Fréttablaðið - 20.04.2006, Qupperneq 12
12 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
NEYTENDAMÁL Jóhann Walderhaug,
fyrrverandi trésmiður og ellilíf-
eyrisþegi, hugðist ásamt eigin-
konu sinni fara til Spánar á vegum
Sumarferða í febrúar síðastliðn-
um. Hjónin fóru ekki vegna þess
að læknir Jóhanns réði honum frá
því að ferðast vegna hjartasjúk-
dóms.
Jóhann taldi sig vel tryggðan
því hann greiddi ferðina með VISA
gullkorti sem inniheldur forfalla-
tryggingu, auk þess að greiða for-
fallagjald hjá Sumarferðum eftir
að honum var ráðlagt að gera svo.
Vegna þeirrar tryggingar leitaði
hann fyrst til Sumarferða en var
vísað til Tryggingamiðstöðvarinn-
ar þar sem hann hafði greitt ferð-
ina með VISA gullkorti og sagt, að
tryggingafélagið sæi um uppgjör
vegna endurgreiðslu til korthafa
VISA. TM hafnaði bótaskyldu með
þeim rökum að veikindi Jóhanns
hafi verið þekkt þegar miðinn var
keyptur. Jóhann hafnar því alfarið
enda hafi hann farið í rannsókn
eftir að ferðin var greidd.
Eftir að hvorki Sumarferðir né
TM vildu endurgreiða ferðina réð
hann Lögmenn Höfðabakka til að
sækja málið fyrir sig sem skilaði
fljótlega þeim árangri að hann
fékk greiddar frá Sumarferðum
166.000 krónur af þeim 215.600
krónum sem ferðin kostaði. Hann
hafði því tapað upphæð sem nemur
hálfum ellilaunum hans á mánuði.
Jóhann komst líka að því að litlu
skiptir að kaupa tvær tryggingar
og spyr hvort fólk þekki réttindi
sín í tilfellum sem þessum.
Hjálmar Sigurþórsson, deildar-
stjóri tjónadeildar TM, segir að
forfallatrygging frá ferðasala
ógildi tryggingu VISA og
Mastercard undantekningarlaust
og það eigi að vera öllum sem selja
slíkar tryggingar ljóst. Sérstak-
lega þar sem TM býður öllum sem
selja tryggingar námskeið fyrir
starfsfólk.
Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Sumarferða, segir
þetta einfaldlega rangt. TM viti að
forfallagjald Sumarferða sé til að
greiða sjálfsábyrgð viðskiptavin-
arins vegna forfallatryggingar
greiðslukortsins. Forfallatrygging
Sumarferða greiði ferðina sé hún
borguð á annan hátt en með
greiðslukorti sem innheldur for-
fallatryggingu. Helgi segir að
Sumarferðir hafi greitt Jóhanni
vegna þess að hann var góður við-
skiptavinur. Þeim hafi þó ekki
borið nein skylda til þess.
svavar@frettabladid.is
Tvítryggður
og fær hluta
Ellilífeyrisþegi fékk aðeins hluta af ferð til Spánar
endurgreidda þótt hann væri tvítryggður. Hann
tapaði hálfum ellilaunum sínum. Tryggingafélagið
og ferðaskrifstofan vísa hvor á aðra.
JÓHANN WALDERHAUG Var ráðlagt að
kaupa auka forfallatryggingu hjá ferðaskrif-
stofunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
BRETLAND Nokkrir helstu líffæra-
flutningalæknar Bretlands hafa
ásakað kínversk yfirvöld um að
selja líffæri úr föngum sem tekn-
ir hafa verið af lífi, samkvæmt
fréttasíðu breska ríkisútvarps-
ins, BBC. Bresku líffæraflutn-
ingasamtökin fordæma þessa
iðkun og segja hana brot á mann-
réttindum eins og kom fram í
yfirlýsingu sem samtökin sendu
frá sér í gær.
Í síðustu viku neituðu kín-
versk yfirvöld opinberlega ásök-
unum um að selja líffæri úr föng-
um, og í mars tilkynntu Kínverjar
að sala á líffærum yrði bönnuð í
júlí og að skriflegt leyfi yrði að
vera fyrir hendi frá líffæragjaf-
anum. Hingað til hafa yfirvöld
þar í landi lítt fylgst með líffæra-
flutningum og sölu á líffærum.
