Fréttablaðið - 11.04.2006, Side 56

Fréttablaðið - 11.04.2006, Side 56
40 11. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 8 9 10 11 12 13 14 Þriðjudagur ■ ■ SJÓNVARP  18.30 Mótorsport 2005 á Sýn.  19.00 Gillette sportpakkinn á Sýn.  19.30 Meistaradeild Evrópu á Sýn - Fréttaþáttur.  20.00 Skólahreysti á Sýn. Endurtekinn þáttur um úrslitin í keppninni.  22.00 Leiðin á HM 2006 á Sýn.  22.25 Súperkross á Sýn. ������ ���� ������ ���������������� ������������������ Hinn margfaldi Íslandsmeistari í borð- tennis, Guðmundur Stephensen, er á leiðinni til hinna nýbökuðu sænsku meistara í Eslövs sem einmitt lögðu Guðmund og félaga í Malmö í úrslitaeinvíginu 3-1. Guðmundur missti af fyrsta leiknum vegna veik- inda en kom til baka í eina sigri Malmö þar sem hann vann tvo leiki. „Við töpuðum tveimur leikjum í bráðabana eftir að staðan hafði verið 4-4. Það var mjög svekkjandi, sérstaklega í ljósi þess að Kínverjinn okkar er líklega besti leikmaðurinn í deildinni en óheppnin réð þarna ríkju,“ sagði Guðmundur við Fréttablaðið í gær en hann var í minna formi en ella í úrslitakeppninni vegna veikindanna. „Ég er sáttur við mitt hlutskipti í úrslitakeppninni fyrir utan föstu- daginn þegar ég tapaði tveimur leikjum. Það er í fyrsta skipti á ferlinum sem það gerist,“ sagði Guð- mundur sem er á leið til Eslövs en félagið hans Malmö er mjög illa statt fjárhagslega. „Sænsku blöðin hlupu í gönur og eru búin að blása málið alveg upp. Þau greindu frá því að ég væri búinn að skrifa undir en það er alls kostar ekki rétt. Ég er aftur á móti búinn að ræða við liðið og það eru allar líkur á að ég fari þangað. Mig langar ekki til að skipta en Malmö segir okkur að fara annað þar sem félagið sé mjög illa statt fjárhagslega og verður ekki með alvöru lið á næsta ári,“ sagði Guðmundur, en þjálfarinn hans var ekki sáttur við hann fyrir síðasta leikinn á sunnudaginn. „Þetta leit ekki vel út fyrir mig, að ég væri búinn að skrifa undir hjá félaginu sem við vorum að keppa við í úrslitun- um. Þjálfarinn var ekki sáttur við mig, spurði hvort ég væri búinn að skoða blöðin í dag, en þegar ég sagði nei henti hann blaðinu í mig og skellti hurðinni á eftir sér. En þessi saga var alls ekki rétt og það er allt í góðu á milli okkar núna,“ sagði Guðmundur sem ætti að skrifa undir hjá Eslövs í nánustu framtíð. BORÐTENNISKAPPINN GUÐMUNDUR STEPHENSEN: Á LEIÐINNI TIL SÆNSKU MEISTARANNA Í ESLÖVS Þjálfarinn grýtti í mig dagblaðinu HANDBOLTI Alfreð Gíslason var að tína saman mannskapinn í Magde- burg þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Alfreð hafði í nógu að snúast við að safna mönnum saman, koma þeim á æfingu eða upp á hótel. Allt leit vel út nema hvað ekki hafði náðst í Ólaf Stef- ánsson en fyrir löngu er orðið þekkt hversu erfitt er að ná í fyrirliðann í síma. „Hann hlýtur að skila sér strák- urinn. Hann gæti þess vegna verið kominn upp á hótel,“ sagði Alfreð í gær en landsliðið mun dveljast við bestu aðstæður í Magdeburg. Þetta er fyrsti hluti af undirbún- ingi liðsins fyrir leikina tvo gegn Svíum í júní. „Við byrjum á því að láta alla fara á hlaupabretti til að skoða lík- amlegt ástand allra leikmannanna. Ég vil komast að því hvernig