Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 64
20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR48
menning@frettabladid.is
! Kl. 20.00Graduale Nobili heldur tónleika
í Langholtskirkju. Á efnisskránni
eru íslensk og erlend Maríuverk.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
> Ekki missa af...
Verkum finnsku listakonunnar
Elinu Bortherus, Þórs Vigfús-
sonar og Rúríar í Gerðarsafni.
Leiðsögn verður um sýninguna
á sumardaginn fyrsta kl. 15.
Síðasta sýningarhelgi.
Fjölskyldudegi í Minjasafninu á
Akureyri. Fjölbreytt dagskrá í dag
- eitthvað fyrir alla aldurshópa.
Djasshátíð í Garðabæ. Fremstu
djasslistamenn þjóðarinnar
spila fjölbreytta dagskrá í sal
Tónlistarskóla Garðabæjar í
Kirkjulundi 11. Hátíðin stendur
fram á laugardag.
Í tilefni af viku bókarinnar mættu þau Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og
Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, í bókabúð
Máls og menningar í gærmorgun til þess að
innleysa þjóðargjöf Glitnis og Félags íslenskra
bókaútgefenda. Þjóðargjöf þessi datt inn um lúgur
landsmanna í gær í formi ávísunar sem lesendur
geta notað til bókakaupa en hver sá sem kaupir
bækur útgefnar á Íslandi fyrir andvirði 3.000 króna
eða meira getur nýtt sér ávísunina sem innborgun.
Þorgerður Katrín og Bjarni voru kampakát í
gærmorgun en í verslunina var einnig mætt Ronja
nokkur ræningjadóttir sem reyndi ítrekað að hafa
áhrif á bókakaup þeirra og annarra gesta. Nýlega
kom út bók um ævintýri Ronju og því fannst henni
viðeigandi að fólk fjárfesti í henni en sannfæring-
arkraftur hennar mun vera töluverður og er sagt að
menntamálaráðherra hafi farið út með fangið fullt
af Ronjubókum.
Þeim sem vilja nýta sér þessa kjarabót er bent
á að hægt er að innleysa ávísunina hjá bóksölum,
í bókaverslunum og í völdum stórmörkuðum til
3. maí.
Kjarakaup í bókabúðum
BJARNI KVITTAR, RÁÐHERRANN BÍÐUR Hagsýnir les-
endur nýta sér þjóðargjöfina.FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI
Áslaug Jónsdóttir hlaut
barnabókaverðlaun Mennta-
ráðs Reykjavíkurborgar í
gær fyrir bókina Gott kvöld.
Áslaug er rithöfundur og mynd-
skreytir en hún hefur gefið út
töluvert af barnabókum, „Ég er
menntaður myndlýsir og graf-
ískur hönnuður í Danmörku og
kom hingað heim með von um
vinnu. Ég fór með sýnishorn til
Máls og menningar fyrir ein-
hverjum hundrað árum síðan og
þeim leist vel á verkin,“ segir
hún og útskýrir að fyrsta bókin
hafi upphaflega verið textalaus
en hún hafi verið beðin um að
skrifa „í eyðurnar“. Sem Áslaug
og gerði en fyrsta barnabókin
hennar, Gullfjöðrin, kom síðan út
árið 1989.
Í bókinni Gott kvöld segir frá
afdrifaríku kvöldi í lífi ungs
drengs sem skilinn er eftir heima
þegar pabbi skreppur frá að
sækja mömmu en við sögu koma
kunnuglegar furðuverur eins og
hungurvofan, tímaþjófurinn og
hræðslupúkinn.
Nú fæst Áslaug bæði við skrit-
ir og skreytingar ásamt því að
brjóta um bækur enda er hún
titluð bókverkakona í síma-
skránni. Hún hefur gefið út eða
komið að útgáfu á annan tug
verka. Hún segir að það sé eng-
inn eiginlegur
samnefnari með
barnabókunum
sínum og hug-
myndirnar komi
úr ýmsum áttum.
„Ævintýrið er allt-
af jafn heillandi.
Útkoman er alltaf
blanda af einhverju
sem maður hugsaði
sjálfur sem barn og
mótað af umgengni
við börn.“
Áslaug las mikið
sem barn og er viss
um að það hafi haft drjúg
áhrif og hún segist enn vera hrif-
in af Múmínálfunum. „Á hverju
þroskastigi eru einhverjar bækur
sem maður les í tætlur og svo
eru bækur sem fylgja manni
gegnum lífið, persónur sem allir
geta talað um eins og þær séu
bræður manns, systur og vinir.
Ég gríp enn í
Múmínálfana -
það eru bækur
sem ekki hafa
glatað neinu,“
segir Áslaug og
nefnir líka að
að bækur
Astridar Lind-
gren og þjóðsögurnar hafi verið í
uppáhaldi hennar.
Áslaug er með fleiri bækur í
smíðum og ungir lesendur geta
glaðst því með haustinu er til
dæmis að vænta fleiri ævintýra
um Litla skrímslið sem Áslaug
semur og teiknar ásamt Rakel
Helmsdal og Kalle Güettler.
Í gær voru einnig veitt verð-
laun fyrir þýðingu barnabóka og
hlaut Sigrún Árnadóttir þau að
þessu sinni fyrir þýðingu á sög-
unni Appelsínustelpan eftir
norska höfundinn Jostein
Gaarder.
kristrun@frettabladid.is
Ætíð heilla ævintýrin
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR Verðlaunuð bókverkakona.
VERÐLAUNABÓKIN
Ungur maður
aleinn heima.
