Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 22
20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR22
hagur heimilanna
Rekstrarkostnaður bifreiða
hefur hækkað um 16,44 pró-
sent síðan í janúar á þessu
ári. Munar þar mest um
hækkanir á eldsneytisverði
síðustu daga.
Verð á díselolíu í Evrópu er hæst á
Íslandi og erum við, ásamt Holl-
lendingum, með hæsta bensínverð-
ið að sögn Runólfs Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Félags
íslenskra bifreiðaeigenda.
Samkvæmt tölum Félags
íslenskra bifreiðaeigenda á rekst-
urskostnaði bíla í janúar á þessu ári
voru ekki miklar breytingar frá því
árið áður. Gengisumhverfið var
hagstætt á síðasta ári og grunnverð
bifreiða lækkaði. Eldsneytiskostn-
aður, tryggingakostnaður og vinnu-
liðurinn hækkuðu lítillega milli ára.
En breytingar seinustu daga hafa
rifið upp eldsneytiskostnaðinn að
sögn Runólfs og áhrif gengis munu
einnig koma fram í stofnkostnaði
og viðhaldi. Áhrifa er þegar farið
að gæta í bílverði.
FÍB hefur sent áskorun til
stjórnvalda um að lækka ríkisálög-
ur á eldsneytisverð til að draga úr
neikvæðum áhrifum hás eldsneyt-
isverðs á fjárhag heimilanna. Árið
2002 greip ríkisstjórnin til tíma-
bundinnar lækkunar á skattlagn-
ingu á eldsneyti til að sporna við
neikvæðum áhrifum hækkunar
eldsneytisverðs á vísitöluna.
Spurður um ástæður þess að
ríkið hafi ekki tekið við sér segir
Runólfur að þau rök hafi verið
nefnd að óeðlilegt sé að grípa með
þeim hætti inn í eina tegund vöru.
Runólfur telur að enn meiri ástæða
sé til inngrips nú en fyrir fjórum
árum, en eldsneytisverð er 5,3 pró-
sent af vísitölu neysluverðs.
Skattheimta ríkisins nemur á
bilinu 55 til tæplega 60 prósentum
af hverjum seldum bensínlítra eða
á milli 65 og 70 krónur. Þar af falla
32 krónur í viðhald vega. En hinn
helmingur skattheimtunnar veitir
töluvert svigrúm fyrir ríkið til að
draga úr skattheimtu að mati Run-
ólfs.
Frumvarp um tímabundna lækk-
un á skattlagningu á bensíni og olíu
var lagt fram í haust og liggur nú í
efnahags- og viðskiptanefnd. „Stór
hluti verðmyndunarinnar er í hönd-
um ríkisins og nú þýðir ekki að
stinga höfðinu í sandinn og segja að
ekkert sé hægt að gera,“ segir Run-
ólfur sem vill sjá aðgerðir hjá
stjórnvöldum.
sdg@frettabladid.is
Um þrjú prósent erlendra og innlendra osta í borðum
verslana sem rannsakaðir voru með tilliti til örveru-
magns af hálfu Umhverfisstofnunar og heilbrigðis-
eftirlits sveitarfélaga stóðust ekki viðmiðunarreglur.
Fór verkefnið fram í byrjun þessa árs en talsverð-
an tíma tekur að fá niðurstöður slíkra kannana. Voru
allnokkrar tegundir innkallaðar í kjölfar niðurstöðunnar.
■ Verslun og þjónusta
Ostar innkallaðir
Á hverjum degi berast af því fréttir að lögregla hafi stöðvað
og sektað tiltekinn fjölda manna vegna hraðaksturs eða
annarra brota á umferðarlögum. Sektir hafa verið óbreyttar
frá árinu 2001 en eru engu að síður umtalsverðar og koma
við pyngju flestra sérstaklega ef um ítrekuð brot er að ræða
eins og raunin er stundum.
