Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 82
20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR66
KÖRFUBOLTI Körfuknattleiksdeild
KR leitar enn logandi ljósi að arf-
taka Herberts Arnarsonar í þjálf-
arastólinn og ku hringurinn vera
farinn að þrengjast. Nafn Bene-
dikts Guðmundssonar, þjálfara
Fjölnis, hefur verið nefnt í því
sambandi og sögusagnirnar fóru á
flug síðasta þriðjudagskvöld
þegar Benedikt var staddur í KR-
heimilinu ásamt Böðvari Guðjóns-
syni, formanni körfuknattleiks-
deildar KR.
„Benni er gamall og góður KR-
ingur og hefur alltaf gaman að því
að kíkja í kaffi vestur í bæ. Við
fengum okkur kaffi saman, það er
ekkert leyndarmál en þetta var
alls ekki formlegur fundur eða
neitt slíkt,“ sagði Böðvar um fund
þeirra í KR-heimilinu en er hann á
höttunum eftir honum? „Benedikt
er mjög hæfur þjálfari og hann er
þar að auki uppalinn KR-ingur.
Auðvitað er hann inni í myndinni
hjá okkur.“
Bððvar sagði erlendan þjálfara
einnig koma til greina en hann
hefði samt meiri áhuga á að fá
góðan innlendan þjálfara. KR
hefur aðeins átt einn formlegan
fund með íslenskum þjálfara en sá
þjálfari gaf málið frá sér nokkrum
dögum síðar. Böðvar vildi ekki
gefa upp hver sá þjálfari væri.
Benedikt hafði ekkert um málið
að segja þegar eftir því var leitað.
- hbg
Línur að skýrast í þjálfaraleit körfuboltaliðs KR:
KR staðfestir áhuga sinn á
Benedikt Guðmundssyni
BENEDIKT GUÐMUNDSSON Þjálfaði KR fyrir
áratug og hans gamla félag vill fá hann
heim á nýjan leik.
BÖÐVAR GUÐJÓNSSON Segir ekkert
óeðlilegt við óformlegt kaffisamsæti sitt og
Benedikts. Hann fer samt ekki leynt með
áhuga sinn á Benedikt.
FORMÚLA Finnski ökuþórinn Kimi
Raikkönen hefur ekki samið við
Ferrari, eins og sumir fjölmiðlar
hafa greint frá, heldur er allt eins
líklegt að hann verði áfram í her-
búðum McLaren á næsta ári. Þetta
segir Nobert Haug, framkvæmda-
stjóri McLaren. „Staða Raikkön-
ens er sú sama. Við erum í viðræð-
um við hann og umboðsmenn hans
hafa staðfest að hann er ekki búinn
að semja við Ferrari,“ sagði Haug
og bætti því við að hann tryði því
ekki að Raikkönen myndi semja
við ítalska liðið án vitundar for-
ráðamanna McLaren.
Haug stóðst ekki mátið að koma
höggi á Ferrari og benti á að liðinu
hefði vegnað afar illa í síðustu
keppnum, eða allt frá því að Raikk-
önen var orðaður við liðið á ný
fyrir nokkrum vikum. „Annars
hefur hann svo oft verið sagður á
leið til Ferrari að það væri hægt
að búa til jólabók úr þeim frétt-
um.“ - vig
Kimi Raikkönen:
Ennþá óvissa
um framhaldið
GOLF Forráðamenn Ryder-bikars-
ins munu að öllum líkindum breyta
fyrirkomulagi keppninnar þannig
að hún verði spiluð á fjórum
dögum í stað þriggja. Í Ryder-bik-
arnum mætast úrvalslið Banda-
ríkjanna og úrvalslið Evrópu
annað hvert ár en mótið fer fram
22.-24. september á K-klúbbnum á
Írlandi.