[METSÖLULISTI]
HEILDARLISTI
1 DRAUMALANDIÐANDRI SNÆR MAGNASON
2 FLUGDREKAHLAUPARINN - KILJAKHALED HOSSEINI
3 MUNKURINN SEM SELDI...ROBIN SHARMAN
4 VÍSINDABÓKINMÁL OG MENNING
5 TÍMI NORNARINNAR - KILJAÁRNI ÞÓRARINSSON
6 ÍSPRINSESSANCAMILLA LÄCKBERG
7 109 JAPANSKAR SUDOKU - BÓK 1GIDEON GREENSPAN
8 HROKI OG HLEYPIDÓMARJANE AUSTEN
9 GÆFUSPOR - GILDIN Í LÍFINUGUNNAR HERSVEINN
10 FERMIÐ OKKUR
HUGLEIKUR DAGSSON
Franskar konur fara aldrei í megr-
un og þola ekki líkamsrækt. Þær
borða osta, rjómasósur, bakkelsi og
súkkulaði og drekka rauðvín en
virðast þó flestar vera í kjörþyngd.
Nú hefur JPV útgáfan gefið út í
íslenskri þýðingu bókina Franskar
konur fitna ekki eftir Mir-
eille Guiliano sem situr nú
í fyrsta sæti á metsölu-
lista New York Times. Í
bókinni segir höfundur
frá matarleyndarmáli
Frakka, frönsku þver-
sögninni sem hefur
ruglað næringarsér-
fræðinga í ríminu í
fleiri áratugi. Mireille,
sem er frönsk og
stjórnarformaður
Veuve Clicquot Inc.,
fór sem skiptinemi
til Bandaríkjanna
þegar hún var ungl-
ingur og kom feit til baka. Til
allrar hamingju kom franski heim-
ilislæknirinn henni til bjargar.
Hann fræddi hana um sígildar regl-
ur í franskri matargerðarlist og gaf
henni góð ráð sem heimakonur hafa
í áranna rás nýtt sér og hjálpaði
henni að grenna sig með nýjum
skilningi á mat, drykk og lífinu í
heild. Lausn hennar er að lifa ekki
við eilífa sektarkennd og megrun-
arkúra heldur að njóta þess að
borða góðan og vel saman settan
mat, þrisvar sinnum á dag. Hún
kemst að því að matur er ástríða hjá
Frökkum en ekki nauðsyn, að mat-
málsstundir séu heilagur tími til að
njóta góðs matar ásamt fjölskyldu
og vinum, en alls ekki fyrir framan
sjónvarpið eða á hlaupum, og mikil-
vægi þess að elda mat úr góðum
hráefnum í stað þess að falla fyrir
skyndibitamenningunni. Bókin
er skemmtileg
aflestrar og Mireille
lýsir lífsspeki sinni
með ljúfum minning-
um: þegar hún smakk-
aði kampavín í fyrsta
sinn (sex ára gömul),
fór í sveppa- og berja-
mó og nánast andlegu
stefnumóti við ostrur,
svo fátt eitt sé nefnt.
Hún segir okkur einnig
sögu annarra kvenna sem
hafa uppgötvað dásemdir
þess að fara að dæmi
franskra kvenna, borða af
skynsemi og meiri nautn. Mireille
hefur alla tíð síðan notið lífsins og
látið eftir sér án þess að blása út,
leyft sér að borða það sem hana
hefur langað í án þess að fitna og
grennast á víxl og borðað þrjár mál-
tíðir á dag. Franskar konur fitna
ekki er skynsamleg og skemmtileg
bók með jákvæðri og heilbrigðri
aðferð við að halda sér grönnum og
heilbrigðum þrátt fyrir að njóta
brauðs, osta, rauðvíns og og
súkkulaðis. - amb
Franska matarleynd-
armálið komið út
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR BÆKUR
1 SÁLMABÓKÝMSIR HÖFUNDAR
2 PERLUR Í SKÁLDSKAP LAXNESSHALLDÓR LAXNESS
3 LJÓÐASAFN TÓMASAR G.TÓMAS GUÐMUNDSSON
4 GOÐHEIMAR BERNSKUNNAREINAR MÁR GUÐMUNDSSON
5 PASSÍUSÁLMARHALLGRÍMUR PÉTURSSON
6 BREKKUKOTSANNÁLLHALLDÓR LAXNESS
7 DÁIÐ ER ALLT ÁN DRAUMA OG...HALLDÓR LAXNESS
8 ÞRIÐJA TÁKNIÐYRSA SIGURÐARDÓTTIR
9 ÓMAR FRÁ HÖRPU DAVÍÐS...SIGURBJÖRN EINARSSON RITST.
10 SKUGGI VINDSINSCARLOZ RUIZ ZAFÓN
Listarnir eru gerðir út frá sölu dagana 05.04.06
- 11.04.06 í Pennanum Eymundsson og Bóka-
búð Máls og menningar.
Margrét Bóas-
dóttir söngkona
flytur biblíuljóð
eftir tékkneska
tónskáldið Ant-
onin Dvorák á
dagskrá Kirkju-
listahátíðar í Sel-
tjarnarneskirkju
í dag ásamt
Hrefnu Eggerts-
dóttur píanóleik-
ara. Frumfluttir
verða textar
Kristjáns Vals Ingólfssonar en
þeir eiga uppruna sinn í Davíðs-
sálmum Biblíunnar og spanna til-
finningar frá sárustu örvæntingu
til innilegustu gleði.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.
Biblíuljóð
MARGRÉT BÓAS-
DÓTTIR FLYTUR
BIBLÍULJÓÐ
DVORÁK Hátíðleiki
á Seltjarnarnesi.
Birta er komin út!
MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS
Klippt og skorið í Hlíðunum
Pastamáltíð með humri
Húmorinn í Sigtinu
Öflugasta sjónvarpsdagskráin