Sá ökumaður sem ekur á 100 km hraða á 50 km vegi
þarf að veiða 50 þúsund krónur upp úr veski sínu nái lögregla
til hans. Aukast upphæðirnar hlutfallslega eftir það. Þannig greiða
sekir 60 þúsund krónur fyrir að aka á 130 km hraða á vegum þar sem
leyfilegt er að aka á 70 og svo framvegis. Hámarkið er ef menn aka 80 km yfir leyfi-
legum hraða en þá er brotið það alvarlegt að ákæra er gefin út. Fyrir utan sektirnar
fá ökumenn einnig punkta samkvæmt ákveðnu kerfi fyrir tiltækið og við ákveðinn
punktafjölda missir ökumaðurinn ökuskírteinið í ákveðinn tíma.
Lægsta sekt vegna ölvunaraksturs er einnig 50 þúsund krónur en mælist áfengis-
magn í blóði yfir 1,50 prómillum er gefin út ákæra.
■ Hvað kostar... að vera sektaður
Lögbrot eru dýrt spaug
ÚTGJÖLDIN > KÍLÓVERÐ Á KJÚKLINGUM*
Kí
ló
ve
rð
á
k
jú
kl
in
gu
m
* m.v. verðlag á landinu öllu í febrúar hvert ár
Heimild Hagstofa Íslands
39
1
34
4
55
6
49
5
51
5
36
7
2006200520022001 2003 2004
Flestir hafa borðað
súkkulaði sér til
ánægju. Stundum
er súkkulaði lagt
að jöfnu við hvert
annað sælgæti eins
og brjóstsykur og
lakkrís. Súkkulaði er
hins vegar sérstakt
vegna eiginleika kakóbaunarinnar. Hún
inniheldur meira en 200 mismun-
andi efni og efnasambönd. Bragðið
er einstakt og rétt eins og með kaffi,
te og vín þá skiptir máli í hvers konar
loftslagi og jarðvegi kakóplönturnar
vaxa. Þess vegna er úr fjölmörgum
gerðum af kakóbaunum að velja.
Helsta hráefni í súkkulaði er kakó-
massi, sem er í raun kakóbaunin fín-
möluð, og kakósmjör sem er feitin úr
kakóbauninni. Nýmjólkurduft og sykur
eru svo höfð með til bragðbætis ásamt
soyalesitíni og vanillu.
Súkkulaði hefur mismunandi kakóinni-
hald eftir því til hvers það er ætlað og
eftir smekk hvers og eins. Suðusúkku-
laði hefur oft um 45% kakóinnihald,
er miðlungs bragðsterkt og hentar
vel hvort sem er til neyslu beint úr
pakkanum eða í bakstur og matargerð.
70% súkkulaði er hins vegar langbesta
súkkulaðið í munni þeirra sem vilja
almennilegt súkkulaðibragð. Bragðfyll-
ingin er mikil en samt í góðu jafnvægi.
Kakóinnihaldið er, eins og nafnið gefur
til kynna, 70% og sykurinnihald komið
niður fyrir 30%. Neytandinn þarf ef til
vill svolítið að venjast svona
kröftugu og lítið sætu
súkkulaði og eðlilegt að
mörgum þyki bragðið
fullrammt við fyrstu
kynni.
Margir sækjast eftir
sem hæstu hlutfalli
af kakóefnum vegna bragðs eða
hollustueiginleika þess. Prósentutöl-
urnar gefa til kynna hversu mikið er af
kakóþurrefnum í súkkulaðinu. Afgang-
urinn er að stærstum hluta sykur. Sé
maður að sækjast eftir hollustuþáttum
súkkulaðis á maður sem sagt að velja
það súkkulaði sem er með hæstu
prósentutöluna.
Rjómasúkkulaði er algengasta átsúkku-
laði Íslendinga. Það inniheldur mikið
af þurrkaðri nýmjólk sem blandast
einkar vel við kakóbaunirnar. Í hvítu
súkkulaði er kakómassanum hins vegar
alveg sleppt og súkkulaðibragðið því
afar dauft.
Margir halda að súkkulaði sé óholl-
ustan ein. Súkkulaði inniheldur flókin
efnasambönd, meðal annars
svolítið af steinefnum og
vítamínum. Vakið hefur
athygli að súkkulaði
inniheldur umtalsvert
magn andoxunar-
efna eða fjölfenóla.