„Við erum að skoða að breyta
keppninni til að gera hana enn
meira spennandi. Auk þess gætum
við þurft að færa hana þar sem
veður og skyggni hamla keppninni
á tíðum, sér í lagi þegar keppt er í
Evrópu,“ sagði Sandy Jones, sem
er í skipulagsnefnd mótsins.
Mótið hefur iðulega aðeins
tekið þrjá daga en ekki fjóra eins
og flest golfmót. Með því að byrja
keppnina einum degi fyrr vonast
skipuleggjendur til að dreifa álag-
inu á keppendur en einnig væri
möguleiki á að halda mótið fyrr en
nú er gert í framtíðinni. - hþh
Ryder bikarinn í golfi:
Fyrirkomulagi
mótsins breytt?
IAN WOOSNAM Verður fyrirliði Evrópuliðs-
ins í ár. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Það gengur illa hjá
þýska úrvalsdeildarfélaginu
Gummersbach þessa dagana og
steininn tók úr þegar liðið tapaði
gegn Grosswallstadt á þriðjudag
með tólf marka mun, 32-20. Um
leið fauk nánast öll von félagsins
um meistaratitilinn en í byrjun
mánaðarins varð liðið einnig fyrir
áfalli er það tapaði óvænt í undan-
úrslitum bikarkeppninnar fyrir
Kronau/Östringen.
Í kjölfarið er framtíð þjálfar-
ans Velimir Klajic í óvissu en hann
er ráðinn fram á sumar 2007 þegar
Alfreð Gíslason á að taka við lið-
inu. Nú er spurning hvort félagið
reyni að hóa fyrr í Alfreð en það
er ekki bara staða þjálfarans sem
er í óvissu því óttast er að stuðn-
ingsaðilar hverfi á braut takist
félaginu ekki að rétta úr kútnum.
- hbg
Krísa hjá Gummersbach:
Kallar félagið á
Alfreð?
HANDBOLTI Lemgo og Göppingen
hituðu upp fyrir úrslitaleikinn í
EHF-keppninni í gær og ef eitt-
hvað er að marka þann leik verður
Lemgo Evrópumeistari án vand-
ræða því liðið rúllaði yfir Garcia
Padron og félaga í Göppingen en
Padron var sá eini með meðvitund
hjá liðinu í gær. Fyrri úrslitaleik-
ur liðanna fer fram um helgina en
sá síðari viku síðar.
Lemgo náði samt ekki að
minnka muninn í töflunni á Magde-
burg því Skylmingaþrælarnir
lögðu Gylfa Gylfason og félaga í
Wilhelmshavener með tveim
mörkum. Magdeburg heldur því
fjögurra stiga forskoti á Lemgo í
fjórða sæti deildarinnar en Lemgo
mjög öruggt í fimma sætinu. - hbg
Þýski handboltinn:
Lemgo lagði
Göppingen
LOGI GEIRSSON Skoraði þrjú mörk í gær
fyrir Lemgo rétt eins og Ásgeir Örn Hall-
grímsson.
Meistaradeild Evrópu:
ARSENAL-VILLARREAL 1-0
1-0 Kolo Toure (41.).
Þetta var fyrri leikur liðanna í undanúrslitum.
Þýski handboltinn:
LEMGO-GÖPPINGEN 32-23
Logi Geirsson skoraði 3/2 mörk fyrir Lemgo sem
og Ásgeir Örn Hallgrísson. Jaliesky Garcia Padron
var markahæstur hjá Göppingen með 7 mörk.
WILHELMSHAVENER-MAGDEBURG 30-32
Gylfi Gylfason skoraði 5 mörk fyrir Wilhelms-
havener. Sigfús Sigurðsson komst ekki á blað hjá
Magdeburg en Arnór Atlason skoraði tvö mörk.
LUBBECKE-KIEL 31-40
Þórir Ólafsson skoraði 6 mörk fyrir Lubbecke og
var markahæstur hjá liðinu.