ástandið er á mannskapnum áður en við leggjum línurnar að því sem við gerum fram að júnímán- uði,“ sagði þjálfarinn sem leggur mikla áherslu á að nýta tímann vel. „Við þurfum líka að skoða varn- arleikinn sérstaklega vel og nú afbrigði af honum. Það eru nýir menn að koma inn, til að mynda Sverrir Björnsson og Vignir Svav- arsson. Ég mun einbeita mér mikið að varnarleiknum en hvað sóknar- leikinn varðar munum við leggj- ast yfir það hvað við gerum gegn 6-0 vörn. Þetta er það sem ég mun leggja aðaláherslu á hér í Þýska- landi,“ sagði Alfeð en liðið mun æfa vel ytra. „Við munu æfa þétt, tvisvar til þrisvar á dag auk þess sem við tökum fundi inni á milli. Það er erfitt að ætla sér að keyra upp þrek hjá leikmönnum þegar maður hefur bara eina viku en við hitt- umst einnig til að stilla saman strengi okkar. Auk þess eru þessir strákar í góðu formi og því engin sérstök ástæða til þess að pumpa upp þolið,“ sagði Alfreð. „Það er alltaf gott að hitta hóp- inn og leggja línurnar. Við erum með nýja menn auk þess sem ég er nýr í starfi og þá eru strákar í hópnum sem hafa ekki verið við- loðnir hann lengi. Við höfum lítinn tíma og því verðum við að nýta tímann til hins ýtrasta. Það stefnir í góða viku hérna úti. Ég geng út frá því,“ sagði landsliðsþjálfarinn að lokum. hjalti@frettabladid.is Ætlum að nýta tímann vel Íslenska landsliðið í handbolta kom saman í Magdeburg í Þýskalandi í gær þar sem það verður við æfingar í vikutíma. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari vonast til að nýta tímann í Þýskalandi sem best fyrir leikina gegn Svíum í júní. ALFREÐ GÍSLASON Á von á góðri viku í Þýskalandi þar sem landsliðshópurinn mun dveljast í góðu yfirlæti í eina viku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Keflvíkingar duttu í lukkupottinn þegar dregið var í InterToto-keppninni í gær en and- stæðingar þeirra verða frá Norð- ur-Írlandi. Ekki er ljóst hvaða lið það verður sem mætir Keflavík í tveimur leikjum, en liðið sem lendir í fjórða sæti í deildakeppn- inni þar hreppir hnossið. Fyrri leikurinn fer fram þann 18. júní í Keflavík en sá síðari ytra, viku síðar. Í annarri umferð yrði andstæð- ingurinn svo Lilleström frá Nor- egi og þriðja umferðin býður upp á stórleik gegn ensku liði, Black- burn, Everton eða Middlesbrough þar sem spilað er um sæti í UEFA- bikarnum. „Ég er mjög ánægður með þetta. Við eigum möguleika á að komast áfram og við gerum allt til að tryggja okkur flugið til Osló. Það væri síðan alveg frábært að koma til Englands en það er enn langur vegur þangað,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, við Fréttablaðið í gær. „Vissulega munum við setja púður í þessa keppni. Ég verð að viðurkenna að ég hef nokkrar áhyggjur af því að þetta trufli Landsbankadeildina, þetta gerir það alltaf. Þetta er spurning hvernig við tæklum þetta, það þarf að beita sér í því að hafa hugsunina rétta,“ sagði Kristján. Keflvíkingar komu frá Spáni á laugardaginn en þar voru þeir með þrjá erlenda leikmenn á reynslu. „Við sendum einn strax heim en erum enn að skoða hina tvo. Við tökum örugglega ekki báða en það er möguleiki á að við tökum annan án þess að það sé öruggt,“ sagði Kristján en um er