Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 45
FIMMTUDAGUR 20. apríl 2006 SÍTRÓNU OG SALT MÁ NOTA TIL AÐ NÁ ÓDAUNINUM ÚR ÍSSKÁPNUM. Allir þekkja hið hvimleiða vandamál þegar daun- illur fnykur hertekur ísskápinn og jafnvel svæð- ið í kring. Ástandið getur stundum orðið það slæmt að ekki nema allra huguðustu fjölskyldumeðlimirnir þora nálægt skápnum. Kannski svolítið öfgafullt dæmi en langt frá því að vera óþekkt. Flestir eru þó snyrtilegir og þrífa ísskápinn reglulega. Stundum reynist ólyktin hins vegar ill viðureignar og reynast þá góð ráð dýr. Ein leiðin er einföld en getur verið afar áhrifamikil. Hún er að taka sítrónu og skera hana tvennt. Síðan skal helmingurinn af ávaxtakjötinu tekinn í burtu og fyllt upp í með salti. Hvorn helminginn af sítrónunni með saltinu má síðan setja í horn ísskápsins. Síðan er sítrónan látin liggja í dágóðan tíma og á þessi blanda sítrónu og salts að draga í sig helsta ódauninn úr ísskápnum. Burt með fýluna Smíðaþjónustan ehf. flutti ný- lega í stærra og betra húsnæði að Hyrjarhöfða 6. „Við erum aðallega í sérsmíði og þá eftir teikningum arkitekta eða annarra innanhússhönnuða,“ segir Guðsteinn Halldórsson spurður um viðfangsefni fyrirtækisins. Guðsteinn er annar tveggja stofn- enda fyrirtækisins sem starfrækt hefur verið frá 1997. Hinn er Kristján Þorsteinsson. Guðsteinn nefnir að þeir taki að sér „heildarpakka“ í hús þar sem þeir smíða allar innréttingar, bæði í nýjar íbúðir og eldri. Þó taki þeir lítið að sér vinnu fyrir húsfélög en meira fyrir einstaklinga og fyrir- tæki. „Það er alltaf gaman að sér- smíða hluti sem sjaldan eða aldrei hafa verið gerðir áður,“ segir Guð- steinn og bætir við: „En það er líka nauðsynlegt að hafa góðar teikn- ingar ef hlutirnir eru flóknir, svo að hvorki misskilningur né mistök eigi sér stað.“ Heimasíða Smíða- þjónustunnar er www.innretting. is og þar er hægt að skoða ýmis- legt sem eftir þá félaga liggur. Gaman að smíða nýja hluti 21.apríl hefst vorhreinsun í flestum sveitarfélögum höfuð- borgarsvæðisins. Næstu tvær vikur verða starfsmenn þeirra á ferðinni og taka garðúrgang við lóðamörk. Íbúar eru hvattir til þess að taka til hendinni í görðum sínum og nánasta umhverfi. Þar sem ólög- legt er að henda garðúrgangi í sorptunnur bjóða sveitarfélögin upp á þá þjónustu að taka garðúr- gang á lóðamörkum. Hann verður þó að vera snyrtilega frágenginn í lokuðum plastpokum og greinar skulu bundnar saman í knippi. Stærri einingum, eins og trjábol- um og slíku, bera íbúar sjálfir ábyrgð á að koma til endurvinnslu- stöðva Sorpu. Ekkert gjald er tekið af slíkum úrgangi svo fram- arlega sem ekki er komið með meira en tvo rúmmetra í einu. Garðúrgang er gott að flokka í eftirfarandi flokka: 1. Trjágreinar (efnið er kurlað og nýtt í moltugerð). 2. Gras (efnið er nýtt í moltu- gerð). 3. Annar garðúrgangur, s.s. blómaafskurður, illgresi, þökuaf- gangar eða þökuafskurður (efnið er ónýtanlegt). Vorhreinsun í höfuðborg Ólöglegt er að setja garðúrgang í sorp- tunnur. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Borðstofu- skápur teiknaður af Glámu/Kím. húsráð } Heilsunudd þegar þér hentar Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar M-CLASS nuddstóllinn áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp á meðfylgjandi fj arstýringu velur þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni. Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú vilt og þar sem þú vilt. M-CLASS nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfi r í huga. Við bjóðum þér að koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu 63 til að sannfærast. ECC Skúlagötu 63 Sími 511 1001 Opið í dag kl. 10 -16 BORÐ FYRIR TVO K R I N G L A N RÝMINGARSALA ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.