Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 34
20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR34
AF NETINU
Í tveimur forystugreinum Frétta-
blaðsins fyrir skömmu var stefna
ríkisstjórnarinnar í málefnum
Ríkisútvarpsins gagnrýnd með
skýrum málefnalegum rökum.
Menntamálaráðherra svaraði
þeirri gagnrýni í fréttaviðtali á
NFS. Einu andmæli ráðherra voru
þau að halda því fram að ritstjóri
blaðsins væri málpípa eigenda
þess. Útvarpsstjóri hefur síðan
kvatt sér hljóðs á síðum Morgun-
blaðsins með greinaskrifum í tví-
gang til þess að ítreka ummæli
ráðherrans um þetta efni.
Útvarpsstjóri er jafnframt
þeirri stöðu sinni þulur á frétta-
stofu Sjónvarpsins og er maklega
virtur fyrir það. Með því að blanda
sér í opinbera umræðu um eitt
mesta pólitíska deilumál þessa
þings á þann veg sem hann hefur
gert kemur hann aukheldur fram
sem eins konar þulur ríkisstjórn-
arinnar í málinu. Sennilega er það
í fyrsta skipti sem útvarpsstjóri
gerist með svo skýrum hætti þátt-
takandi í stjórnmáladeilum.
Ásakanir af því tagi sem ráð-
herra og útvarpsstjóri hafa borið
fram verða hvorki sannaðar né
afsannaðar. En til þess að auðvelda
málefnalega umræðu má að meina-
lausu ganga út frá því að sjónarmið
ritstjóra þessa blaðs endurspegli
hagsmuni útgefendanna í þessu
máli. Það sem skiptir sköpum er
gildi röksemdafærslunnar.
Guð láti gott á vita
Ef útvarpsstjóri vill vera sam-
kvæmur sjálfum sér hljóta sömu
lögmál að gilda um tengsl hans við
handhafa eigendavalds Ríkisút-
varpsins. Varla telur útvarpsstjóri
sig meiri mann en aðra að þessu
leyti þótt virtur sé vel.
En um hvað snýst röksemda-
færslan? Það er þetta:
Því var haldið fram í forystu-
greinum Fréttablaðsins að rétt-
lætanlegt væri að reka ríkisút-
varp og kosta það að mestum hluta
með skattpeningum til þess að við-
halda menningarlegri útvarps-
starfsemi sem markaðurinn leysti
ekki. Jafnframt var því haldið
fram að réttlæta mætti að slíkt
útvarp aflaði tekna að ákveðnu
marki með auglýsingasölu þó að
það gengi gegn meginreglum sam-
keppnismarkaðarins.
Útvarpsstjóri fullyrðir að þessi
afstaða lýsi fjárhagslegum hags-
munum eigenda Fréttablaðsins.
Ekki veit ég jafn gjörla og útvarps-
stjóri hvort svo er. En guð láti gott
á vita.
Hvers vegna ekki almennar
reglur um meðferð skatt-
peninga?
Annað sjónarmið sem sett hefur
verið fram í þessu blaði lýtur að
því að sömu reglur gildi um með-
ferð skattpeninga hjá væntanlegu
Ríkisútvarpi hf. og öðrum stofn-
unum sem fara með almannafé.
Þessu er ríkisstjórnin á móti og
útvarpsstjóri þylur sömu þulu.
Það má vel vera rétt að krafan
um að almennar reglur um með-
ferð almannafjár gildi um Ríkisút-
varpið hf., rétt eins og aðra opin-
bera aðila, þjóni hagsmunum
eigenda Fréttablaðsins. Algjör-
lega er ástæðulaust að andmæla
því. Það hefur einfaldlega ekki
þýðingu varðandi gildi röksemda-
færslunnar.
Spurningin er þessi: Þjónar
þessi krafa ekki fyrst og fremst
hagsmunum þeirra sem borga
brúsann? Hafa almennar reglur
um meðferð skattpeninga ekki
verið settar til þess að tryggja
sem best hagsmuni skattgreið-
enda? Hvað er bogið við það, ef
svo er, að hagsmunir fyrirtækja í
samkeppnisrekstri og skattgreið-
enda fari saman? Hvaða málefna-
legu rök standa til þess að gera
slíka mögulega sameiginlega
hagsmuni tortryggilega?
Sannarlega er það rétt hjá
útvarpsstjóra að mikilvægt getur
verið að átta sig á hagsmunum
sem geta verið fólgnir í hverju
máli sem til umfjöllunar er. En
ríkisstjórninni og útvarpsstjóra
hefur reynst erfitt að sýna fram á
með rökum hvers vegna svo mikið
kapp er lagt á að víkja frá almenn-
um reglum um meðferð skattpen-
inga þegar Ríkisútvarpið hf. tekur
til starfa. Hvaða hagsmunir liggja
þar að baki?
