt aðalskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 17. mars 2006
tillögu að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 í
Hnoðraholti, Smalaholti og í Rjúpnahæð. Í breytingunni
felst að opin svæði auðkennd til skógræktar og svæði fyrir
þjónustustofnanir í Hnoðraholti, Smalaholti og í Rjúpna-
hæð er breytt í íbúðarsvæði. Gönguleiðir og reiðleiðir á
svæðinu breytast. Gert er ráð fyrir nýju undirgöngum fyrir
gangandi umferð undir fyrirhugaðan Arnarnesveg á móts
við Hádegishóla. Afmörkun golfvallar GKG er aðlöguð
núverandi athafnarsvæði vallarins í Rjúpnadal (þ.e. aus-
tast á golfvallarsvæðinu). Opin svæði auðkennd til skó-
græktar eru stækkuð í austur hluta Rjúpnahæðar. Á
breytingasvæðunum, sem eru um 34 ha að flatarmáli eru
áætlaðar liðlega 360 íbúðir í sérbýli og fjölbýli. Þéttleiki
byggðarinnar er því áætlaður um 11 íbúðir á ha. Fjöldi
íbúa miðað við 3 í íbúð er áætlaður tæplega 1.100 íbúar.
Nánar tiltekið nær breytingin til þriggja svæða:
Hnoðraholt.
Skipulagssvæðið afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi
í norður, fyrirhugaðri tengibraut frá Arnarnesvegi í suður
að Vífilstaðavatni og lögsögumörkum Kópavogs og
Garðabæjar í suður og vestur. Í breytingunni felst að opið
svæði auðkennt til skógræktar verður íbúðarsvæði.
Afmörkun svæðis fyrir þjónustustofnun (spennistöð)
breytist. Reiðleið um Hnoðraholt er felld út. Gönguleiðir
breytast. Gert er ráð fyrir nýjum undirgöngum fyrir gang-
andi umferð undir Arnarnesveg á móts við Hádegishóla.
Fyrirhugað íbúðarsvæði er áætlað um 8 ha að flatarmáli
fyrir um 180 íbúðir og er þéttleiki byggðarinnar því áæt-
laður um 23 íbúðir á ha. Fjöldi íbúa miðað við 3 í íbúð er
áætlaður um 540 íbúar.
Smalaholt.
Tillagan nær til svæðis vestast í Smalaholti og afmarkast í
norður af golfvelli GKG, skógræktarsvæði í Smalaholti í
austur og lögsögumörkum Garðabæjar og Kópavogs í
suður og vestur. Í breytingunni felst að opið svæði
auðkennt til skógræktar verður íbúðarsvæði. Svæðið er
um 4.2 ha að flatarmáli og á því eru fyrirhugaðar 30
íbúðir. Þéttleiki byggðarinnar er áætlaður um 7 íbúðir á
ha. Fjöldi íbúa miðað við 3 í íbúð er áætlaður um 90
íbúar.
Reiðleiðir og gönguleiðir breytast. Afmörkun golfvallar
breytist.
Rjúpnahæð. Austur hluti.
Skipulagssvæðið afmarkast af lögsögumörkum Kópavogs
og Garðabæjar suður, opnu svæði í vestur golfvelli GKG í
norður og fyrirhugaðri byggð við Ásakór í austur. Í breytin-
gunni felst að svæði fyrir þjónustustofnanir (loftskey-
tamöstur) breytist í íbúðarsvæði og opin svæði auðkennt
til skógræktar. Skipulagssvæðið er um 22 ha að flatarmáli
og á því eru áætlaðar um 150 íbúðir. Þéttleiki byggðar-
innar er áætlaður 7 íbúðir á ha. Fjöldi íbúa miðað við 3 í
íbúð er áætlaður um 450 íbúar. Reiðleiðir og gönguleiðir
breytast.
Ofangreind breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012
í Hnoðraholti, Smalaholti og í Rjúpnahæð er sett fram á
uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í
nóvember 2005. Einnig er gerð grein fyrir breytingunni í:
Hnoðraholt – Smalaholt, Rjúpnahæð. Úttekt á áhrifum
íbúðarbyggðar. Greinargerð með breytingu á Aðalskipu-
lagi Kópavogs 2000-2012, Verkfræðistofan Hönnun,
nóvember 2005.Tillagan var auglýst frá 4. janúar til 1.
febrúar 2006 með athugasemdafresti til 15. febrúar 2006.
Athugasemdir og ábendingar bárust. Tillagan var
samþykkt óbreytt. Bæjaryfirvöld hafa afgreitt athuga-
semdirnar og sent þeim sem þær gerðu umsögn sína.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulags-
stofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um loka-
afgreiðslu.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreinda skipu-
lagsáætlun og afgreiðslu hennar er hægt að nálgast á
Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli
kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstu-
dögum frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
EFTIRLAUNASJÓÐUR SLÁTURFÉLAGS
SUÐURLANDS
Boðað er til ársfundar Eftirlaunasjóðs Sláturfélags Suðurlands.
Fundurinn verður haldinn að Fosshálsi 1, 3. hæð,
þriðjudaginn 25. apríl n.k. kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Kynning ársreiknings, tryggingafræðilegrar úttektar og
fjárfestingastefnu.
3. Kosning fulltrúa í stjórn sjóðsins
4. Tillaga á breytingum á samþykktum sjóðsins,
um að leggja niður kjörna skoðunarmenn sjóðsins.
5. Önnur mál.
Stjórnin
Fr
um
Við erum í
Félagi fasteignasala
Dögg Pálsdóttir hrl., lögg. fast.sali - Þyrí Steingrímsdóttir hdl., lögg. fast.sali.
Andri Sigurðsson sölustjóri - Ólafur Finnbogason sölumaður
EINBÝLI Í FOSSVOGI
Við höfum verið beðin að finna rúmgott einbýli á einni
hæð í Fossvogi. Um er að ræða fjársterkan aðila og rúman
afhendingartíma ef þess er óskað.
Nánari upplýsingar veita sölumenn DP FASTEIGNA.
HEIÐARGERÐI 90 - OPIÐ HÚS Í DAG
Vorum að fá í sölu einbýlishús á tveimur hæðum auk
bílskúrs á þessum vinsæla stað. Á neðri hæð er eld-
hús, baðherbergi, þvottahús og björt og góð stofa. Á
efri hæðinni eru 3-4 svefnherbergi og salerni. Góður
ca 32 fm bílskúr. Húsið er nýlega viðgert að utan og
verður steinað með marmarasalla.
Fr
um
Opið hús milli kl. 17: 30 og 19 í dag. Verið velkomin!
FASTEIGNIR
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
31-39 smáar Hægri 10.4.2006 15:24 Page 10