Bresku samtökin segja margt
benda til þess að líffæri þúsunda
fanga sem teknir hafa verið af
lífi í Kína hafi verið fjarlægð til
líffæraflutninga án samþykkis
fanganna eða ættingja þeirra.
Prófessor Stephen Wigmore,
formaður samtakanna, sagði
BBC að sá skammi tími sem það
tekur að finna hæfan líffæra-
gjafa fyrir líffæraþega bendi til
þess að fangarnir séu valdir sér-
staklega til aftöku, eftir því
hvaða líffæri vantar í hvert sinn.
Sífellt fleiri vestrænir sjúkling-
ar komi til Kína til þess að fá líf-
færi. - smk
Breskir læknar ásaka kínversk yfirvöld um brot á mannnréttindum:
Segja líffæri úr föngum seld
LÍFFÆRAFLUTNINGUR Breskir læknar ásaka
Kínverja um að selja líffæri úr föngum sem
teknir hafa verið af lífi. NORDICPHOTOS/AFP
SANDSTORMUR Verkamenn þrifu glerþakið
á heimsviðskiptamiöstöð Kína í Peking í
gær, eftir að sandstormur þakti gluggana
með þunnu lagi af gulum sandi á þriðju-
dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JAPAN, AP Spennan milli Japans og
Suður-Kóreu fór stigvaxandi í
gær þegar Japanar sendu tvö
rannsóknarskip til eyjaklasa í
Japanshafi sem löndin tvö gera
bæði tilkall til. Japanar ætla sér
að kanna sjóinn umhverfis smá-
eyjarnar, en skipin komust ekki
alla leið, því Suður-Kóreumenn
sendu fjölmarga litla varðbáta á
móti þeim sem hindruðu för skip-
anna.
Suður-Kórea hefur bannað
Japan að rannsaka hólmana en
Japanar neita að hlíta því. Suður-
Kóreumenn hafa nýverið gert
svipaða rannsókn á svæðinu, og
telja japönsk yfirvöld þá rannsókn
hafa verið gerða í því skyni að
breyta nafni Japanshafs í Austur-
haf. Suður-Kóreumenn segja það
vera af og frá. - smk
Stigvaxandi spenna milli Japans og Suður-Kóreu:
Barist um smáeyjar
SKIP STÖÐVUÐ Japanar og Suður-Kór-
eumenn deila nú harðan um yfirráð yfir
smáeyjaklasa í Japanshafi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Lítið sveitafangelsi
í Georgíu í Bandaríkjunum hefur
samþykkt að endurgreiða reikn-
inga fyrir „fæði og gistingu“ sem
það sendi til fanga sem sátu inni
meðan þeir biðu þess að réttar-
höld hæfust í máli þeirra.
Endurgreiðsla reikninganna er
liður í samkomulagi um að fella
niður dómsmál á hendur fangels-
inu, sem mun ekki hafa haft heim-
ild í lögum til þess að krefjst þess
að fangar greiddu fyrir fæði og
gistingu. Fangelsið endurgreiðir
jafnvirði tveggja milljarða
íslenskra króna til fanga sem gistu
þar á árunum 2000 til 2004. - gb
Bandarískt sveitafangelsi:
Fangar greiddu
fyrir gistingu
SÓLARSTRÖND Jóhann Walderhaug hugðist ferðast til Spánar ásamt konu sinni í febrúar.
Hann varð að hætta við ferðina samkvæmt læknisráði.
BANDARÍKIN, AP Svíinn Bo M. Eriks-
son hefur lýst sig saklausan af
ákæru um að hafa ekið stolnum 77
milljón króna Ferrari Enzo á ofsa-
hraða eftir Kaliforníustrandlengj-
unni í Bandaríkjunum í febrúar,
með þeim afleiðingum að bíllinn
lenti á staur og er ónýtur eftir.
Lögreglan telur að bílnum hafi
verið ekið á 260 kílómetra hraða á
klukkustund þegar slysið varð, en
Eriksson slapp ómeiddur, fyrir
utan sprungna vör.
Eriksson kvaðst hafa verið far-
þegi í bílnum en lífsýni á loftpúða
benda til þess að hann sé að segja
ósatt. Hann á yfir höfði sér allt að
14 ára fangelsi. - smk
Svíi ákærður í Kaliforníu:
Ofsaakstur á
stolnum Ferrari