Ríkisstyrkt hlutafélög yfir-
leitt verst rekin
Útvarpsstjóri segir í grein sinni að
eina ástæðan til þess að stofna
hlutafélag um rekstur Ríkis-
útvarpsins sé sú að það rekstrar-
form tryggi betri nýtingu á skatt-
peningum almennings. Nú veit
útvarpsstjóri eins vel og hver
annar að hlutafélagaformið hefur
ekkert að segja varðandi rekstrar-
hagkvæmni fyrirtækja.
Tilgangur rekstrarformsins er
sá einn að auðvelda eiginfjáröflun
án þess að eigendur beri meiri
ábyrgð en nemur hlut þeirra. Tak-
mörkun ábyrgðar er með öðrum
orðum höfuðröksemd hlutafélaga-
formsins.
Mörg hlutafélög eru illa rekin
og nýta tekjur sínar illa. Almennt
er viðurkennt að verst séu þau
hlutafélög rekin sem að meira eða
minna leyti byggja afkomu sína á
ríkisstyrkjum. Og almennt er litið
svo á að ríkisstyrkir spilli heiðar-
legri samkeppni.
Að þessu athuguðu verður ekki
séð að sú fullyrðing útvarpsstjóra
standist að tryggja eigi betri nýt-
ingu fjármuna með hlutafélaga-
forminu einu. Og ekki verður því
trúað að hann eða ríkisstjórnin
vilji færa fram þau rök að mark-
miðið sé að spilla heiðarlegri sam-
keppni á markaði.
Verði frumvarpið um Ríkis-
útvarpið hf. að lögum mun almenn-
ingur eiga greiðari aðgang að
ýmsum upplýsingum varðandi
rekstur einkarekinna almennings-
hlutafélaga á þessu sviði en ríkis-
fyrirtækisins. Það segir nokkra
sögu.
Samkeppni tryggir hagkvæmni
Kunnara er en frá þurfi að segja
að samkeppni á grundvelli skil-
greindra og viðurkenndra leik-
reglna knýr á um hagkvæmni í
rekstri. Rekstrarformið er auka-
atriði í því samhengi.
Ef það sjónarmið á eitt að ráða
að tryggja þurfi hámarksnýtingu
á tekjum Ríkisútvarpsins eru tvær
aðrar leiðir líklegri til árangurs en
sú sem ríkisstjórnin hefur mælt
fyrir. Önnur er sú að afnema ríkis-
styrkinn. Hin er sú að bjóða rekst-
urinn út samkvæmt nákvæmlega
skilgreindu markmiði og kröfum.
Ef hagkvæmniskrafan er eina
raunverulega markmið ríkis-
stjórnarinnar á hún ekki aðrar
málefnalegar úrlausnir en þessar.
En þá væri eiginlegum ríkisrekstri
lokið.
Þeir sem horfa á þetta við-
fangsefni út frá sjónarmiðum rík-
isrekstrar gera eðlilega þá kröfu
að almennar reglur um meðferð
skattpeninga gildi á þessu sviði
sem öðrum; ella verða þeir ekki
trúverðugir.
Þeir sem horfa á viðfangsefnið
út frá sjónarmiðum samkeppnis-
markaðarins þurfa vissulega að
sætta sig við að sveigt sé hjá
ýmsum almennum samkeppnis-
leikreglum. En það hlýtur á hinn
bóginn að vera málefnaleg lág-
markskrafa af þeirra hálfu að
fylgt sé almennum reglum um
meðferð almannafjár og alþjóð-
legum skuldbindingum um ríkis-
styrki.
Hvers vegna að sprengja
upp eina sáttaflötinn?
Þannig virðist vera einn málefna-
legur flötur til þess að tengja
saman sjónarmið tveggja ólíkra
hugmyndaheima um rekstur af
þessu tagi. Þessi flötur snýst um
það grundvallaratriði að virða
almennar gildandi leikreglur um
meðferð skattpeninga. Ef sátta-
flöturinn er sprengdur í loft upp
er eins líklegt að allar forsendur
vanti fyrir framtíðarsátt um rekst-
ur útvarps á vegum ríkisins.
Ríkisstjórnin þarf enn að
útskýra hvers vegna hún vill fara
með þetta mál fram í því horfi að
líklegt sé að ósátt verði um málið
til langrar framtíðar. Þó að
útvarpsstjóri taki maklega öðrum
þulum fram hefur þula hans um
efnið ekki varpað ljósi á þann til-
gang eða þau rök sem að baki búa.