Enska úrvalsdeildin:
BIRMINGHAM-BLACKBURN 2-1
1-0 Nicky Butt (62.), 1-1 Robbie Savage (78.), 2-1
Mikael Forssell (87.).
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Arsenal hafði leikinn í
hendi sér frá fyrstu mínútu þegar
þeir tóku öll völd á vellinum. Með
léttleikandi spili héldu þeir bolt-
anum vel innan liðsins og hvað
eftir annað sköpuðu þeir hættur
við mark Villarreal með Thierry
Henry fremstan í flokki.
Sókn Villarreal komst lítt áfram
gegn ógnarsterkri Arsenal vörn-
inni sem hélt Juan Roman Riqu-
elme vel í skefjum en hann hefur
verið hvað atkvæðamestur í
spænska liðinu í Meistaradeild-
inni. Hann skapaði einu hættur
Villarreal með tveimur auka-
spyrnum en þrátt fyrir að vera
þéttingsfastar rötuðu þær beint á
Jens Lehmann.
Aðeins vantaði herslumuninn
hjá Arsenal til að opna marka-
reikninginn en Henry hélt að hann
hefði komið Skyttunum yfir eftir
fimmtán mínútuna leik en mark
hans ranglega dæmt af vegna
rangstöðu. Markið lá í loftinu og
eftir að íkorni nokkur hafði stolið
senunni í nokkrar mínútur náðu
Arsenal loksins forystunni eftir að
hafa sett vörn Villarreal undir
mikla pressu allan hálfleikinn.
Eftir hornspyrnu barst boltinn
út á Henry sem laumaði honum á
Alexander Hleb sem hafði stungið
sér á bak við Villarreal vörnina.
Hvít-Rússinn renndi boltanum
fyrir markið á Kolo Toure sem
stýrði boltanum yfir marklínuna
og allt ætlaði um koll að keyra á
Highbury.
Úrúgvæinn Diego Forlan sá
ekki til sólar í leiknum, enda rigndi
nánast allan leikinn, og fór ekkert
fyrir honum í framlínu Villareal.
Spænska liðinu gekk illa að finna
glufur á þéttu liði Arsenal sem
varðist vel úti um allan völl og
pressuðu andstæðinga sína ótt og
títt til að missa boltann.
Stórskotahríð Skyttanna hélt
áfram í síðari hálfleik en þeim til
óhapps gengu rangstöðugildrur
Villarreal fullkomlega upp. Hvað
eftir annað lét Arsenal grípa sig í
landhelgi en sóknir þeirra héldu
áfram að valda spænsku vörninni
höfuðverk.
Þegar líða tók á leikinn róaðist
hann niður til muna en bæði lið
fengu færi til að bæta við marki í
leikinn. Riquelme skallaði yfir úr
fínu færi en Henry hélt áfram að
skapa hættur við spænska mark-
ið. Það náði Arsenal þó ekki að
nýta sér og leiknum lauk því með
1-0 sigri heimamanna. Þeir kvöddu
Highbury með stæl en Evrópu-
stundir liðsins á vellinum hafa
reyndar ekki verið til þeim til
framdráttar en liðið hefur aldrei
komist lengra í Meistaradeildinni
en í ár. hjalti@frettabladid.is
Arsenal í bílstjórasætinu
Arsenal er í góðri stöðu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir sigur gegn
Villarreal í fyrri leik liðanna. Varnarmaðurinn Kolo Toure skoraði eina markið í
síðasta Evrópuleiknum á Highbury en Arsenal flytur á nýjan völl eftir tímabilið.
CESC FABREGAS Var illviðráðanlegur á
miðju Arsenal. Hér gerir Alessio Tacchinardi
sitt besta til að stöðva Spánverjann unga.
NORDICPHOTOS/AFP
FÖGNUÐUR Leikmenn og stuðningsmenn Arsenal fögnuðu marki Kolo Toure vel og inni-
lega í gærkvöldi. Toure gaf tóninn í leik sem var eign Arsenal frá upphafi til enda.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES