Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 10
10 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
��������������������������������
����������������������������
������������������������ ������������
����������������������������������������
��� ����������� ���������������������
����������������������������
��������������
��������������������������������������� ���������������������������������������������
�������������������������������������������������������� �� ������������
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
���������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
�������������������������������������������������������������������������� ������������������������������� ����������������
VARÚÐ! Þessi gæs hvæsti illilega á vegfar-
endur við innganginn í stóra verslunarmið-
stöð í Toronto í Kanada á mánudag, því
hún og maki hennar hafa gert sér hreiður
í blómabeði skammt frá innganginum í
húsið, þrátt fyrir mikla umferð manna um
svæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Liðlega 186 milljóna
króna hagnaður varð af rekstri
Sparisjóðs Norðlendinga í fyrra
og hefur hagnaðurinn aldrei verið
meiri frá því sparisjóðurinn var
stofnaður árið 1997. Bókfært eigið
fé var 781 milljón króna í árslok
og eiginfjárhlutfallið 12,7 pró-
sent.
Útlán jukust um rúma tvo millj-
arða á árinu og námu um 6,3 millj-
örðum króna í árslok. Innlán juk-
ust einnig eða um 1,5 milljarð og
námu í árslok rúmum 5,5 milljörð-
um króna. - kk
Sparisjóður Norðlendinga
Mesti hagnað-
ur frá upphafi
UMFERÐARÖRYGGI Rúmlega 70 pró-
sent af kröfum sem vátrygginga-
félög eignast á hendur þeim öku-
mönnum sem valda tjóni af
ásetningi eða stórkostlegu gáleysi,
eru vegna ölvunaraksturs. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá end-
urkröfunefnd.
Viðskiptaráðherra skipar nefnd
þriggja manna til að kveða á um
hvort og að hve miklu leyti beita
skuli endurkröfum. Í nefndinni
sitja Helgi Jóhannesson, Andri
Árnason og Sigmar Ármannsson.
Á árinu 2005 bárust nefndinni
samtals 70 ný mál til úrskurðar. Af
þessum málum samþykkti nefnd-
in endurkröfu í 66 málum. -mh
Endurkröfur á tjónvalda:
Ölvunarakstur
helsta orsökin
DANMÖRK Um tólf þúsund manns
hylltu Margréti Þórhildi Dana-
drottningu á 66 ára afmælisdegi
hennar í garðinum við Marselis-
borgarhöll í Árósum á páskadag.
Yngsti meðlimur konungsfjöl-
skyldunnar, hinn hálfs árs gamli
Kristján prins Friðriks- og Maríu
Elísabetarson, tók þátt í athöfn-
inni ásamt foreldrum sínum og
föðurbróðurnum Jóakim prins.
Var þetta fyrsta opinbera athöfn-
in sem litli prinsinn tók þátt í. - aa
Afmæli Danadrottningar:
Litli prinsinn
hyllti ömmu
KRISTJÁN PRINS Tók þátt í að hylla ömmu
sína á 66 ára afmælinu. NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRNAMÁL „Við erum
þeirrar gæfu aðnjótandi að geta
teflt fram reynslumiklu forystu-
fólki sem er tilbúið til þess að stýra
borginni inn í nýja tíma,“ sagði
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóra-
efni Samfylkingarinnar, þegar
stefnuskrá flokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar var kynnt í
gær.
Samfylkingin leggur áherslu á
að hverfi borgarinnar fái svigrúm
til þess að nýta sérstöðu sína og
kosti, en í stefnuskrá flokksins
segir að „öll þjónusta eigi að vera
aðgengileg á einum stað og vera
veitt eins nálægt íbúum og hægt
er.“
Í þessu samhengi horfir Sam-
fylkingin til þess að málefni aldr-
aðra, fatlaðra, og annarrar nær-
þjónustu verði flutt frá ríki til
borgarinnar.
Samfylkingin segist tilbúin til
þess að taka við staðbundinni lög-
gæslu í borginni en Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykja-
vík, hefur um árabil talað fyrir því
að löggæsla verði færð frá ríki til
borgarinnar. „Ég hef lagt til að lög-
gæslan verði færð frá ríki til borg-
arinnar, það virðist ekki vera áhugi
á því hjá ríkinu. Löggæslan er hluti
af nærþjónustu sem ég tel að henti
sveitarfélögum betur en ríkinu að
sjá um. Þar á ég við umferðarlög-
gæslu og eftirlit í hverfum”
Í stefnuskránni er það lagt til að
húsnæðisframboð verði aukið veru-
lega í Reykjavík á næstu árum.
Samfylkingin stefnir að uppbygg-
ingu sex þúsund íbúða í Reykjavík
á næstu árum.
Í stefnuskránni kemur fram að
vilji sé fyrir því hjá Samfylking-
unni, að öll málefni aldraða verði
færð frá ríki til borgarinnar. „Við
viljum halda áfram að efla heima-
þjónustu og heimahjúkrun, byggja
fleiri hjúkrunarheimili og tryggja
örugg úrræði þegar fólk þarf á
þeim að halda,“ sagði Dagur.