Þau eru talin hafa
merkjanleg áhrif til lækkunar á kólest-
eróli í blóði og tefja blóðtappamyndun.
Flestir velja þó súkkulaðið sennilega
fyrst og fremst vegna góða bragðsins
og ánægjunnar af því að njóta þess
sem gott er.
www.mni.is
MATUR & NÆRING RÚNAR INGIBJARTSSON MATVÆLAFRÆÐINGUR
Súkkulaði er sérstakt
Upplýsingar um notkun raforku og vatns
Íslenskir neytendur geta nú loks með auðveld-
um hætti skipt um raforkusala eftir að fyrirtækið
Netorka tók til starfa í byrjun þessa mánaðar.
Á heimasíðu þeirra geta allir raforkukaupendur
skoðað allar upplýsingar um orkukaup sín, alla
notkun á heitu og köldu vatni og á sama stað
gert samanburð á hvar hagkvæmast er að vera
í viðskiptum. Óski neytandi eftir að skipta um
raforkusala tekur það einn mánuð að skipta en
ástæða er til að benda notendum á að kynna
sér málin vel þó ekki sé vegna annars en að
kostnaður við seðilgjöld ein og sér geta þurrkað út allan ávinning af því að skipta.
Frekari upplýsingar má finna á Netorka.is.
■ Verslun og þjónusta
Hver eru bestu kaupin sem þú hefur gert?
„Það er tvennt sem kemur upp í hugann.
Sinclair Spectrum 48k tölva sem ég keypti fyrir
fermingarpeningana mína fyrir örfáum árum.
Þvílík stemning og eftirvænting þegar maður
beið fyrir framan kassettutækið meðan spólan
var að garga leikjunum upp á sjónvarpið. Manic
Miner, Harrier Attack, Football Manager og fleiri
snilldarleikir styttu manni ófáar stundirnar.
Svo er það íbúðin sem ég keypti fyrir þremur
árum á Melhaganum í Vesturbænum. Besta
gatan í bænum með bestu nágrönnunum. Lang-
ar að nota tækifærið og þakka vinkonu minni
fyrir að benda mér á þessa gersemi. Takk Ellen !“
En verstu kaupin? „Verstu kaupin hljóta að vera
bíllinn sem ég keypti fyrir um fjórum árum. VW
Vento „97 eða eitthvað svoleiðis. Það bilaði allt
í honum sem gat bilað. Gjörsamlega óþolandi
skrjóður. Nenni ekki að eyða meiri orku í að tala
um það hrak ! Er komin á Passat núna sem ég
er sáttur með.“
Hvernig líst þér á komandi sumar í fótbolt-
anum? „Líst bara svona alveg þokkalega á sum-
arið. Það hefur nú ekkert gengið neitt voðalega
vel hjá okkur KR-ingum á undirbúningstímabil-
inu. Vona bara að þetta fari að smella saman
hjá okkur svo að við getum verið með í barátt-
unni um titla í sumar. Annars held ég að þetta
verði skemmtilegt sumar og ég á ekki von á
að eitt lið stingi af og bursti deildina eins og
í fyrra. Það verður spennandi að fylgjast með
Þórði Guðjónssyni og Skagamönnum, sérstak-
lega þar sem Þórður sagði mér að hann ætlaði
að bæta markametið núna í sumar.“
BESTU OG VERSTU KAUPIN: KRISTJÁN FINNBOGASON, MARKVÖRÐUR KR
Sinclair spectrum stendur upp úr
DÆLT Á BÍLINN Stærstur hluti af verði bensíns og olíu eru álögur í ríkissjóð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Ísland með hæsta elds-
neytisverðið í Evrópu
Bensínkostnaður* Eyðsla Miðað við lítraverð Miðað við lítraverð Hækkun í krónum
(l/100 km) í janúar 2006** í apríl 2006**
(108,30 kr/l) (126,10 kr/l)
Fólksbíll 129.960 151.320 21.36
Fólksbíll11 178.695 208.065 29.37
Jeppi 15 243.675 283.725 40.05
Pallbíll 17 276.165 321.555 45.39
*miðað er við 15 þúsund kílómetra akstur á ári
**meðalverð í sjálfsafgreiðslu