að ræða rúmenskan miðvörð og Ástralann Daniel Severino sem er fjölhæfur miðjumaður og góður vinur Buddy Farah sem er kominn til Keflavíkurliðsins. - hþh Keflavík mætir liði frá Norður-Írlandi í fyrstu umferð InterToto-keppninnar: Ætlum að setja púður í þetta ISSA ABDULKADIR Í leik með Keflavík í Evrópukeppninni í fyrra gegn þýska liðinu Mainz. > Stefán undir feldi Landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, Stefán Arnarson, staðfesti við Fréttablað- ið í gær að Haukar hefðu haft samband við sig. Haukar leita að þjálfara fyrir kvennalið félagsins en Guðmundur Karlsson hefur sem kunnugt er látið af störfum. Stefán sagðist liggja undir feldi og myndi ekki svara Haukum fyrr en eftir páska. Hann væri að íhuga ýmsa hluti og þar á meðal hvort hann vildi hella sér út í þjálfun á fullu á nýjan leik. Enn bætist í hóp Þróttara Þróttarar eru ekki hættir að sanka að sér leikmönnum en tveir nýir menn hafa skrifað undir samninga hjá liðinu. Andrés Vilhjálmsson kemur til Þróttar frá ÍA og Þórður Hreiðarsson frá Val. Þar með hafa Þróttarar bætt við sig níu leikmönnum frá síðasta sumri en liðið hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku og misst marga lykilmenn. KÖRFUBOLTI Guðjón Már Þorsteins- son hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Körfuknatt- leikssambands Íslands. Ólafur Rafnsson mun láta af embætti á næsta ársþingi en hann sækist nú eftir forsetastóli ÍSÍ. Auk Guð- jóns hefur Hannes Jónsson boðið sig fram til formanns, sem hann kynnti með öllu hefðbundnari hætti en Guðjón. Í stað þess að senda yfirlýs- ingu sína til fjölmiðla, eða í það minnsta KKÍ, birti Guðjón yfir- lýsingu sína á spjallborði íþrótta- vefsins Sport.is þar sem Guðjón útlistar áhuga sinn á íþróttum og stjórnarstörfum. Guðjón er stjórnarmaður í KKÍ og hefur mikla reynslu af stjórnunarstörf- um. „Ef mér tekst að ná for- mennsku þá mun ég gefa mig allan í starfið og vinna náið með öllum sem áhuga hafa á. Fyrir mér eru allir jafnir, og ekkert er svo lítið að það skipti ekki máli í heildarmyndinni,“ sagði Guðjón meðal annars í yfirlýsingu sinni. - hþh Formannsefni KKÍ: Guðjón býður sig fram KÖRFUBOLTI Bandaríkjamaðurinn A.J. Moye er gríðarlega eftirsótt- ur af liðum í Evrópu en hann vill helst vera áfram í Keflavík. Moye skoraði 28,9 stig að meðaltali í leik með Keflavík í vetur og var besti maður liðsins sem hrósaði sigri í deildarkeppninni. „Eðlilega hafa mörg lið sýnt honum áhuga, héðan og þaðan. Það er fullt af liðum í Evrópu sem hafa spurst fyrir um hann en hann er ekkert að stressa sig á hlutunum og vill helst af öllu vera áfram í Keflavík. Hann á marga kosti í stöðunni og á klárlega eftir að gera eitthvað gott,“ sagði Sigurð- ur Ingimundarson, þjálfari liðs- ins, við Fréttablaðið í gær. Sigurður sagði jafnframt að hann væri ekki ákveðinn hvort hann hygðist þjálfa Keflavíkurlið- ið áfram en hann ætlaði að taka ákvörðun um það á næstunni. - hþh A.J. Moye: Vill vera áfram hjá Keflavík AJ MOYE Hefur leikið frábærlega fyrir Keflavík í vetur. Þrátt fyrir vilja sinn að vera áfram hjá Keflavík er alls óvíst að svo verði þar sem margir hafa áhuga á honum þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.