Samfylkingin hefur ekki áður
boðið fram lista í eign nafni í borg-
arstjórnarkosningum. Dagur telur
að reynsla þeirra sem í framboði
eru fyrir Samfylkinguna vegi þungt
þegar kosið verður í vor. „Það er
munaður að geta teflt fram sitjandi
borgarstjóra, formanni borgar-,
mennta-, velferðar- og skipulags-
ráðs, og svo mætti áfram telja.
Þetta fólk er búið að stýra borginni
inn í mesta uppbyggingarskeið í
sögu borgarinnar, sem við erum
stödd í núna.“
Dagur telur að rík krafa borgar-
búa um örugga og markvissa þjón-
ustu muni ráða miklu í kosningun-
um í vor. „Það er mikilvægt að
flokkar geti sýnt það í verki að þeir
séu tilbúnir til þess að skapa borg-
arbúum öruggt þjónustuumhverfi.
Það erum við tilbúin að gera. Sam-
fylkingin er skýr valkostur fyrir
borgarbúa sem vilja örugga þjón-
ustu, kraftmikla uppbyggingu sem
nær til allra, þar sem ungir sem
aldnir fá tækifæri til þess að njóta
sín.“
Þjónusta við íbúa í
Reykjavík verði efld
Samfylkingin í Reykjavík leggur á það áherslu að þjónusta við unga sem aldna
verði elfd. Borgarstjóri segir borgina geta tekið við fleiri verkefnum frá ríkinu.
STEFNUSKRÁIN KYNNT Fram kom í máli Dags B. Eggertssonar, oddvita
á lista Samfylkingarinnar, að kraftmikil og örugg þjónustu við íbúa eigi að
vera meginviðfangsefni kosninganna í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVEITASTJÓRNARMÁL Ungir sjálf-
stæðismenn vilja kanna, í sam-
starfi við einkaaðila, hvort koma
megi á þráðlausu tölvusambandi
um alla borg og koma Reykjavík í
fremstu röð hvað varðar tölvu-
tækni og nettengingu. „Við ætlum
að reyna að vera fyrsta höfuð-
borgin til að vera þráðlaus borg,“
segir Bolli Thoroddsen, formaður
Heimdallar og frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins til borgar-
stjórnarkosninga í vor.
Þetta er meðal þeirra stefnu-
mála sem koma fram í stefnuskrá
ungra sjálfstæðismanna um mál-
efni ungs fólks í borginni en þeir
opnuðu kosningamiðstöð sína í
gær í gamla Morgunblaðshúsinu.
Í stefnuskránni er farið yfir
húsnæðismál ungs fólks, stúd-
entagarða, skólamál, æskulýðs-
mál, samgöngumál og fleira.
Ungir sjálfstæðismenn vilja
auka möguleika fólks á að kaupa
lóðir og telja að nægt framboð sé
til að svo megi verða. Sömuleiðis
vilja þeir fjölga bílastæðum í
miðbænum.
„Aðalatriðið er að einhver gæti
hagsmuna ungs fólks og við telj-
um það vera okkar hlutverk,“
segir Bolli. - sdg
Ungir sjálfstæðismenn:
Þráðlaust net
um alla borg
KOSNINGAMIÐSTÖÐ
UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
Stefnuskráin var kynnt á
blaðamannafundi í gær.
STJÓRNMÁL Stjórnarandstæðingar
segja að með því að raska boðaðri
dagskrá þingsins sé búið að setja
þinghaldið í algert uppnám á
næstunni.
„Án samkomulags og án sam-
ráðs við stjórnarandstöðuna er
sett niður dagskrá með umdeild-
um málum. Á færibandi ríkis-
stjórnarinnar bíða fjölmörg mál
sem eru umdeild, ekki aðeins
innan þings heldur í þjóðfélaginu
almennt,“ sagði Ögmundur Jónas-
son þingmaður vinstri grænna við
upphaf þingfundar í gær.
Margrét Frímannsdóttir, Sam-
fylkingunni, sagði að í raun hefði
átt að svara fyrirspurnum á þing-
fundinum, en 32 fyrirspurnir bíða
enn svara frá ráðherrum. Um 35
mál ríkisstjórnarinnar eru mis-
jafnlega á vegi stödd og bíða
afgreiðslu þingsins. „Starfsáætl-
un þingsins er ónýt, því miður. Og
það er vegna þess að hér hafa
verið sett fram mörg ágreinings-
mál sem hafa ekki einu sinni feng-
ið eðlilega umfjöllun í nefndum,“
sagði Margrét.
Össur Skarphéðinsson, Sam-
fylkingunni, boðaði langan og
harðan slag um frumvarp um Rík-
isútvarpið, en umræðum um
það var fram haldið í gær.
Sólveig Pétursdóttir forseti
Alþingis ætlar að halda fund með
forystu þingflokkanna á föstudag
og kvaðst vona að málin skýrðust
á þeim fundi. - jh
Upplausn í störfum Alþingis og ekkert samráð segja stjórnarandstæðingar:
Friðarumleitanir á morgun
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Össur boðar
langvinnar og harðar umræður um RÚV
frumvarpið næstu daga.