Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 37
 Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.39 13.27 21.17 Akureyri 5.15 13.11 21.10 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 20. apríl, 110. dagur ársins 2006. Hjónin Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson ritstýra tímaritinu Veggfóðri í sameiningu. Þar sem þau vinna saman ákváðu þau að koma sér upp vinnuaðstöðu inni á heimilinu. Halla Bára og Gunnar eru mjög samhent í öllu sem þau gera og hafa unnið saman heima hjá sér í meira en fimm ár. „Við byrj- uðum með Veggfóður í fyrra en þar áður stofnuðum við og vorum með tímaritið Lifun sem við unnum líka heima,“ segir Halla Bára. Hjónin eru með sérstakt vinnuherbergi þar sem þau hafa komið sér vel fyrir. „Pláss- ið er ekkert rosalegt þar sem herbergið er hluti af heimilinu, en það dugir okkur vel og við höfum reynt að hafa útlit og yfirbragð þess heimilislegt og notalegt.“ Halla Bára segir að þeim hjónum finnist mjög gott að geta unnið heima. „Við höfum kosið það frekar en að vera með aðstöðu einhvers staðar úti í bæ. Auðvitað fylgja því bæði kostir og gallar að vinna heima en að okkar mati eru kostirnir mun fleiri. Í skap- andi starfi koma hugmyndirnar á hvaða tíma sólarhringsins sem er og þess vegna er gott að vera með vinnuaðstöðu heima.“ Halla Bára og Gunnar eiga mjög gott með að vinna saman. „Í vinnuherberginu sitjum við saman við eitt borð því við vinn- um allar hugmyndir saman og þó að Gunnar taki til dæmis allar ljósmyndir vinn ég mjög náið með honum í því. Við erum saman í allri vinnu við blaðið frá upphafi til enda sem er mjög óvenjulegt því að á flestum blöðum er hver í sínu.“ Hjónin verða þó ekki mikið lengur með Veggfóður því þau eru að flytja til Mílanó í haust þar sem Halla Bára ætlar að fara í mastersnám í innanhússhönnun. „Við erum búin að lifa og hrærast í öllu sem snýr að heimili og hönnun í mörg ár og mig langaði til þess fara aðeins lengra með það. Núna erum við að vinna að síðasta blaðinu okkar af Veggfóðri sem kemur út 3. maí og svo förum við að undirbúa flutninginn til Ítalíu.“ emilia@frettabladid.is Búa og vinna heima Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson búa og vinna saman. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LITIR OG AFTUR LITIR Bindistískan í sumar er litrík og frjálsleg en einnig karlmannleg. TÍSKA 3 Sumardagurinn fyrsti er í dag. Heilsuhraustir ættu því að fagna og geta notið þess að rækta lík- ama og sál úti í góða veðrinu. Á www.itr.is og www.ferdalangur. is má finna dagskrá sumardags- ins fyrsta. Ýmsir atburðir höfða til heilsugarpa. Sumardagurinn fyrsti er í dag. Tískudrottningar og kóngar draga upp sumarvörurnar, setja á sig stór og breið sólgleraugu, skreyta sig með litríkum hálsfestum, skella sér í hnébuxur og sýna þannig öðrum hvað sumartískan snýst um. Sumardagurinn fyrsti er í dag. Heim- ilisbúar eru farnir að taka eftir ryki og drullu sem sést nú vel eftir að daginn tók að lengja. Þá er ekki úr vegi að hreinsa burt vetrarrykið svo að sumarrykið komist að. ALLT HITT [TÍSKA HEIMILI HEILSA] Foreldrar fræða aðra foreldra á opnum fundi Krabbameinsfélags Íslands. Krabbameinsfélagið verður með opinn fund fyrir foreldra mánudaginn 24. apríl klukkan 20.00 í húsi félagsins að Skógarhlíð 8. Á fundinum fræða foreldrar aðra foreldra um mikilvægi þess að börnin gleymist ekki þegar foreldrar þeirra greinast með krabbamein. Oft verða börnin afskipt þar sem foreldrarnir hafa nóg annað að hugsa um en þau verða að fá að fylgjast með framvindu mála þar sem krabbamein foreldra getur vakið mikinn ótta og óöryggi hjá þeim. Eva Yngvadóttir, Anna Ingólfsdóttir og Margrét Friðriksdóttir verða með framsöguerindi á fundinum, en þær hafa allar upplifað það að makar þeirra greindust með krabbamein. Að framsöguerindunum loknum verða umræður og allir sem tengjast málefninu eru hvattir til þess að mæta á fundinn. Börn og krabbamein foreldra Mikilvægt er að börn fái fulla athygli foreldra þó að annað þeirra greinist með krabbamein. NORDICPHOTOS/ GETTY IMAGES BURT MEÐ AF- KLIPPUR OG RUSL ÚR GARÐINUM Steinunn Valdís borgarstjóri tek- ur til í garðinum sínum í tilefni af hreinsunarátaki höfuðborgar- svæðisins. HEIMILI 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.