Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 19
19FIMMTUDAGUR 20. apríl 2006
Skagfirðingar blása til fjögurra
daga stórsýningu undir heitinu
„Tekið til kostanna“ nú um helg-
ina. Þetta er í fimmta sinn sem
slík sýning er haldin.
„Fyrsta sýningin var haldin
sama ár og reiðhöllin var tilbúin,“
segir Ingimar Ingimarsson sýn-
ingarstjóri. „Síðan hefur þetta
verið árlegur viðburður, alltaf
um fyrstu sumarhelgi.“
Ingimar segir að umfang sýn-
ingarinnar hafi verið aukið í fyrra
með því að fjölga dögum. Þá hafi
verið farið í samstarf við Hóla-
skóla og nú sé viðburðurinn sann-
arlega hestahátíð í héraði, sem
standi frá fimmtudegi fram á
sunnudag.
„Við höfum einnig auglýst sýn-
inguna í Íslandshestatímaritum
erlendis og hana sækja allnokkrir
útlendingar. Við erum í samstarfi
við ferðaþjónustufólk hér í Skaga-
firði og Ferðaþjónustu bænda
varðandi móttöku þeirra. Dagskrá
fimmtudagsins sem fram fer á
Hólum er flutt á ensku og stílað
upp á erlenda gesti.“
Ingimar segir að aðsóknin hafi
aukist ár frá ári og sýningin á síð-
asta ári hafi heppnast einstaklega
vel. Nú komi fyrstu gestirnir
strax á miðvikudagskvöld og
dvelji í Skagafirðinum fram á
sunnudag.
Meðal atriða á „Tekið til kost-
anna“ er fyrsta kynbótasýning
ársins. Skráð hafa verið 20-30
hross, að sögn Ingimars. Þá verð-
ur svokallað gæðatölt, þar sem
sýnt er hægt tölt og hraðabreyt-
ingar. Einn dómari dæmir og er
með „beina útsendingu í dómum“
ef svo mætti segja, því hann gefur
umsögn í magnarakerfi jafnóðum
og leyfir áhorfendum að fylgjast
með. Eitt hundrað þúsund krónur
eru í verðlaun fyrir efsta sætið.
Margt fleira mætti nefna sem
verður á þessari fjölbreyttu sýn-
ingu, til að mynda harðsnúna hópa
karla og kvenna úr Vestur-Húna-
vatnssýslu, sem sýna reiðlistir
sínar. Landsmótssigurvegarinn
Rökkvi frá Hárlaugsstöðum mætir
ásamt Þorvaldi Árna Þorvalds-
syni, unghross verða sýnd og fjöl-
mörgu fleiru tjaldað til.
jss@frettabladid.is
LÍFLEGUR MARKAÐUR Einn viðburður
sýningarinnar er markaðsdagur í Svaða-
staðahöllinni. Markaðssvæðið hefur verið
þéttsetið eins og sjá má af myndinni.
HÁGANGUR Stóðhesturinn Hágangur fer vel undir hinni ungu Ingunni Ingólfsdóttur. Mette
Manseth reiðkennari er henni til aðstoðar.
Það verður stórhátíð í Skagafirði nú um helgina.
Hún hefst í kvöld og henni lýkur ekki fyrr en á
sunnudag. Gestum sem sækja þessa hátíð hefur far-
ið fjölgandi og erlendir aðdáendur íslenska hestsins
láta sig ekki lengur vanta.
Hestahátíð
í héraði
SKRAUTREIÐ Sýningin tekið
til kostanna er afar fjölbreytt
sýning þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fimmtudagur 20. apríl
Kl. 13.00 Hólaskóli.
Reiðkennslusýning undir stjórn Mette
Mannseth.
Fyrirlestrar tengdir hrossarækt.
Föstudagur 21. apríl
Kl. 8.00 Dómar kynbótahrossa á
Sauðárkróki.
Kl. 13.00 Gæðatölt-forkeppni.
Kl. 21.00 Tekið til kostanna-forsýning.
Laugardagur 22. apríl
Kl. 10.00 Yfirlitssýning kynbótahross.
Kl. 13.00 Markaðsdagur í Svaðastaða-
höllinni.
Sölu- og kynningarbásar.
Unghrossasýning.
Grillveisla.
Ýmsar skemmtilegar uppákomur!
Kl. 21.00 Tekið til kostanna-stórsýning
með öllu því besta.
Sunnudagur 23. apríl
Kl. 13.00-18.00 Opinn dagur á hrossa-
ræktarbúum.
DAGSKRÁ