Og það hefur algjörlega mistekist
að sýna fram á ómálefnalega
hagsmunagæslu ritstjóra þessa
blaðs.
Samkeppni en ekki
rekstrarform tryggir hagkvæmni
UMRÆÐAN
RÍKISÚTVARPIÐ
ÞORSTEINN PÁLSSON
RITSTJÓRI
Það má vel vera rétt að krafan
um að almennar reglur um
meðferð almannafjár gildi
um Ríkisútvarpið hf. rétt eins
og aðra opinbera aðila þjóni
hagsmunum eigenda Frétta-
blaðsins. Algjörlega er ástæðu-
laust að andmæla því.Það
hefur einfaldlega ekki þýðingu
varðandi gildi röksemdafærsl-
unnar.
Vondir við Bush
Þetta er svo sem ekki stórt mál, en sýnir
ágætlega hvernig fréttaflutningurinn er
oft hér á landi af málefnum George Bush
forseta Bandaríkjanna. Bush heldur boð
sem opið er öllum börnum og gætir sér-
staklega jafnræðis á milli fjölskylduforma.
Hópar samkynhneigðra nýta sér boðið til
að koma skilaboðum á framfæri, meðal
annars með því að fulltrúar hópsins mæta
til leiks sérstaklega merktir og lekið er út
fréttum af því að fulltrúar þessa hóps
hyggist mæta í boðið. Og hver er þá frétt-
in sem sögð er af atburðinum? Jú, gefið er
í skyn að Bush hafi verið illa við heimsókn
samkynhneigðu paranna en ekki ýjað að
því að ef til vill hafi þessi barnaskemmtun
ekki verið rétti vettvangurinn til að senda
út pólitísk skilaboð.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
Langflottastir
Hvað um það, ég var ánægður með aug-
lýsingar okkar framsóknarmanna, glað-
legur hópur frambjóðenda með skýr og
afgerandi stefnumál. Góð kynning fyrir
kjósendur. Langflottustu auglýsingarn-
ar, hlutlægt séð! Auglýsingar frjálslyndra
voru einnig með skásta móti, svo og
fyrsta auglýsing Sjálfstæðisflokksins,
þ.e.a.s. útlitslega séð. Þó þótti mér held-
ur klént að sjá Vilhjálm, oddvita þeirra,
með hönd í vasa. Ég hef aldrei haft trú
á því að menn með hendur í vasa afreki
mikið fyrir kjósendur. Samfylkingin fékk
hins vegar falleinkunn, hörmulegar aug-
lýsingar í alla staði og Guð hjálpi þeim ef
þetta er það sem koma skal. Mest óttast
ég þó að sjá Svandísi frænku mína Svav-
arsdóttur, vinstri-græna, í bleika ramm-
anum á heilsíðu. Myndarleg kona en má
sín þó lítils við slíkum ósköpum.
Guðjón Ólafur Jónsson á hrifla.is
Leiguliðar
Meðal þess sem sagt hefur verið er að
erfðabreytt matvæli eigi að bjarga þriðja
heiminum frá hungri. En er sú raun-
in? Staðreyndin er sú að stórfyrirtæki á
borð við Monsanto hafa lítinn áhuga á
að bjarga þriðja heiminum. Þau sjá hins
vegar góðan bissness í því að halda utan
um erfðabreytt fræ, áburð og eiturefni
og taka yfir landbúnaðinn með þeim
hætti. Því að erfðabreytt framleiðsla fer
ekki saman við sjálfbæran landbúnað.
[...] Þar sem stórfyrirtækin hafa einkaleyfi
á erfðabreyttu fræjunum er ekki um það
að ræða að bændur geti tekið upp erfða-
breyttan landbúnað nema sem leiguliðar
stórfyrirtækjanna.
Katrín Jakobsdóttir á murinn.is
Engir eftirbátar
Þegar kemur að óhófsemi með tilliti til
magns eru Englendingar engir eftirbátar
okkar Íslendinga. Þar, líkt og hér heima,
má finna ofurölvi einstaklinga sem ráfa
um eða hafa lagst fyrir sökum ofmikillar
drykkju. Þessir einstaklingar eru hinsveg-
ar, líkt og hér heima, örfáir miðað við
þann hóp af gleðilegu fólki sem er að
skemmta sér. Staðreyndin er sú að hér
á landi er fjöldinn iðulega dæmdur út frá
þeim verstu.
Hannes R. Hannesson á deiglan.com
RÍKISÚTVARPIÐ Greinarhöfundur segir að almennt sé viðurkennt að verst séu þau
hlutafélög rekin sem að meira eða minna leyti byggja afkomu sína á ríkisstyrkjum, auk
þess sem þau spilli heiðarlegri samkeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA